Ríkið taki helming vínflöskunnar í áfengisgjald

Áfengis­gjald hækkar um 3,7 prósent um áramótin. Víninn­flytj­andi segir breytinguna koma verst út fyrir láglaunafólk en í sumum tilfellum rennur meira en helmingur af innflutnings­verði vínflösku í áfengis­gjaldið.

Þór Hinriksson
Þór Hin­riks­son Vín­inn­flytj­andi segir stærri aðila betur í stakk búna til að bregð­ast við hækkun áfeng­is­gjald en þá minni á mark­aðnum. Mynd: Golli

Samkvæmt fjár­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar hækka krónutölu­skattar um 3,7 prósent um áramótin í samræmi við verðbólgu. Þar með hækkar áfengis­gjaldið sömuleiðis en víninnflytjandi segir breytinguna hafa mest áhrif á láglaunafólk og að smærri aðilar í bransanum standi höllum fæti til að bregðast við henni.

Félag atvinnu­rekenda hefur gagnrýnt að ríkið hækki gjöldin með þessum hætti og sagt að hækkunin stuðli að áfram­haldandi verðbólgu og verðbólgu­væntingum. „Eins og félagið hefur bent þinginu á áður, eru áfengis­skattar á Íslandi lang­hæstir í Evrópu,“ segir í umsögn félagsins við fjár­laga­frumvarpið.

„ Ég þarf að halda sama verði þó að ég sé að borga hærra áfeng­is­gjald“
Þór Hin­riks­son
vín­inn­flytj­andi

Bent er á að skatt­lagning á áfengi sé tugum prósentum hærri en í þeim samanburðar­löndum sem skatt­leggja áfengi mest. Lýðheilsu­sjónarmið sem snúi að því að draga úr neyslu áfengis réttlæti ekki þennan mun „Hefur sú skatt­píning …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Aumingja maðurinn! Ég vona að þessi hækkun, verði til þess að kaupendum fækki, það er best fyrir einstaklingana og heilsu þeirra. Hvernig væri að ríkið hækkaði líka tóbak í öllum sínum myndum?
    0
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    "Verst fyrir láglaunafólk?" Jú, ef fólk telur vín til lífsnauðsynja þá er auðvitað slæmt að það sé dýrt. En einhvern veginn fæ ég mig ekki til að vorkenna vínkaupendum. "Verð að segja það."
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár