Lífsgleðin jókst eftir streptókokka í heila

Jóhannes Hrefnu­son Karlsson er lífs­glaður að eðl­is­fari. Það kann að hljóma ein­kenni­lega, en eftir að hann fékk strept­ókokka­sýk­ingu í heil­ann jókst lífs­gleðin enn frekar. Hann var í dái í níu daga eftir að hann gekkst undir aðgerð á heila. Hans helsta áskorun í end­ur­hæf­ing­unni er málstol sem hann tekst á við af miklu æðru­leysi. Jói er fær blöðru­lista­maður og finnst gaman að gleðja aðra og horfir björtum augum til fram­tíðar.

Í heilanum er allt „perfect“ Málstol er helsta áskorun Jóhannesar Hrefnusonar Karlssonar eftir streptókokkasýkingu í heila. Lífið hefur samt ekki breyst mikið að hans mati. „Málstol er þannig að ég tala skringilega en í heilanum, þá bara, er allt „perfect“.

Jóhannes Hrefnu­son Karlsson var fullur til­hlökk­unar þegar hann lagði af stað til Washington D.C. um miðjan febr­úar til að sækja ráð­stefnu blöðru­lista­manna, and­lits­mál­ara og töfra­m­anna. Jóhannes, eða Jói eins og hann er gjarnan kall­aður, er einn fremsti blöðru­lista­maður á Íslandi og þetta var í þriðja sinn sem hann sótti ráð­stefn­una. Eða það var planið. 

Jói, sem er nýorð­inn 21 árs, hefur starfað hjá fyr­ir­tæk­inu Blaðrar­an­um um ára­bil, en Jói sótti nám­skeið hjá Daníel Hauks­syni, eig­anda Blaðrar­ans, í blöðru­dýra­gerð fyrir sex árum. Áhuginn á blöðru­list og öðrum sirku­slistum kvikn­aði þó fyrr hjá Jóa en þegar hann var í 7. bekk fór hann á sum­ar­nám­skeið í sirku­slistum. „Ég fór bara einn og fannst þetta mjög kúl,“ segir Jói. Í fram­hald­inu tókst honum að smita vini sína í Háteigs­skóla af sirku­sá­hug­anum og fóru þeir saman á nám­skeið þar sem þeir lærðu meðal ann­ars að „juggla“, dansa á línu og ýmsa loft­fim­leika. Jói …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár