Stærðfræðikennari flúði stríðið og starfar sem hótelþerna: „Við viljum aðeins hærri laun“

Stærð­fræði­kenn­ari sem flúði stríðið í Úkraínu starfar nú sem hót­el­þerna, þar sem hún fær 320 þús­und krónur útborg­aðar í ábyrgð­ar­stöðu. Yuliia Yedynak segir launin almennt duga fyrir leigu og mat, en ef hún þarf að kaupa eitt­hvað verði hún að borða í vinn­unni til að ná endum saman.

<span>Stærðfræðikennari flúði stríðið og starfar sem hótelþerna:</span> „Við viljum aðeins hærri laun“

Yuliia Yedynak, 45 ára hót­el­þerna á Foss­hótel Lind, til­heyrir þeim hópi sem kjara­deilur Eflingar snú­ast um. Í sam­tali við Heim­ild­ina segir hún að launin dugi fyrir leigu og mat, en ef til þess kemur að hún þarf að kaupa eitt­hvað annað þurfi hún að borða í vinn­unni til að ná endum saman. „Síminn minn er brot­inn en ég get ekki keypt mér nýjan. Ef ég ætla að kaupa eitt­hvað get ég ekki eytt pen­ingum í mat og þarf að borða á hót­el­inu. Þar get ég fengið morg­un­mat og kvöld­mat, sem ég er þakk­lát fyrir.“ 

Hún fær um 320 þús­und krónur útborg­aðar hvern mánuð, sem er lækkun frá því sem áður var, þegar hún hóf störf. Síðasta sumar var sú breyt­ing gerð, segir hún, að henni var bannað að vinna meira en átta tíma vinnu­dag. Áður hafi hún unnið hálf­tíma lengur. „Þetta var bara hálf­tími á dag, en það safn­ast …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli að þeir hjá Íslandshótelum hafi ekki tekið skrifstofuna og millistjórnenda ganginn með þegar þeir reiknuðu út þessi meðallaun,jafnvel líka hótelstjórana?
    0
  • "Fyrir þá sem vinna í tólf tíma væru meðallaunin 750 þúsund krónur á mánuði."
    Sko, ég er búsettur í Noregi sl 20 ár og er yfirmaður í minni deild - en ef spurningin væri bara um laun þá myndi ég nú bara hoppa í það eins og skot. Þyrfti samt að læra hvernig á að þröngva saman dýnu og sængurfötum...
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár