Uppgjör að handan: „Ég fann að Davíð hafði horn í síðu minni“

Karl Sig­ur­björns­son biskup, lýsir andúð og kulda frá fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra lands­ins. Sér­stak­lega í tengslum við gagn­rýni kirkj­unnar á kjör fátækra, en ekki síst vegna eld­fimrar smá­sögu sem varð að frétta­máli.

Uppgjör að handan: „Ég fann að Davíð hafði horn í síðu minni“
Davíð Oddsson á kristni­há­tíð Biskup Íslands, Karl Sig­ur­björns­son, situr til hliðar og fylgist með for­sæt­is­ráð­herra halda ræðu á Kristni­há­tíð árið 2000. Mynd: mbl/Árni Sæberg

Karl Sig­ur­björns­son biskup segir það hafa andað köldu milli sín og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra upp úr alda­mótum. Fyrir því hafi verið ýmsar ástæður, allt frá gagn­rýni bisk­ups á upp­gang við­skipta­lífs­ins og stjórn­völd sem hlúðu ekki nægi­lega að hinum fátæku. En ekki síst eld­fimrar smá­sögu eftir séra Örn Bárð Jónsson sem dró dilk á eftir sér.

Út er komið minn­ing­ar­brot Karls Sig­ur­björns­sonar, fyrr­ver­andi bisk­ups, og nefn­ist Skrifað í sand. Veröld ann­ast útgáfu bók­ar­innar en Karl lést í febr­úar á síð­asta ári.

Samkvæmt útgef­anda fannst hand­ritið eftir and­lát hans og fylgdu því engin sér­stök fyr­ir­mæli. Var það gefið út í sam­starfi við fjöl­skyldu Karls. Bókin er óvægin og hisp­urs­laust upp­gjör við óvenju við­burða­ríkt tíma­bil þjóð­kirkj­unnar en ekki síst fróð­legt yfir­lit yfir ævi bisk­ups. Hér er fjallað um sam­band kirkj­unnar og átök við stjórn­völd.

Kjósa
87
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Það var troðið á þessa Kristnihátíð og mjög gott veður.. Ef fleiri hefðu komið hefði veri kaos..
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár