Oft ódýrara að keyra en að taka Flugrútuna

Við samanburð á bílastæða­gjöldum við Kefla­víkur­flugvöll og miðaverði í Flug­rútuna kemur í ljós að í mörgum tilfellum er ódýrara að keyra sjálfur í flug. Þetta á einkum við ef nokkrir ferðast saman.

Samkvæmt nýlegri rannsókn Þórodds Bjarna­sonar, prófessors í félags­fræði við Háskóla Íslands, nýtir um 90 prósent lands­manna sér einka­bílinn til að komast til og frá Kefla­víkur­flugvelli. 

Þegar kostnaður við það að leggja við flug­völlinn er borinn saman við miðaverð í Flug­rútuna má sjá að ferðist nokkrir saman getur það í mörgum tilfellum borgað sig að keyra upp á völl. 

Tæp átta þúsund fyrir báðar leiðir í Flugrútunni

Miðaverð aðra leið í Flug­rútuna hljóðar upp á 3.990 krónur. Það gera tæplega átta þúsund krónur báðar leiðir. Samkvæmt verðskrá Isavia kostar 2.490 kr. á dag að leggja í langtíma­stæði þeirra, en eftir átta daga lækkar verðið niður í 1.950 kr. á dag og svo enn aftur eftir 16 daga.

Sé ferða­lagið meira en þrír dagar er því hagkvæmara fyrir einstakling að taka Flug­rútuna frekar en að leggja bílnum í stæði.

Þetta er meðal þess sem kemur fram …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár