Aðalsteinn segist hafa gefið framboðsorðrómi undir fótinn

Aðal­steinn Leifsson, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og vara­þing­maður, seg­ist hafa gefið því undir fót­inn að hann íhug­aði fram­boð til að sjá hvort það væri vilji og eft­ir­spurn eftir sér. Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata seg­ist stefna á fram­boð en íhugar samt næstu skref.

Aðalsteinn segist hafa gefið framboðsorðrómi undir fótinn
Skoðar málið Aðal­steinn, sem starf­aði sem rík­is­sátta­semj­ari um hríð áður en hann tók stökkið í póli­tík, seg­ist vera að íhuga fram­boð í borg­inni. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Aðal­steinn Leifsson, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra og vara­þing­maður Við­reisnar, seg­ist hafa ýtt undir umræðu um að hann væri að íhuga fram­boð í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Það hafi hann gert til að kanna hvort eft­ir­spurn væri eftir sér í borg­ar­málin. Þetta kom fram í Viku­lok­unum á Rás 1 í dag.

Aðal­steinn, sem var á lista Við­reisnar í Reykja­vík fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar, hefur verið sterk­lega orð­aður við fram­boð í leið­toga­próf­kjöri flokks­ins sem fram fer á nýju ári. Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, núver­andi odd­viti, til­kynnti í haust að hún ætl­aði sér ekki að leiða list­ann að nýju.

„En ég er líka í spenn­andi verk­efnum þar sem ég er núna“

Aðal­steinn er annar tveggja ein­stak­linga sem helst hefur verið pískrað um að séu að und­ir­búa fram­boð, en auk hans hefur Björg Magn­ús­dóttir, rit­höf­undur og fjöl­miðla­kona og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður í borg­ar­stjóra­tíð Einars Þor­steins­sonar Fram­sókn­ar­manns, líka verið orðuð við fram­boð.

Gefið undir fótinn

„Aðal­steinn, ert þú á leið í borg­ar­stjórn?“ spurði þátta­stjórn­andi Viku­lokanna undir lok þátt­ar­ins í morgun. Eftir tölu­verðan for­mála um hvað borg­ar­mál væru mik­il­væg og spenn­andi sagð­ist Aðal­steinn vera að velta því fyrir sér.

„Já, það er rétt að mitt nafn hefur verið nefnt í þessu sam­hengi og ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn að þá hef ég aðeins gefið því undir fót­inn til að sjá hvort það væri vilji og eft­ir­spurn eftir því að ég færi í þetta verk­efni,“ sagði Aðal­steinn. „Og ég er núna að velta því fyrir mér.“

Verk­efnin sem séu fram undan í borg­inni segir hann að séu spenn­andi. „En ég er líka í spenn­andi verk­efnum þar sem ég er núna.“

Aðal­steinn tók svo undir með Júlíusi Viggó, for­manni Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, um að það væri heiður að vera nefndur í sam­hengi við fram­boð í borg­inni. Júlíus hafði þó alveg tekið fyrir það að vera sjálfur á leið í borg­ar­málin, fyrr í þætt­inum. „Ég hef engan hug á því að fara í fram­boð á næst­unni,“ sagði hann.

ÁhugasömDóra Björt seg­ist hafa áhuga á að halda áfram í borg­ar­stjórn.

Dóra vill fram en er enn undir feldi

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í borg­inni, var skýr um að hún vildi halda áfram en sagð­ist samt vera að íhuga næstu skref. Nýverið bauð hún sig fram til að gegna for­mennsku í Pírötum. Hún dró þó fram­boð sitt til baka áður en til atkvæða­greiðslu kom.

Alex­andra Briem, sem vermdi annað sæti lista Pírata fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, tap­aði svo í for­manns­kjör­inu fyrir fram­kvæmda­stjóra borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins, Oktavíu Hrund Guðrúnar Jóns. Nokkurt kurr hefur verið í flokknum eftir for­manns­kjörið og virð­ist það vera að hafa áhrif á ákvörðun Dóru Bjartar.

„Mig langar til þess að halda áfram í borg­inni. Mér finnst ég hafa þá yfir­sýn og reynslu sem þarf til þess að skila árangri hratt og örugg­lega fyrir borg­ar­búa,“ sagði hún. „Ég get hugsað mér að halda áfram og stefni að sjálfu sér að því að óbreyttu, en ætla samt að gefa mér tíma til að meta næstu skref aðeins betur.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár