Alkóhólismi rændi heilsu hennar vegna meðvirkni

Helga Ósk­ars­dóttir var þjökuð af and­legri og lík­am­legri van­líðan vegna alkó­hól­isma. Samt var það ekki hún sem mis­not­aði áfengi eða önnur vímu­efni, heldur var hún orðin virki­lega veik af með­virkni. Hún var ekki nema fer­tug en leið eins og gam­alli konu. Hún leit­aði sér hjálpar, náði bata og hefur aldrei verið frísk­ari, 73 ára, þriggja barna móðir og sex barna amma.

Alkóhólismi rændi heilsu hennar vegna meðvirkni
Sáu móður sína örmagna Börn Helgu segja ástandið á fjöl­skyld­unni hafa batnað þegar hún leit­aði sér hjálpar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Helga Ósk­ars­dóttir, fyrr­ver­andi áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá SÁÁ, lýsir því að hún hafi verið orðin svo veik af með­virkni að hún hafi aftengst eigin til­finn­ingum, með þeim afleið­ingum að hún vissi ekki lengur hvernig sér leið.

Með­virknin var einnig farin að valda lík­am­legri van­líðan, en hún var til dæmis með nær stöðuga maga­verki. „Ég var með stöðuga verki hér og þar um lík­amann. Til dæmis með svo mikla vöðva­bólgu að það var erfitt að hreyfa höf­uðið, sér­stak­lega á morgn­ana. Ég var ekki orðin fer­tug en mér leið eins og gam­alli konu.“ Hún var upp­burð­ar­lítil, kvíðin og þung­lynd. Þrátt fyrir alls kyns kvilla sem drógu úr lífs­gæðum hennar, gat hún ekki fært líðan sína í orð. Líf hennar sner­ist um að reyna að bjarga mann­inum sem var veikur alkó­hólisti og vera til staðar fyrir börnin sín þrjú. Í því ástandi hafi hún ekki leitt hug­ann að sinni …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Frábær og vel lýsandi grein. Alkóhólismi drepur allar eðlilegar tilfinningar. Þegar hlýjan er horfin, er lítið eftir,ef nokkuð😪
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár