Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra

Móðir á Kirkju­bæj­ar­klaustri ætlar að flytja með börnin sín úr bænum þar sem hún telur ástandið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Sonur hennar hefur lítið mætt í skól­ann í á annað ár eftir atvik í skól­anum sem for­eldr­arnir kærðu til lög­reglu. Málið var látið niður falla. Skóla­stjór­inn er nú á förum en sveit­ar­stjór­inn segir það „engum einum að kenna þegar tveir deila“.

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
Linda Ösp Brott­hvarf skóla­stjór­ans breytir ekki ákvörðun Lindu um að flytja þar sem skað­inn er skeður, segir hún. Mynd: Golli

Linda Ösp Gunn­ars­dóttir er að und­ir­búa flutn­inga með börnin sín þrjú. Það er henni þung­bær ákvörðun enda reka hún og eig­in­maður hennar, Jón Hrafn Karlsson, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­æki í Með­al­landi – í grennd við Kirkju­bæj­ar­klaustur – þar sem þau hafa búið í tæpan ára­tug og finnst þar gott að vera. Linda seg­ist ein­fald­lega ekki sjá sér aðra leið færa til þess að tryggja börn­unum sínum, sér­stak­lega 13 ára gömlum syni sínum, við­eig­andi menntun.

Dreng­ur­inn, sem er með ADHD og bíður ein­hverfu­grein­ingar, hefur lítið mætt í Kirkju­bæj­ar­skóla í á annað ár. Staðan versn­aði, að sögn Lindu, til muna eftir atvik í skól­anum í sept­em­ber­mán­uði árið 2022. Þann dag sótti Linda son sinn í skól­ann eftir sím­hring­ingu frá skóla­stjór­anum, Katrínu Gunn­ars­dóttur.

Flutn­ingarLinda lýsir því sem fram undan er hjá fjöl­skyld­unni eftir tæp tvö erfið ár. Mynd­bands­við­talið var tekið áður en til­kynnt var um starfs­lok Katrínar. Linda segir það …
Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðbjörg Leifsdóttir skrifaði
    Sveitastjórinn segir: „Það eru alltaf tvær hliðar á einu máli en það er engum einum að kenna þegar tveir deila.“ Þetta er auðvitað algjör della og ekki traustvekjandi að hafa stjórnanda sem hugsar svona. Fólk, sérstaklega í valdastöðu, á það til að níðast á þeim sem minna mega sín. Því miður!
    6
  • Sigurbjörg Eiríksdóttir skrifaði
    Öflug grein.
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár