Teitur Björn vildi ekki fullyrða að Svandís ætti að segja af sér

Þrír þing­menn stjórn­ar­flokk­anna ræddu sín á milli um ábyrgð Svan­dísar Svav­ars­dóttur í kjöl­far álits umboðs­manns Alþingis um stöðvun hennar á hval­veiðum síð­asta sumar. Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði að með fram­ferði sínu hefði Svandís farið gegn því sem ákveðið hefði verið með gerð stjórn­ar­sátt­mála – að hrófla ekki við hval­veiðum.

Í nýjasta þætti Pressu fékk Helgi Seljan til sín þrjá stjórn­ar­þing­menn. Það voru þau Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, og Ágúst Bjarni Garð­ars­son, þing­maður Fram­sóknar. Ræddu þau meðal ann­ars um álit umboðs­manns Alþingis á ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra að fresta hval­veiðum í sumar. 

Teitur og Steinunn eru ósammála

Spurður út í afstöðu sína sagði Teitur Björn fram­göngu mat­væla­ráð­herra vera alvar­legt brot. Hann vildi þó ekki full­yrða um það að Svandís ætti að segja af sér. Að hans mati væri þó hægt að ganga að því vísu að ráð­herra sem hegð­aði sér líkt og hún fengi ekki að starfa áfram í skjóli Sjálf­stæð­is­flokks. 

„[Fram­ganga mat­væla­ráð­herra] hefur grafið undan trausti. Og við erum að fara fram á það að VG leysi úr þessu máli. Hvernig á að skapa starfs­frið um þau verk­efni sem flokk­arnir eru sam­mála um að vinna áfram,“ sagði Teitur.

Steinunn Þóra, þing­maður VG, tók undir að álit umboðs­manns ætti að taka alvar­lega. „Það er ekki þannig að það fylgi því að ráð­herrar segi af sér þó svo að það sé komið með ábend­ingar um hluti sem betur mætti fara,“ sagði hún. Benti Steinunn á það að Svandís hefði tekið ákvörð­un­ina um frestun hval­veiða í sam­ræmi við ráð­legg­ingar sér­fræð­inga innan ráðu­neyt­is­ins. 

Þessu var Teitur ósam­mála. „Hún tekur ákvörðun sem er gegn þeim ráð­legg­ingum sem þar [í ráðu­neyt­inu] er að finna.“ Sagði Teitur enn fremur að ekki hefði verið fall­ist á til­lögu Vinstri grænna að setja bann á hval­veiðum í stjórn­ar­sátt­mála. „Það var nið­ur­staðan. Það var það sem var lagt til grund­vallar. Þannig það yrði ekki hróflað við hval­veiðum. Gegn þessu fer mat­væla­ráð­herra,“ sagði hann.

„Nei,“ sagði Steinunn Þóra, og hristi höf­uðið. 

„Gegn þessu fer víst mat­væla­ráð­herr­ann og stöðvar hval­veiðar með ólög­mætum hætti, sem er, eins og umboðs­maður Alþingis kemst að, bann við hval­veiðum. Þetta höfum við alltaf sagt að er algjör­lega ótækt. Þess vegna er þetta svona alvar­legt mál,“ svar­aði Teitur.

Menn eigi að virða leikreglur

Ágúst Bjarni, þing­maður Fram­sóknar, sagði að ein leið til að leysa úr ástand­inu væri að ráð­herrar hefðu stóla­skipti líkt og for­dæmi væri fyrir. „Þetta er verk­efni for­manna að leysa úr og ég treysti þeim til þess,“ sagði hann. Hann sagði að ætl­ast væri til að menn færu eftir þeim leik­reglum sem þingið setti. 

Þegar nefnt var að Lilja Alfreðs­dóttir flokks­systir Ágústs hefði einnig gerst brot­leg við lög –jafn­rétt­islög – á ráð­herra­stól með því að ráða Pál Magn­ús­son flokks­bróður sinn til ráðu­neytis síns, fannst Ágústi það „heldur ódýr umræða.“ Páll hafi verið full­kom­lega hæfur til að gegna því starfi. „Þarna finnst mér verið að blanda saman ólíkum hlutum,“ sagði hann.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • LBE
    Lára Brynhildur Eiríksdóttir skrifaði
    Svandís vann sína vinnu í samráði við álit sérfræðinga um velferð dýra. gegn fólki í þjóðfélaginu, með mikil völd og voldugt bakland. enda fékk hún að finna fyrir þeim,og hnífstungu í bakið. Mér finnst hún algjör hetja. Og vill að hún Sítji áfram sem fastast. Við þurfum fleira fólk eins og hana á alþingi. Fólk sem Þorir að standa með samvisku sinni, og lætur ekki undan spillingu og hótunum. Heldur stendur með sinni sannfæringu. Og lætur ekki nauðbeyga sig kúa og spilla. ÁFRAM SVANDÍS.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Vanhæf ríkisstjórn
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár