Þingmaður Sjálfstæðisflokks hnakkreifst við hóp kennara

Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi skóla­stjóri, hvatti kenn­ara til að hrista af sér hlekk­ina og hafna „elít­unni“ í spjall­hópi á Facebook. „Ertu móðguð, gæti ekki verið meira sama,“ svar­aði hann þegar kenn­ari sagði hann tala niður til kenn­ara­stétt­ar­innar.

Þingmaður Sjálfstæðisflokks hnakkreifst við hóp kennara
Jón Pétur Zimsen Kennarar í Facebook-hópi sögðu þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks frekar til­heyra „elít­unni“ en þeir sjálfir. Mynd: Golli

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks gagn­rýndi „mennta­el­ítu“ og sagði ákveð­inn hóp hafa grimm tök á stétt­inni og ákveða hvað sé ásætt­an­legt skóla­starf og hvað ekki. Þetta kom fram í rimmu hans við hóp kenn­ara á Facebook-síð­unni Skóla­þró­un­ar­spjallið á föstu­dag.

Umræðan hófst fyrir helgi eftir að Jón Pétur Zimsen, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og fyrr­ver­andi skóla­stjóri Rétt­ar­holts­skóla og Mela­skóla, birti mynd­band á TikTok þar sem hann kall­aði eftir því að ein­kunnir yrðu aftur gefnar í tölum en ekki bók­stöfum. Bætti hann því við, lík­lega í gríni, að kenn­arar elsk­uðu að gefa nem­end­unum ein­kunn­ina „drullu­sokkur“.

Ragnar Þór Pét­urs­son, kenn­ari og fyrr­ver­andi for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, gagn­rýndi mynd­bandið í spjall­hópnum. „Birtist þá ekki mennta­mála­ráð­herra­efni flokks­ins í stuttu mynd­bandi hvers inn­tak er að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé á móti bók­stafa­ein­kunnum (sem nóta bene voru skrifuð inn í námskrá í …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Maðurinn er fífl."
    5
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Það er eitthvað að hjá Jóni. Nú ætti einhver sem stendur honum nærri að setjast með honum og ræða við hann
    16
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Jón Pétur er með ákveðna hæfileika sem nýtast vel í dag í markaðskerfi athyglinnar, hann er athyglissjúkur og er alveg sama hvort athyglin er jákvæð eða neikvæð, bara að hann fái hana.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár