Guðmundur ekki á þingi heldur sjúkrahúsi

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son mennta­mála­ráð­herra var ekki til svara í þing­inu í morgun. Stjórn­ar­and­staðan vildi fá að spyrja hann út í mál skóla­stjóra Borg­ar­holts­skóla. Heitar umræður sköp­uð­ust um fjar­ver­una og þá stað­reynd að upp­lýst hafi verið um sjúkra­hús­legu ráð­herra í umræðum um fund­ar­stjórn.

Guðmundur ekki á þingi heldur sjúkrahúsi

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son mennta­mála­ráð­herra var ekki til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í þing­inu í morgun. Hann hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir að fram­lengja ekki skipun skóla­stjóra Borg­ar­holts­skóla, sem sjálfur hefur lýst sér sem fórn­ar­lambi póli­tískra hefnda ráð­herra Flokks fólks­ins.

Til stóð að Guð­mundur Ingi yrði til svara í fyr­ir­spurna­tíma í dag, en þegar þing­fundur hófst hafði nafn hans verið tekið af lista þeirra ráð­herra sem beina mætti fyr­ir­spurn til.

Eitthvað stórvægilegt að

Hóf umræð­unaÓlafur Adolfs­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hóf umræð­una um fund­ar­stjórn for­seta, sem for­seta þótti þó ekki snúa með neinum hætti að fund­ar­stjórn sinni.

„Allir sem lesa þessa umfjöllun, þeim verður ljóst að það er eitt­hvað stór­vægi­legt að hjá ráð­herrum Flokks fólks­ins,“ sagði Ólafur Adolfs­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, þegar hann hóf umræðu um fund­ar­stjórn for­seta þings­ins. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­seti þings­ins, minnti hann um leið á að það væri ekki óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurn­ar­tími byrj­aður. „Forseti vill benda hátt­virtum þing­mönnum á að mér heyr­ist ekki að það sem hér er um rætt varði fund­ar­stjórn for­seta,“ sagði hún.

Það kom þó ekki í veg fyrir að Ingi­björg Isaksen, þing­flokks­for­maður Fram­sóknar, kom næst í púlt og tal­aði um sama mál.

„Við viljum búa í sam­fé­lagi þar sem við getum verið heið­ar­leg og við getum unnið okkar vinnu án þess að hafa áhyggjur af því að stjórn­völd séu að skipta sér af. Þetta er áhyggju­efni og ég vil hvetja hæstv. for­seta til að beita sér fyrir því að hér séu fag­leg vinnu­brögð og að hér getum við treyst því að skóla­meist­arar fái t.d. að sinna sínu starfi,“ sagði hún. 

Við því brást Þórunn einnig og sagði: „Forseti ítrekar orð sín um að þetta er lið­ur­inn fund­ar­stjórn for­seta.“

Tekinn af listanum

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fékk þá orðið og sagði málið einmitt snúa að fund­ar­stjórn for­seta. „Ég vek athygli á því að í gær átti sá ráð­herra að vera hér í dag til að svara óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum,“ sagði hann.

„Virðu­legi for­seti. Um leið og fréttir bár­ust af þess­ari emb­ætt­is­færslu þá fór sá ráð­herra af list­anum. Þetta snýr beint að fund­ar­stjórn for­seta. Við hljótum að fara fram á það að hér komi skýr­ingar á þessum gjörðum hæst­virtum ráð­herra.“

Þá upp­lýsti Þórunn að Guð­mundur Ingi væri á sjúkra­húsi. 

Ítrekaði orð sínÞórunn tók sjálf nokkrum sinnum þátt í umræð­unni um fund­ar­stjórn sína og upp­lýsti á end­anum um að Guð­mundur Ingi væri á sjúkra­húsi. Það dró ekki úr eft­ir­spurn eftir því að fá að stíga í pontu.

Jón Pétur Zimsen og Sigurður Örn Hilm­ars­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, sendu ráð­herr­anum bata­kveðjur úr pontu en héldu áfram að ræða um mál skóla­stjóra Borg­ar­holts­skóla.

Sem varð til þess að Þórunn tók aftur til máls og sagði: „Forseti ítrekar fyrri orð um lög­mæt for­föll hæst­virts mennta- og barna­mála­ráð­herra.“

Hver er staðgengill ráðherra?

Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, vildi þá fá svör um af hverju þing­menn hefðu ekki verið upp­lýst um for­föll ráð­herr­ans fyrr.

Langur listiJón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, þuldi upp lista af málum sem hann taldi að ork­uðu tví­mælis.

„Af hverju vorum við ekki upp­lýst um það áður en hér kom, til þess að við myndum vita að hverjum við ættum að beina spurn­ingum okkar í dag? Það er algjör­lega á ábyrgð hæst­virtrar rík­is­stjórnar að upp­lýsa ekki hver er stað­geng­ill hæst­virts ráð­herra fyrst hann er á sjúkra­húsi,“ sagði hann. 

Þá bætt­ist Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokk­inn, við lista þeirra sem tóku til máls um fund­ar­stjór­ina og rakti lista skandala sem hann taldi að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar hafi gerst upp­vísir að:

Ólög­mætar greiðslur til Flokks fólks­ins um ára­bil „sem námu senni­lega á þriðja hund­rað millj­ónum“, brott­rekstrur lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum, samn­ingur við fyrr­ver­andi vara­rík­is­sak­sókn­ara, óeðli­leg stjórn­sýsla gagn­vart rík­is­lög­reglu­stjóra, sam­skipti Ingu Sæland við skóla­stjór­ann í Borg­ar­holts­skóla út af týndum Nike-skóm.  

Jón bætti því svo við að atvinnu­vega­nefnd, sem hann situr í, hafi óskað eftir að fá atvinnu­vega­ráð­herra, Hönnu Katrínu Frið­riks­son, á fund í júlí. „Ráðherra á sam­kvæmt þing­skap­a­lögum að mæta innan þriggja daga eftir að nefndin óskar eftir því. Hún kom um miðjan nóv­em­ber.  Inn­við­a­ráð­herra hefur ekki svarað kalli nefnd­ar­innar núna í nokkrar vikur um að koma og ræða ráð­staf­anir á 5,3% pott­inum.“

Benti á forsætisráðherra

Guð­laugur Þór fékk þá annað sinn orðið og ítrek­aði að bata­kveðjur til Guð­mundar Inga. „Svo að það fari ekki fram hjá neinum þá vissi ég ekki að við­kom­andi hæst­virtur ráð­herra væri á sjúkra­húsi og ég óska honum alls hins besta og sendi inni­legar bata­kveðjur,“ sagði hann.

Það væri hins vegar nauð­syn­legt fyrir stað­gengil ráð­herr­ans að vera til svara.

„Svo er kannski ástæða til þess að benda á það að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra er einnig til svara hér í dag“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir
for­seti Alþingis

Þórunn brást við því með því að benda á að inn­við­a­ráð­herra væri stað­geng­ill mennta- og barna­mál­ráð­herra og að henni hafi sann­ar­lega verið bætt á lista þeirra sem væru til svara í fyr­ir­spurn­ar­tím­anum.

„Svo er kannski ástæða til þess að benda á það að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra er einnig til svara hér í dag,“ sagði Þórunn. 

Fyrsti stjórn­ar­lið­inn, Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins og flokks­bróðir Guð­mundar Inga, steig þá í pontu til að ræða fund­ar­stjórn­ina og sak­aði stjórn­ar­and­stöð­una um að mis­nota þann lið fund­ar­ins. 

Hvar er til­kynn­ingin?Sigríður Andersen, þing­kona Mið­flokks­ins, furð­aði sig á því að upp­lýs­ingar um sjúkra­hús­vist ráð­herra kæmu í umræðum um störf þings­ins en ekki í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Engin tilkynning á vef

Sigríður Andersen, þing­kona Mið­flokks­ins, brást við með bata­kveðjum til Guð­mundar Inga, en furð­aði sig á því að fjar­vera hans hafi verið til­kynnt í þessum umræðum. 

„Það er leitt að heyra af inn­lögn hæst­virts mennta- og barna­mála­ráð­herra á spít­ala. Ég geri hins vegar athuga­semdir við það að inn­lögn sem slík eða aðstæður hæst­virts ráð­herra sem slíks séu til­kynntar með þessum hætti hér í þing­sal undir þessum lið, fund­ar­stjórn for­seta,“ sagði hún.

Engin til­kynn­ing hafi verið birt á vef Stjórn­ar­ráðs­ins um sjúkra­húsinn­lögn­ina né að annar ráð­herra hefði tekið við verk­efnum hans. „Ég hvet hæstv. for­seta til að koma þeim skila­boðum á fram­færi við Stjórn­ar­ráðið að hafa meiri form­festu í þessum efnum.“

Vildi ekki „óþarfa dramatík“

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra steig þá næst í pontu og furð­aði sig á umræð­unni. 

Óvið­ráð­an­legtKristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði að það væri óvið­ráð­an­legt sú staða kæmi upp að ráð­herrar for­föll­uð­ust.

„Ég get alveg tekið undir það, það er ekki gott að við séum að ræða heilsu­far ein­stakra aðila í þess­ari pontu. Við vissum ekki þegar við komum inn í þennan þing­sal í morgun og í fund­ar­stjórn að þetta yrði til umræðu með þessum hætti,“ sagði hún og upp­lýsti að veik­indi Guð­mundar Inga væru ekki alvar­leg.

„Ég vil bara að það komi fram svo að það sé ekki óþarfa drama­tík um stöðu ráð­herra. En það er vissu­lega svo að hann þurfti að fara á spít­ala í nokkra daga. Það er búið að gera mjög eðli­legar ráð­staf­anir vegna þess. Svona aðstæður koma upp. Þetta er óvið­ráð­an­legt. Hefðum við getað tekið hring­inn hér og til­kynnt þing­heimi þetta fyrir þing­fund? Kannski, en vitið þið, stundum bara teikn­ast málin svona upp.“ 

„Þetta var um fund­ar­stjórn for­seta“
Diljá Mist Ein­ars­dóttir
þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks

Þetta fór öfugt ofan í ein­hverja stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn og þegar Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks, fékk orðið minnti hún á eft­ir­lits­hlut­verk þings­ins gagn­vart ráð­herrum.

„Mig langar til að taka undir bata­kveðjur til hæst­virts barna- og mennta­mála­ráð­herra og það eru slík ósmekk­leg­heit af hæst­virtum for­sæt­is­ráð­herra að dylgja um það að við séum hér að ræða heilsu­far hæst­virts ráð­herra, ósmekk­leg­heit,“ sagði Diljá. 

„Mig langar til að hvetja for­seta til að hlut­ast til um að við­kom­andi ráð­herrar verði hér til svara um leið og færi gefst. Þetta var um fund­ar­stjórn for­seta.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár