Uppljóstrari segir yfirmenn í breska hernum hafa hylmt yfir stríðsglæpi

Upp­ljóstr­ari úr sér­sveit breska hers­ins segir að yfir­menn hafi ekki haft áhuga á ábend­ingum um að stríðs­glæpir væru framdir í Afganistan. Þetta kemur fram í nýbirtum vitn­is­burði fyrir breskri rann­sókn­ar­nefnd.

Uppljóstrari segir yfirmenn í breska hernum hafa hylmt yfir stríðsglæpi
Missti trú Upp­ljóstr­ar­inn sagði í skýrslu sinni að yfir­menn hefðu hindrað til­raunir hans til að „gera hið rétta“. Mynd: Shutterstock

Yfirmenn í sér­sveit breska hers­ins hylmdu yfir hugs­an­lega stríðs­glæpi í Afganistan, að því er fyrr­ver­andi hátt­settur liðs­for­ingi sagði í vitn­is­burði sínum hjá rann­sókn­ar­nefnd um fram­ferði sér­sveita hers­ins í land­inu. Vitn­is­burð­ur­inn er meðal gagna sem voru birt á þriðju­dag.

Í fram­burði sínum heldur liðs­for­ing­inn því fram að tveir til­teknir fyrr­ver­andi yfir­menn í sér­sveit hers­ins hafi ekki brugð­ist við áhyggjum af því að liðs­menn hers­ins hefðu framið ólög­legar aftökur á meðan sveit­irnar störf­uðu í Afganistan fyrir meira en ára­tug síðan.

Rannsaka þriggja ára tímabil

Rann­sókn­ar­nefndin, sem hóf störf árið 2023 við Kon­ung­lega dóm­stól­inn í London, á að rann­saka ásak­anir um fram­ferði sér­sveit­anna í Afganistan á árunum 2010 til 2013, þar á meðal morð á konum og börnum.

„Ég hafði miklar áhyggjur af því sem mig grun­aði sterk­lega að væru ólög­legar aftökur á sak­lausu fólki,“ sagði upp­ljóstr­ar­inn, sem er aðeins þekktur sem N1466, í vitn­is­burði sínum.

…
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er segin saga þegar glæpamaðurinn rannsakar egin verk er ekki von á ábyggilegri niðurstöðu. Svo erum við hissa á því að hefndin verði í því formi sem við þekkjum svo vel og köllum hryðjuverk til að glæpavæða hana.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár