Oddvitar Sjálfstæðisflokks brjálaðir út í formanninn

Oddvitar og sveit­ar­stjórar Sjálf­stæð­is­flokks í 26 sveit­ar­fé­lögum gagn­rýna ákvörðun um að gera skóla­mál­tíðir gjald­frjálsar harka­lega. Þeir segja opin­berar yfir­lýs­ingar um fulla sátt með aðgerð­irnar vera ranga og krefj­ast skýr­inga.

Oddvitar Sjálfstæðisflokks brjálaðir út í formanninn
Formaður Heiða Björg Hilm­is­dóttir er for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga. Mynd: Golli

Oddvitar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í alls 26 mis­mun­andi sveit­ar­fé­lögum, gagn­rýna Heiðu Björg Hilm­is­dóttur, for­mann Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og borg­ar­full­trúa Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, harð­lega í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Tilefnið er aðkoma sam­bands­ins að því að sam­þykkja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga. 

Kostn­aður við það að gera skóla­mál­tíðir gjald­frjálsar er met­inn á um sjö millj­arða króna á ári. Ríkið hefur skuld­bundið sig til að standa undir 75 pró­sent af kostn­að­inum við aðgerð­ina, sem er ætlað að miðla umtals­verðu ráð­stöf­un­arfé í vasa barna­fjöl­skyldna, en sveit­ar­fé­lög þurfa að greiða fjórð­ung.

Í grein­inni segja odd­vit­arnir að þeir fagni því að lang­tíma kjara­samn­ingar hafi tek­ist fyrir stærstan hluta launa­fólks á almennum vinnu­mark­aði hafi náðst. Þar segir að það megi vel ræða hug­mynd­ina um gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir og hvernig eigi að fjár­magna þær. Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga sé vett­vangur til þess. „Fyrir rétt rúmum tveimur vikum, eða 26. febr­úar, kynnti for­maður Sam­bands­ins fyrst hug­myndir um gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir á fundi tæp­lega 50 sveit­ar­stjóra, bæj­ar­stjóra og borg­ar­stjóra. Kom það flestum á fund­inum í opna skjöldu að sveit­ar­fé­lögin væru skyndi­lega orðin lyk­il­breyta í kjara­við­ræðum á almennum vinnu­mark­aði og með þessum hætti.“

Odd­vit­arnir, sem koma meðal ann­ars úr stærstu sveit­ar­fé­lög­unum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stýrir, segja að afstaða full­trúa sveit­ar­fé­laga á þeim fundi hafi verið mjög skýr, and­staðan verið nán­ast ein­róma og ein­skorð­að­ist ekki bara við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.„ Enda lá fyrir að hér væri ráðskast með sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt sveit­ar­fé­laga er snýr að mik­il­vægri þjón­ustu, eins og skóla­mál­tíðum. Brún okkar sveit­ar­stjórn­ar­manna þyngd­ist enn þegar í ljós kom að við­ræður for­manns­ins við rík­is­valdið hófust í upp­hafi árs og var fram­haldið í lok jan­úar eða mán­uði áður en sveit­ar­stjórn­ar­fólki var kynnt þessi hug­mynd.“

Þann 1. mars hafi verið hald­inn annar fundur með borg­ar­stjóra, bæj­ar­stjórum og sveit­ar­stjórum og þar hafi komið fram að  enn var mikil mót­staða meðal flestra sem tóku til máls. Stjórn sam­bands­ins hafi fundað í kjöl­farið og sam­þykkti eft­ir­far­andi bókun: „Stjórn Sam­bands­ins óskar eftir því að rík­is­valdið leiti ann­arra leiða við að útfæra mark­mið um gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir en beint í gegnum gjald­skrár sveit­ar­fé­laga. Stjórnin er reiðu­búin til sam­tals um málið á breiðum grund­velli með það að leið­ar­ljósi að tryggja barna­fjöl­skyldum kjara­bætur og vel­ferð.“ 

Formaður flokksins kynnti aðgerðirnar

Odd­vit­arnir segja að því hafi verið treyst að Heiða Björg, sem for­maður sam­bands­ins, myndi starfa sam­kvæmt ein­dregnum vilja sveita­stjórna og bókun stjórnar og myndi upp­lýsa aðila vinnu­mark­að­ar­ins og Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um afstöð­una með skýrum hætti. „Ljóst er að svo var ekki. Formaður Sam­bands­ins lét síðan hafa eftir sér í fjöl­miðlum að full sátt væri um þessa fram­kvæmd. Það er rangt. Í dag hitt­ast sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar af öllu land­inu á árs­þingi Sam­bands­ins og þar er afar mik­il­vægt að for­mað­ur­inn skýri aðkomu sína að kjara­samn­ings­gerð á almennum mark­aði.“

Vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokksEinn þeirra fjög­urra stjórn­mála­manna sem kynnti aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar á fimmtu­dag fyrir viku er Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir

Þegar aðkoma rík­is­ins að gerð kjara­samn­inga var kynnt fyrir viku þá var það gert af fjórum stjórn­mála­mönnum. Þau eru Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra, Heiða Björk Hilm­is­dóttir, for­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem odd­vit­arnir 27 til­heyra. Búið að var sam­þykkja aðgerð­ar­pakk­ann í rík­is­stjórn, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn skipar með Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki, áður en hann var kynntur opin­ber­lega. 

Þeir eru Almar Guð­munds­son, Garðabæ, Anton Kári Hall­dórs­son, Rangár­þingi eystra, Ásdís Krist­jáns­dóttir, Kópavogi, Ásgeir Sveins­son, Mos­fellsbæ, Berglind Harpa Svav­ars­dóttir Múla­þingi, Björn Haraldur Hilm­ars­son, Snæ­fellsbæ, Björn Guð­mundur Sæbjörns­son, Vogum, Bragi Bjarna­son, Árborg, Einar Jón Pálsson, Suð­ur­nesjabæ, Eyþór Harð­ar­son, Vest­manna­eyjum, Friðrik Sig­ur­björns­son, Hvera­gerði, Gauti Árnason, Höfn í Horna­firði, Gísli Sig­urðs­son, Skaga­firði, Gestur Þór Krist­jáns­son, Ölfusi, Guð­mundur Haukur Jak­obs­son, Húna­byggð, Hafrún Olgeirs­dóttir, Norð­ur­þingi, Heimir Örn Árnason, Akureyri, Hildur Björns­dóttir, Reykja­vík, Ingvar Pétur Guð­björns­son, Rangár­þingi ytra, Jóhann Birkir Helgason, Ísa­fjarð­arbæ, Jón Bjarna­son, Hruna­manna­hreppi, Margrét Ólöf A Sanders, Reykja­nesbæ, Ragnar Sig­urðs­son, Fjarða­byggð, Rósa Guð­bjarts­dóttir, Hafn­ar­firði, Sveinn Hreiðar Jensson, Skaft­ár­hreppi, og Þór Sig­ur­geirs­son, Sel­tjarn­ar­nesi.

„Allt rangt við þessa ráðstöfun fjármuna“

Fleira áhrifa­fólk úr Sjálf­stæð­is­flokknum hefur gagn­rýnt gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir harka­lega. Í gær birt­ist grein eftir Óla Björn Kárason, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var for­maður þing­flokks hans framan af kjör­tíma­bili og þangað til í sept­em­ber í fyrra, í Morg­un­blað­inu. Þar sagði hann að ekki yrði „hjá því kom­ist að vara sér­stak­lega við hug­myndum um fríar skóla­mál­tíðir sem áætlað er að kosti rík­is­sjóð um 21,5 millj­arða út samn­ings­tím­ann. Það er allt rangt við þessa ráð­stöfun fjár­muna. Verið er að styrkja stóran hóp for­eldra sem þarf ekki á stuðn­ingi að halda og færa má rök fyrir því að mat­ar­sóun auk­ist.“ 

Að mati Óla Björns hefði verið skyn­sam­legra að hækka barna­bætur enn frekar en ráð­gert er. „Fríar skóla­mál­tíðir eru dæmi um vonda ráð­stöfun sam­eig­in­legra fjár­muna. Von mín um að rík­is­stjórnin gæti sam­ein­ast um að lækka skatta, og þá sér­stak­lega lækka neðsta þrep tekju­skatts­ins, gekk ekki eftir. Það er miður enda kemur fátt þeim sem lægri launin hafa betur en lækkun tekju­skatts fyrir utan lækkun útsvars.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár