Mynd: Golli

Veiktist alvarlega í kjölfar hótana, smánunar og útskúfunar

Auðun Georg Ólafsson segir valda­mikla menn hafa hótað því að það myndi hafa afleið­ingar fyrir hann og hans nán­ustu ef hann gerði alvöru úr því að þiggja ekki starf frétta­stjóra Útvarps, eftir hávær mót­mæli vorið 2005. Frétta­stjóra­málið segir hann hafi á tíma­bili kostað sig geð­heils­una. „Smætt­unin og smán­unin sátu lengi í mér,“ segir hann og kveðst samt ekki bera kala til nokk­urs manns.

Að morgni föstu­dags­ins 1. apríl árið 2005 gekk Auðun Georg Ólafsson inn í Útvarps­húsið í Efsta­leiti. Hann var nýr frétta­stjóri Útvarps­ins og þetta var fyrsti dagur hans í starfi. Síðar sama dag sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist ekki sjá sér fært að þiggja starfið. 

Það sem gerð­ist í milli­tíð­inni er flestum þeim sem voru í Útvarps­hús­inu þennan dag enn í fersku minni. Atburða­rás sem hafði stig­magn­ast dag­ana á undan náði hámarki. 

Auðun Georg hefur ekki áður tjáð sig opin­ber­lega um það hvernig atburða­rásin blasti við honum og hvaða áhrif málið hafði á líf hans lengi á eftir. Hann segir að sér líði vel í dag en að frétta­stjóra­málið sitji þó enn í sér. Nú eru rúm 18 ár síðan hann var ráð­inn frétta­stjóri. Hann ákvað stuttu síðar að taka ekki við starf­inu og lét þau orð ber­ast en kveðst þá hafa sætt hót­unum valda­mik­illa manna. Auðun …

Kjósa
232
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Ömurlegt RUV
    0
  • VR
    Vilhjalmur Rafnsson skrifaði
    Takk fyrir að deila þinni reynslu Auðunn, þetta hefur verið martröð. Það sýnir sálrænan styrk að hafa unnið sig yfir á þann stað sem þú ert á í dag.
    5
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Takk fyrir að segja frá þessrai reynslu, ég vona að fólk sem fór fram með offorsi í þessu máli hafi kjark og auðmýkt til að viðurkenna sín mistök og hvatvísi, í stað þess að ganga þegjandi í burtu. það þarf kjark til að játa hlutdeild í fljótfærni og árásum og biðjast fyrirgefningar af hjarta.
    2
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Takk fyrir að koma fram með þína frásögn! Og takk fyrir að varpa ljósi á að svona framkoma getur auðveldlega drepið fólk! Takið til ykkar skömmina sem eiga hana skilið og hugsið ykkur um áður en þið ráðist á fólk með kjafti og klóm aftur!
    5
  • Thordis Arnadottir skrifaði
    Áfram Auðunn 💪♥️🤘… að lifa þetta af er algjör sigur! Þvílík meðferð.
    Ég held að það sé engin önnur ríkisstofnun þar sem starfsmenn finnst þeim eiga “stofnunina” og ráðningar blessaður af þeim. Ég stór efast um að fólkið í Byggðastofnun láti svona 🥸
    4
  • GJ
    Guðrún Jónsdóttir skrifaði
    Áhrifamikil frásögn sem snertir mig.
    11
  • Kári Jónsson skrifaði
    Auðunn Georg kom standandi í lappirnar út úr þessum hildarleik, sem skiptir mestu máli.
    9
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Óskiljanleg framganga ríkisstofnunar.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár