Pútín lofar Indlandi „óslitnu“ flæði olíu

„Rússland er áreið­an­legur birgir olíu, gass, kola og alls þess sem þarf til þró­unar orku­mála á Indlandi,“ sagði Pútín við Modi eftir við­ræður leið­tog­anna tveggja í dag. Banda­ríkja­stjórn hefur þrýst mikið á inversk stjórn­völd að hætta að kaupa olíu af Rússum.

Pútín lofar Indlandi „óslitnu“ flæði olíu
Leið­tog­arnir Heimsókn Pútíns til Indlands er sú fyrsta frá því að Rússar réð­ust af fullum þunga inn í Úkraínu. Ind­verjar gripu tæki­færið þegar Evr­ópu­þjóðir drógu og síðar stöðv­uðu nær alfarið olíu­kaup af Rússum og hófu stór­felldan inn­flutn­ing á rúss­neskri orku. Mynd: Alexander KAZAKOV / POOL / AFP

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, sagði í dag að hann væri reiðu­bú­inn að halda áfram „óslitnum send­ingum“ á elds­neyti til Indlands, á sama tíma og stjórn­völd í NýjuDD­elí sæta miklum þrýst­ingi frá Banda­ríkj­unum um að hætta olíu­kaupum frá Rúss­landi.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, lagði í ágúst á refsi­tolla upp á 50 pró­sent á flestar ind­verskar vörur og vís­aði til áfram­hald­andi olíu­kaupa Indverja frá Rúss­landi – sem skapa tekjur sem stjórn­völd í Washington halda fram að hjálpi til við að fjár­magna stríðið í Úkraínu.

Narendra Modi for­sæt­is­ráð­herra, sem tók á móti Pútín á leið­toga­fundi í Nýju Delí þar sem orku-, varnar- og við­skipta­mál eru í brennid­epli, þakk­aði rúss­neska leið­tog­anum fyrir „stað­fasta holl­ustu hans við Indland“.

Pútín, sem er í sinni fyrstu heim­sókn til Indlands frá því stríðið í Úkraínu hófst, fékk mót­töku með rauðum dregli, heið­ursverði og 21 fall­byssu­skoti.

„Rússland er áreið­an­legur birgir olíu, gass, kola …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár