„Frábært að lifa lífinu eins og maður er“

Katla Sif Ægis­dóttir hlaut gull­verð­laun í 50 metra skrið­sundi á Special Olympics í sumar. Katla Sif, sem er 23 ára, býr hjá for­eldrum sínum en stefnir á að fara í sjálf­stæða búsetu með vin­konu sinni fljót­lega. Henni finnst „dálítið hræði­legt“ að fóstrum sé eytt ef líkur eru taldar á Downs- heil­kenni hjá barn­inu og hefur hún upp­lifað for­dóma á eigin skinni.

„Þetta er ekki eini hund­ur­inn sem við höfum átt,“ segir Katla Sif Ægis­dóttir um Border Collie-tík­ina Kríu, sem er spennt yfir því að Katla Sif sé komin með gest að morgni dags. „Við áttum tvo aðra hunda. Þeir eru núna bara uppi á himnum. Þeir hétu Simbi og Tesla. Litlu systur minni lang­aði í Teslu þannig að við fengum okkur bara hvolp.“

Katla Sif geispar eilítið yfir morg­un­hress­ing­unni, góm­sætum snúðum úr bak­arí­inu, enda vakn­aði hún klukkan átta þrátt fyrir að vera í sum­ar­fríi. „Ég ákvað að stilla klukk­una á átta til að gera mig til­búna,“ segir hún. „Oft gleymi ég mér og er fram á nótt að horfa á þætt­ina mína.“ Þætt­irnir hennar eru sjúkra­hús­dra­mað Grey´s Anatomy. Og hún er ekk­ert að horfa í fyrsta skipti. „Ég er búin að horfa á það svona þús­und sinnum. Ég horfi aftur og aftur og aftur,“ segir Katla Sif bros­andi um upp­á­halds­þætt­ina …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigríður Jónsdóttir skrifaði
    Frábæt viðtal, sem og önnur viðtöl og umfjöllun í blaðinu
    0
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Æ ég hélt að fólk væri búið að læra að tala beint við viskiptavin, hver sem hann/hún er, það vantar betri þjálfun til starfsmanna í verslunum og á obinberum stöðum sem veita einhverskonar þjónustu. Svo kristalstært að við erum mismunandi en manneskjur.
    0
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    Svona fram koma sem stúlkan lýsir á hvergi að viðgangast hef líka sjálf orðið fyrir vondum fordómum sem ekki er um talandi ídag
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Líf með Downs

„Ég safna grafskriftum“
ViðtalLíf með Downs

„Ég safna graf­skriftum“

Flestir Kefl­vík­ingar þekkja Davíð Má Guð­munds­son sem er 41 árs bor­inn og barn­fæddur Kefl­vík­ingur. Bróðir Davíðs segir hann með vin­sælli mönnum í Reykja­nesbæ og að bæj­ar­búar stoppi til að spjalla við hann þegar hann er á ferð­inni. Davíð er mik­ill safn­ari og safnar til að mynda laga­textum, krossum og graf­skriftum. Hann er söng­elskur og hefur tekið lagið með MC Gauta og Sölku Sól.
„Mikilvægast er að hann fær að vera með“
ViðtalLíf með Downs

„Mik­il­væg­ast er að hann fær að vera með“

Sólný Páls­dóttir segir ekki hafa hvarflað að henni þegar Hilmir Sveins­son sonur hennar lá fyrir tólf árum í hita­kassa á Land­spít­al­anum að hann ætti eftir að verða fót­bolta- og körf­bolta­strákur. Hún segir mik­il­vægt að Hilmir hafi alltaf fengið að vera með í íþrótta­starf­inu í heimabæ þeirra, Grinda­vík og í gegnum íþrótt­irnar hafi hann eign­ast trausta vini.
„Fólk með Downs heilkenni getur lifað innihaldsríku lífi“
FréttirLíf með Downs

„Fólk með Downs heil­kenni getur lifað inni­halds­ríku lífi“

Fyrr á þessu ári var talið að síð­asta barnið með Downs-heil­kenni væri fætt á Íslandi en þá hafði ekk­ert barn með heil­kennið fæðst í rúm tvö ár. Síðan þá hafa hins vegar tvær stúlkur fæðst með Downs-heil­kenni. Sér­fræð­ingar segja þrýst á verð­andi mæður að fara í skimanir á með­göngu og að rang­hug­myndir ríki um líf með auka­litn­ing­inn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár