Ræddi við varaformann Sjálfstæðisflokks um fríar skólamáltíðir

Formaður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga tekur glöð á móti gagn­rýni frá sjálf­stæð­is­mönnum, verði það til þess að sátt náist á vinnu­mark­aði.

Ræddi við varaformann Sjálfstæðisflokks um fríar skólamáltíðir
Kjara­samn­ingar Heiða Björg Hiln­m­is­dóttir, for­maður SÍS, segir að miklir hags­munir hafi verið undir og það hefði verið óábyrgt að hennar mati að sam­þykkja ekki fríar skóla­mál­tíðir. Mynd: Bára Huld Beck

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga (SÍS), ræddi við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um að mik­il­vægt væri að vanda til verka við útfærsl­una á fríum skóla­mál­tíðum, sem liðk­uðu fyrir gerð kjara­samn­inga sem sam­þykktir voru í síð­ustu viku. „Ég nefndi við Þórdísi Kolbrúnu, óform­lega, að við vönd­uðum okkur við útfærsl­una á þess­ari leið og mögu­lega þyrftu leið­irnar að vera fleiri en ein þannig að sem flest sveit­ar­fé­lög sæju sér hag í því að taka þátt,“ segir Heiða Björg í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Kostn­aður við það að gera skóla­mál­tíðir gjald­frjálsar er met­inn á um sjö millj­arða króna á ári. Ríkið hefur skuld­bundið sig til að standa undir 75 pró­sent af kostn­að­inum við aðgerð­ina, sem er ætlað að miðla umtals­verðu ráð­stöf­un­arfé í vasa barna­fjöl­skyldna, en sveit­ar­fé­lög þurfa að greiða fjórð­ung.

Odd­vit­ar og sveit­ar­stjór­ar Sjálf­stæð­is­flokks í 27 sveit­ar­fé­lög­um gagn­rýna ákvörð­un um að gera skóla­mál­tíð­ir gjald­frjáls­ar harka­lega. Í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í gær segja þeir  op­in­ber­ar yf­ir­lýs­ing­ar um fulla sátt með að­gerð­irn­ar vera ranga og krefj­ast skýr­inga. Heiða Björg furðar sig á þess­ari gagn­rýni og segir fulla sátt ríkja með aðgerð­ina, líkt og sjá megi í fund­ar­gerðum sam­bands­ins. „Eftir nokkur fund­ar­höld, umræðu og sam­ráð, þar sem fólk skipt­ist á skoð­unum, kom stjórnin sér saman um að sam­þykkja þetta og fara þessa veg­ferð. Ég hef svo sem aldrei sagt það að allir sveit­ar­stjórar séu ánægðir með þetta, þetta var ekki okkar til­laga. En, að vel athug­uðu máli var það nið­ur­staða stjórnar sam­bands­ins að styðja þetta og vinna að því að finna leiðir þannig að skóla­mál­tíðir geti orðið gjald­frjálsar frá og með haustinu.“

Heiða segir SÍS ekki hafa verið í beinu sam­bandi við rík­is­stjórn­ina þegar kemur að kjara­við­ræðum. Það hafi verka­lýðs­hreyf­ingin hins vegar verið. „Við höfum ekki setið við það borð þannig þessi aðgerð kom frá því borði til okkar, með beiðni um stuðn­ing frá for­ystu­fólk­inu. Því kemur það mér á óvart að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé svona ein­dregið á móti því þar sem þau sam­þykktu þetta bæði í rík­is­stjórn og í stjórn sam­bands­ins, sem og aðilar sem skrifa grein gegn því.“

Hún segir eðli­legt að hug­mynda­fræði­legur ágrein­ingur sé um hvort aðgerðin sé góð. Sjálf hafi hún ekki farið leynt með það að hún er hlynnt henni. „Mér finnst það að við séum að tryggja það að öll börn fái mat í grunn­skólum jákvætt.“ Ef odd­vitum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í sveit­ar­stjórnum líður betur með að beina gagn­rýni að henni heldur en flokknum seg­ist Heiða taka því með glöðu geði, verði það til þess að sátt náist á vinnu­mark­aði og leiði til lækk­unar verð­bólgu og vaxta. 

„Það er bara þannig. Maður verður að standa með sínum ákvörð­unum og sínum verkum. Við leit­uðum leiða og komum sjón­ar­miðum á fram­færi, áttum sam­ráðs­fundi með fram­kvæmda­stjórum. Það er kannski eitt­hvað sem við getum lært af þessu, að hafa víð­ari sam­ráðs­fundi, mögu­lega kannski meira með póli­tík­inni.“

Heiða segir að miklir hags­munir hafi verið undir og það hefði verið óábyrgt að hennar mati að taka aðra ákvörðun, jafn­vel fyrir þá sem eru hug­mynda­fræði­lega á móti því að skóla­mál­tíðir séu gjald­frjálsar. „Svo er þetta líka póli­tík. Við erum öll í póli­tík.“    

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár