Forsetaembættið sé áhrifaembætti, ekki valdaembætti

For­seta­fram­bjóð­and­inn Katrín Jak­obs­dóttir segir að það sé eðl­is­ó­líkt að vera for­seti og for­sæt­is­ráð­herra. „Ég veit að sumir segja að ég sé of metn­að­ar­full, en það er mjög oft sagt um konur að þær séu of metn­að­ar­fullar og ætli sér of mikið.“

Forsetaembættið sé áhrifaembætti, ekki valdaembætti
Í fram­boði „Forseti talar út frá sinni sýn og hefur annað hlut­verk en for­sæt­is­ráð­herra, sem heldur utan um þriggja flokka stjórn.“ Mynd: Golli

„For­seta­emb­ættið er ekki valda­emb­ætti heldur áhrifa­emb­ætti, þótt for­seti hafi völd á afmörkuð sviði,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­seta­fram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. En hún vill meina að það séu eðl­is­ó­lík emb­ætti að vera for­sæt­is­ráð­herra og for­seti.  

Katrín var við­mæl­andi Ingi­bjargar Daggar Kjart­ans­dóttur í síð­asta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar. 

Gæti hugsað sér að verða aftur valdalaus einstaklingur

For­seta­fram­bjóð­and­inn seg­ist skilja þá gagn­rýni sem snú­ist um hvort hún vilji alltaf vera á opin­berum vett­vangi. „En ég nálg­ast þetta þannig að mér finnst ég geta gert gagn í þessu emb­ætti. Ég veit að sumir segja að ég sé of metn­að­ar­full, en það er mjög oft sagt um konur að þær séu of metn­að­ar­fullar og ætli sér of mikið.“

Hún seg­ist þó alveg geta hugsað sér að verða valda­laus ein­stak­lingur í sam­fé­lag­inu. „Farið aftur að kenna íslensku? Ég get …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MG
    Magnús Guðmundsson skrifaði
    Ótrúlegt hvað skammtíma minni þjóðarinnar er virkt
    0
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Heimildin er algjörlega heltekin af þessum frambjóðanda, það líður varla sá dagur að þið komið ekki með einhverjar prinsessugreinar um hana það eru fleiri í framboði. Þetta er bara orðið kjánalegt. Ég sé að ég gæti alveg eins verið áskrifandi að Mogganum, hlutleysið er álíka hjá þessum tveimur miðlum. Það greinilega á að gera sitt í að koma K.J. á Bessastaði. Ég er búin að bíða eftir löngu viðtölunum við hina frambjóðendurna en sé að þau koma ekki héðan af. Áskriftinni verður sagt upp enda löngu ljóst að ég er ekki að gera mitt í að styðja vandaða blaðamennsku með henni.
    0
  • ETK
    Eysteinn T. Kristinsson skrifaði
    Þegar hún segir að frumvörp séu samin af fjölda "sérfræðinga", þá held ég að hún meini fjölda sérhagsmuna hópa sem virðast fá frjálsar hendur þegar kemur að því að úthluta hagsmunum þjóðarinnar.
    3
  • BK
    Bjarni Kristjánsson skrifaði
    Heimildin á að lýsa formlega yfir stuðningi við Katrínu. Það er ekki heiðarlegt að segjast hlulaus en vera alltaf að planta inn fréttum af Katrínu.
    Hvernig væri að þið gerðuð rannsókn á því hve mikla umfjöllun hver forsetaframbjóðandi hefur fengið hjá Heimildinni?
    5
    • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
      Sú rannsókn yrði fróðleg, það sem þau hampa þessum frambjóðanda það er fyrir löngu orðið vandræðalegt
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár