Hafa búið í hjól­hýsi í fimm mán­uði Axel seg­ist ekki hafa fengið upp­lýs­ingar um hvenær hann og drengirnir fái félags­lega íbúð. Sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar segir að miðað við lýs­ingar á aðstæðum drengj­anna hljóti málið að vera í algjörum for­gangi hjá borg­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mig langar að búa í íbúð með herbergi“

Tveir drengir hafa verið á ver­gangi ásamt föður sínum í Reykja­vík frá því síð­asta sumar og haf­ast nú við í hjól­hýsi. Félags­ráð­gjafi kom því til leiðar að þeir fengju að vera þar áfram eftir að vísa átti þeim af tjald­svæð­inu í októ­ber. Axel Ayari, faðir drengj­anna, segir lítið um svör hjá borg­inni varð­andi hvenær þeir kom­ist í við­un­andi hús­næði. „Þetta er ekk­ert líf fyrir strák­ana mína.“

Feðgarnir fengu lánað hjól­hýsi í fyrra eftir að hafa verið vísað burtu af gisti­heim­ili sem þeir höfðu dvalið á í mánuð. „Þá þurftu eig­end­urnir að losa her­bergið sem við vorum í fyrir túristana þannig að við þurftum að fara þaðan. Í sept­em­ber fékk ég lánað þetta hjól­hýsi hjá elstu dóttur minni og við komum með það hingað.“

Hjól­hýsið, sem er um 10 fer­metrar, er í Laug­ar­dal. Þar er ekki sal­erni og þurfa feðgarnir því að nota sal­ern­is­að­stöð­una á tjald­svæð­inu. „Það var mjög slæmt að þurfa að fara út til að fara á kló­settið í vonda veðr­inu í nóv­em­ber, des­em­ber og jan­úar. Það er búið að vera mjög erfitt að vera hérna í kuld­anum. Næturnar voru erf­iðar því það var svo kalt og allt hrist­ist hérna inni í rok­inu. Strák­unum líður ekki vel. Þeir vilja ekki vera hér og eru mjög lítið hér.“

Forðast að …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Lovísa Baldursdóttir skrifaði
    Frábært hjá ykkur að vekja athygli á þessu máli. Vona að þið fylgið því eftir. Þið eruð eina von þessara drengja.
    0
  • MK
    Margrét Kristjánsdóttir skrifaði
    Ef ég er " innskráð" af hverju er lokað á mig?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár