FIFA þrýstir á félög að greiða Rússum þrátt fyrir viðskiptaþvinganir

Þréttán knatt­spyrnu­fé­lög fengu afmark­aðan og skýran 45 daga frest til að greiða van­goldnar kaup­greiðslur vegna leik­manna­kaupa til rúss­neskra félaga ella yrðu þau bönnuð frá félaga­skiptum í þremur félaga­skipta­gluggum.

FIFA þrýstir á félög að greiða Rússum þrátt fyrir viðskiptaþvinganir
Pressa FIFA, undir for­sæti Gianni Infantino, hefur þrýst á félög innan vébanda alþjóð­legu knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar að greiða rúss­neskum félögum það sem þau skulda fyrir leik­manna­kaup, þrátt fyrir að það gangi gegn alþjóð­lega sam­þykktum efna­hags­legum þving­unum. Mynd: Mikhail KLIMENTYEV / SPUTNIK / AFP

FIFA hefur á und­an­förnum árum beitt knatt­spyrnu­fé­lög í Evrópu þrýst­ingi til að inna af hendi van­goldnar greiðslur vegna leik­manna­kaupa til rúss­neskra félaga – jafn­vel þegar alþjóð­legar þving­anir hafa hindrað greiðslur til Rúss­lands.

Þetta kemur fram í nýrri rann­sókn rann­sókn­ar­mið­ils­ins Follow the Money (FTM), sem byggir á úrskurðum FIFA Football Tribunal og málum sem ratað hafa til Íþrótta­mála­dóm­stóls­ins.

Síðan 2022 hefur FIFA-dóm­stóll­inn tekið fyrir þrettán mál þar sem félög á Englandi, Ítalíu, Hollandi, Ísrael og Sviss voru kærð fyrir van­goldnar greiðslur vegna leik­manna­kaupa eftir að bankar lok­uðu á milli­færslur til Rúss­lands. Samkvæmt FTM fengu félögin skýran 45 daga frest til að greiða ella yrðu þau bönnuð frá félaga­skiptum í þremur félaga­skipta­gluggum.

Rannsókn FTM dregur fram að með þessum úrskurðum sé FIFA í reynd að grafa undan alþjóð­legum refsi­að­gerðum sem snúa að rúss­neskum eignum og fjár­málum. Þessar þving­anir voru fyrst inn­leiddar eftir inn­limun Krím­skaga árið 2014 og hertar …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Næst fær Pútín friðarverðlaun FIFA með sama áframhaldi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár