„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“

Egill Helgason er á tíma­mótum. Hann er hættur með Silfrið sem lengi var kennt við hann sjálfan, helsta póli­tíska umræðu­þátt lands­ins. Hann seg­ist í upp­hafi hafa skolfið eins og lauf í vindi þegar hann var í sjón­varpi en elski nú að vera í beinni. Egill kynnt­ist eig­in­konu sinni á nekt­ar­stað og þau eign­uð­ust son ári síðar. Hann rifjar upp þegar ölv­aður þing­maður mætti til hans í settið og þegar hann fleygði vatns­könnu út í sal í reiði­kasti. Egill hefur háð sína glímu við kvíða og þung­lyndi, og upp­lifði sinn versta tíma þegar Trump var kos­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

„Ég vona að ég eigi aldrei eftir að sökkva svo djúpt aftur“
Tvennir tímar Egill hefur lifað tím­ana tvenna í fjöl­miðlum, hefur bæði starfað þar sem aug­ljós­lega var verið að beita fjöl­miðlum í ákveðnu stríði og svo þar sem hann hafði algjört frelsi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Einna verst varð­andi það að vera ekki í Silfrinu lengur er að fá ekki að vera í beinni útsend­ingu,“ segir Egill Helgason, fjöl­miðla­maður með meiru. „Ég fæ adrena­línkikk út úr því. En maður er líka oft mjög þreyttur á eftir,“ segir hann. 

Á dög­unum var til­kynnt að Egill væri hættur sem umsjón­ar­maður Silf­urs­ins á RÚV. Þátt­ur­inn var í mörg ár kenndur við hann sjálfan – Silfur Egils – og fór fyrst í loftið á Skjá einum árið 1999. Silfur Egils færð­ist svo yfir á Stöð 2 áður en Egill fór með þátt­inn á Rík­is­út­varpið. Útsend­ingum var tíma­bundið hætt árið 2013 áður en hann sneri aftur árið 2017, þá ein­fald­lega undir heit­inu Silfrið. Hann er þó hvergi nærri hættur í sjón­varpi. Hann verður áfram með bók­mennta­þátt­inn Kiljuna og er með ýmis önnur verk­efni í bígerð.

Egill hefur hlotið fjölda Eddu­verð­launa fyrir þætti sína, til að mynda sem sjón­varps­maður árs­ins. …

Kjósa
259
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BS
    Bylgja Sigurjónsdóttir skrifaði
    popúlísminn er að rústa heimsmyndinni. Allt á hvolfi og rugli . Skil þig vel Egill Helgason.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár