Musk vill leggja niður ESB eftir að X fékk sekt

Sam­fé­lags­mið­ill­inn X, sem er í eigu rík­asta manns heims, var sektaður um 120 millj­ónir evra á föstu­dag fyrir að brjóta staf­rænar reglur sam­bands­ins. Nú kallar Elon Musk eftir að sam­bandið verði leyst upp.

Musk vill leggja niður ESB eftir að X fékk sekt

Elon Musk svar­aði Evr­ópu­sam­band­inu fullum hálsi eftir að það sektaði sam­fé­lags­mið­il­inn X, sem er í eigu tækni­jöf­urs­ins, og sagði við 230 millj­ónir fylgj­enda sinna á miðl­inum að leggja ætti Evr­ópu­sam­bandið niður.

Í kjöl­far umfangs­mik­illar rann­sóknar sem talin var próf­steinn á stað­festu ESB í eft­ir­liti með stórum tækni­fyr­ir­tækjum var sam­fé­lags­mið­ill­inn, sem er í eigu rík­asta manns heims, sektaður um 120 millj­ónir evra á föstu­dag fyrir að brjóta staf­rænar reglur sam­bands­ins.

Banda­rísk stjórn­völd undir for­ystu Donalds Trump gagn­rýndu sekt­ina harð­lega, en Trump hafði sem for­seti verið sam­mála Musk um umdeilda við­leitni til að fækka alrík­is­starfs­mönnum og skera niður útgjöld, áður en þeim sinn­að­ist.

Musk tjáði sig sjálfur eftir að sektin var til­kynnt og birti á X-reikn­ingi sínum: „Það ætti að leggja Evr­ópu­sam­bandið niður og skila full­veld­inu aftur til ein­stakra landa, svo að rík­is­stjórnir geti betur komið fram fyrir hönd þjóða sinna.“

Þegar not­andi end­ur­birti færslu Musks svar­aði hann: „Ég meina það, ekk­ert grín.“

„Ég elska Evrópu, en ekki skrifræð­is­skrímslið sem ESB er,“ bætti hann við í annarri færslu.

Sektin gegn X var sú fyrsta sem fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins lagði á sam­kvæmt lögum um staf­ræna þjón­ustu (DSA) vegna efnis.

Fram­kvæmda­stjórnin sagði X sekan um að brjóta gegn gagn­sæ­is­skyldu DSA.

Brotin fela meðal ann­ars í sér vill­andi hönnun á „bláa hak­inu“ fyrir að því er virð­ist stað­festa reikn­inga og að hafa ekki veitt rann­sak­endum aðgang að opin­berum gögnum, sagði hún.

X hafði heldur ekki sýnt nægi­legt gagn­sæi varð­andi aug­lýs­ingar sínar, bætti fram­kvæmda­stjórnin við.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Garðarsson skrifaði
    Það getur verið áskorun að þurfa að fara að lögum og reglum eins og aðrir. EM er orðinn eins og forsetinn, yfirdrifinn og sjálfhverfur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár