Paradís sem varð að martröð, lífsgleðin eftir áfallið og langþráð forhúðaraðgerð – Viðtöl ársins

Fjölmörg áhuga­verð við­töl birt­ust í Heim­ild­inni á árinu sem brátt líður undir lok. Þar sagði fólk frá ýmist frá afdrifa­ríkri reynslu, hrif­andi gleði, þung­bærri sorg, eða öllu að fram­an­töldu. Hér er farið yfir nokkur af helstu við­tölum árs­ins.

Paradís sem varð að martröð, lífsgleðin eftir áfallið og langþráð forhúðaraðgerð – Viðtöl ársins
Brot af þeim fjöl­mörgu sem veittu Heim­ild­inni við­tal á árinu sem er að líða. Mynd: Heimildin

„Það var ekki hægt að flýja frá þessu“

Linda ólst upp á heim­ili með dæmd­um barn­aníð­ingi og konu sem var síð­ar dæmd fyr­ir mis­þyrm­ing­ar gagn­vart börn­un­um. Frá því að al­syst­ir henn­ar leit­aði til lög­reglu leið eitt og hálft ár þar til Linda komst í fóst­ur. Á þeim tíma versn­uðu að­stæð­ur á heim­il­inu. Enn lengri tími leið þar til yngri systk­ini þeirra voru fjar­lægð það­an.

Vanræksla á skyldum kostaði mannslíf

Eft­ir­lif­endur snjó­flóðs­ins á Súðavík sem kost­aði 14 mann­eskjur lífið árið 1995 opn­uðu sig í áhrifa­miklu við­tali við Heim­ild­ina um lífs­reynsl­una og köll­uðu eftir end­ur­skoðun á harm­leiknum sem þau telja hafa verið fyr­ir­byggj­an­legan. Umfjöll­unin leiddi til end­ur­upp­töku rann­sóknar á mál­inu í októ­ber þegar að eft­ir­lif­endur fengu áheyrn 28 árum síðar.

„Ég er mjög prívat persóna“

Egill Helgason seg­ist í upp­hafi hafa skolf­ið eins og lauf í vindi þeg­ar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Hann sagði skilið við Silfrið á árinu og í við­tali við Heim­ild­ina rifj­aði hann upp eft­ir­minni­leg atvik frá ferl­inum.  Egill ræddi einnig opin­skátt um glímu sína við kvíða og þung­lyndi.

Paradís varð að martröð

For­eldrar níu ára gam­allar stúlku með fötlun sögðu frá hrylli­legri lífs­reynslu vegna kyn­ferð­is­af­brots starfs­manns sum­ar­búð­anna í Reykja­dal á dóttur þeirra og spill­ingu lög­reglu­rann­sóknar um málið af hálfu starfs­manna búð­anna.

Leigufélagið Alma stórhækkaði leigu flóttafólks

Leigu­hækk­anir leigu­fé­lags­ins Ölmu í jan­úar, um allt að 114%, komu illa við 16 fjöl­skyldur úkra­ínska flótta­fólks­ins í Urriða­holti sem ræddi við Heim­ild­ina um erf­iðan flótta sinn frá heima­land­inu og öryggið sem það fann á Íslandi. End­ur­nýjað rót­leysi vegna óyf­ir­stíg­an­legra leigu­hækk­ana olli fjöl­skyld­unum miklum áhyggjum.

 „Mér leið skringilega en ég hugsaði bara, ókei“

Katla Sif Æg­is­dótt­ir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sum­ar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldr­um sín­um en stefn­ir á að fara í sjálf­stæða bú­setu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dá­lít­ið hræði­legt“ að fóstr­um sé eytt ef lík­ur eru tald­ar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hef­ur hún upp­lif­að for­dóma á eig­in skinni.

Valdatafl um stöðu útvarpsstjóra kostaði Auðun geðheilsuna

Auðun Georg Ólafsson sagði frá erf­iðri lífs­reynslu sinni þegar að honum bár­ust hót­anir valda­mik­illa manna í kjöl­far þess að hann sagði upp starfi sínu sem útvarps­stjóri á fyrsta degi. Mótmæli, hót­anir og streita kost­uðu Auðun geð­heils­una um tíma, en hann segir lífs­reynsl­una hafa tekið mörg ár að kom­ast yfir.

SJÁ EINNIG

Veiktist alvarlega í kjölfar hótana, smánunar og útskúfunar

Draumurinn um heimili rættist eftir langa glímu við úrræðaleysi yfirvalda

Viðtal Heim­ild­ar­innar við Axel Ayari og syni hans tvo, vakti mikla athygli á árinu. Feðgarnir höfðu þá búið í hjól­hýsi í fimm mán­uði eftir algert úrræða­leysi sem þeir mættu hjá félags­mála­yf­ir­völdum. Draumur drengj­anna um heim­ili rætt­ist svo stuttu síðar í kjöl­far umfjöll­un­ar­innar. 

Kenndi börnum stærðfræði en hreinsar nú hótelherbergi þar sem launin rétt svo duga

Stærð­fræði­kenn­ari frá Úkraínu, Yuliia Ye­dynak, var við störf sem hót­el­þerna Íslands­hót­ela og var í hringa­miðju verk­falla Eflingar á árinu. Yuliia lýsti því hvernig laun hennar rétt svo nægðu fyrir leigu og mat þrátt fyrir að vinna 160 klukku­tíma á mán­uði.

„Þetta er uppspuni, lygi. Þetta er byggt á hatri, engu öðru“

Veiga Grét­ars­dóttir opn­aði sig um nið­ur­lægj­andi upp­lifun sína í sund­ferð sinni í Graf­ar­vogs­laug. Orðrómar höfðu farið sem eldur í sinu um fjöl­miðla þar sem stað­hæft var að trans­kona með typpi hefði berað sig fyrir framan börn í sund­laug Graf­ar­vogs. Veiga steig fram til þess að leið­rétta þær rang­færslur og sagði frá því sem raun­veru­lega gerð­ist.

„Á maður að halda áfram eða á maður að gera eitthvað annað?“

Gyrð­ir Elías­son opn­aði sig um ein­semd­ina sem hefur verið honum drif­kraft­ur í list­sköp­un­inni í 40 ár en hann seg­ir að jafn­væg­ið milli henn­ar og al­gerr­ar ein­angr­un­ar sé vand­með­far­ið. Sjálf­ur glími hann við krón­ískt þung­lyndi sem sjá megi sem viss­an þráð gegn­um öll hans verk.

„Ég var ekki orðin fertug en mér leið eins og gamalli konu“

Með­virkni og sál­ræn áföll aðstand­enda alkó­hólista eru ekki síður skemm­andi en fíkni­sjúk­dóm­ur­inn sjálfur, en heilar fjöl­skyldur verða fyrir djúp­stæðum áhrifum eins og Helga Ósk­ars­dóttir sagði frá í opin­skáu við­tali. 

Kristján er „alltaf einmana“

Ein­mana­leika hefur verið lýst sem far­aldri víða um heim og í Bret­landi hefur hann náð slíkum tökum á sam­fé­lag­inu að skip­aður hefur verið sér­stakur ráð­herra ein­mana­leika. Hugtakið ein­mana dauði hefur verið notað til að lýsa and­látum fólks sem deyr eitt án þess að nokkur verði þess var svo dögum eða vikum skiptir. Í Hátúni 10 lýsa íbúar hvernig þeir takast á við ein­mana­leik­ann og fag­fólk á ýmsum sviðum segir frá því því hvernig er að koma að ein­mana dauða í störfum sínum.

„Ég grét og spurði af hverju hún hefði gert þetta, af hverju hún vildi deyja frá okkur“

Emma Lind Þórs­dótt­ir var sjö ára þeg­ar sjúkra­bíll var kall­að­ur að heim­il­inu og móð­ir henn­ar var flutt á geð­deild. Seinna heyrði hún sann­leik­ann um sjálf­sk­aða móð­ur sinn­ar. Móð­ir henn­ar hef­ur náð bata, en Emma Lind glím­ir við af­leið­ing­ar fá­tækt­ar og ör­ygg­is­leys­is, tví­tug stelpa sem er stað­ráð­in í að skapa sér betra líf. 

Ísland var mjög framandi fyrir Sayed: „Hvaða land er þetta? Get ég farið þangað?“

Merkileg lífs­saga Sayed Khanogli var til umræðu í sam­tali við Heim­ild­ina í sumar. Sayed hefur verið á flótta meiri­hluta ævinnar en yfir­gaf heima­land sitt í Afganistan þegar hann var 14 ára. Eftir fjög­urra ára veru á Íslandi talar hann íslensku, útskrif­að­ist úr Borg­ar­holts­skóla í kvik­mynda­gerð og dreymir um að gera heim­ild­ar­mynd um reynslu flótta­fólks af því að skapa sér nýtt líf.

 „Ég lifi í hreinni martröð“

Palest­ínska stúlkan Asil Al Masri varð fyrir því hrylli­lega áfalli að missa nær alla fjöl­skyldu sína í loft­árásum Ísra­els­hers á Gasa. Asil og bróðir hennar Suleiman, sem búsettur er á Íslandi, töl­uðu við Heim­ild­ina. Suleiman óskaði þess heit­ast að fá systur sína til Íslands til sín og varð sú ósk að veru­leika þegar að Alþingi veitti Asil rík­is­borg­ara­rétt 16. des­em­ber, en hún er vænt­an­leg til lands­ins eftir ára­mót.

„Þetta var alveg vont og það var sjokk að sjá typpið í fyrsta sinn“

Hafliði Pét­urs­son var 16 ára þegar hann fór að velta því fyrir sér hvort hægt væri að laga for­húð­ina hans. Hún var þröng og olli honum óþæg­indum í kyn­lífi og þegar hann piss­aði. Hann hafði aldrei heyrt talað um aðgerðir á for­húð en opn­aði far­tölv­una sína og sló upp á Google: „Þröng for­húð“ og komst að því að hann væri ekki eini mað­ur­inn í heim­inum í þessum vand­ræðum. 

„Ég vissi alveg að ég væri ólétt en hafði ekki hugrekki til að takast á við það“

Jó­dís Skúla­dótt­ir al­þing­is­kona ólst upp með ógæfu­fólki, missti syst­ur úr alkó­hól­isma og horfði upp á hnign­un föð­ur­ins. Hún grét í kodd­ann og missti rödd­ina, hafði ekki hug­rekki til að við­ur­kenna að hún sem var sjálf bara barn var með barni.

„Reyndar er ég bara meira glaður“

Jóhannes Hrefnu­son Karlsson sagði frá lífs­gleð­inni eftir erfið veik­indi. Hann fékk strept­ókokka­sýk­ingu í heila og var í dái í níu daga og glímir við málstol eftir veik­indin. Jóhannes er blöðru­lista­maður með meiru og ein­stak­lega jákvæður og bjart­sýnn þegar hann horfir til fram­tíð­ar­innar.

„Ég átti vini sem voru drepnir fyrir skóna sem þeir voru í“

Þrátt fyr­ir að móð­ir Oriönu Das­iru Agu­delo Pinedu og syst­ir henn­ar hafi feng­ið hæli hér á landi fljót­lega eft­ir að þær sóttu um það verð­ur Ori­ana send aft­ur til Venes­ú­ela í byrj­un nóv­em­ber, jafn­vel þó að Út­lend­inga­stofn­un telji að hún eigi á hættu að sæta þar illri með­ferð. Ástæð­an fyr­ir því að hún fékk ekki vernd er sú að hún er með tvö­fald­an rík­is­borg­ara­rétt – venesú­elsk­an og kól­umb­ísk­an.

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppgjör ársins 2023

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár