Fjöldi þekktra vörumerkja undir grun í rannsókn á þrælkunarvinnu á Ítalíu

Sak­sókn­ari á Ítalíu hefur óskað eftir ítar­legum gögnum frá fjölda þekktra tísku­húsa. Er það hluti af rann­sókn þeirra á und­ir­verk­tökum sem fram­leiða lúx­usvörur þeirra. Grunur leikur á að kín­verskir rík­is­borg­arar hafi verið gabb­aðir í þrælk­un­ar­vinnu.

Fjöldi þekktra vörumerkja undir grun í rannsókn á þrælkunarvinnu á Ítalíu
Gögn Gucci og fleiri tísku­hús sem um ræðir, sem þó eru ekki sjálf til rann­sóknar, voru beðin um að afhenda gögn um aðfanga­keðjur sínar, svo sem innri úttektir. Mynd: Shutterstock

Gucci, Prada, Versace og Yves Saint Laurent eru meðal 13 lúx­usvöru­merkja sem grunuð eru um að hafa nýtt sér und­ir­verk­taka sem not­færðu sér kín­verska verka­menn á Ítalíu, sam­kvæmt skjölum sem sak­sókn­ari í Mílanó birti í morgun.

Í beiðni um upp­lýs­ingar sem AFP hefur séð gaf sak­sókn­ar­inn til kynna að lúxustöskur, veski og fatn­aður hefðu fund­ist við hús­leitir á ítölskum verk­stæðum þar sem kín­verskir verka­menn voru ráðnir á fölskum for­sendum í þrælk­un­ar­vinnu.

Vöru­merkin – sem eru ekki form­lega til rann­sóknar – voru beðin um að afhenda gögn um aðfanga­keðjur sínar, svo sem innri úttektir.

Skjölin varða Gucci, Yves Saint Laurent og Alex­ander McQueen – sem eru hluti af frönsku lúx­ussam­steyp­unni Kering – auk Givenchy, sem er hluti af franska ris­anum LVMH.

Í skjöl­unum eru einnig að finna nöfn tengd Prada Group og nýjasta vöru­merki þeirra, Versace, auk Ferragamo, Pinko, Dolce & Gabbana, Missoni, Off-White, Coccinelle og íþrótta­vöruris­ans Adidas.

Sak­sókn­arar í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár