2023: Ár nýrra ógna og möguleika

Ímynd­un­ar­afl mann­kyns víkk­aði út á árinu 2023 eftir því sem ný tækni opn­aði nýja mögu­leika og nýir atburðir sömu­leiðis sýndu verstu hliðar fólks. Gervi­greind skák­aði mann­fólki í sköpun og stuðn­ingur við ein­ræð­istil­burði óx.

2023: Ár nýrra ógna og möguleika
Óvel­komin? Fólk á flótta hefur áhrif á stjórn­málin í Banda­ríkj­unum og Evrópu. Andstaða við þau ýtir undir upp­risu öfga­sinn­aðra hægri­manna, sem margir hverjir hafa aðra sýn á fjöl­ræði og frelsi en hefur verið ráð­andi í meg­in­straums­stjórn­málum. Repúblikanar vilja stöðva stuðn­ing við Úkraínu nema þeir fái í gegn hert inn­flytj­enda­lög og við­búnað til að hindra komu fólks úr suðri. Hér sést flótta­fólk á bökkum Rio Grande sem aðskilur Banda­ríkin og Mexíkó. Mynd: AFP

Árinu 2023 er senn að ljúka og þegar litið er yfir alþjóða­sviðið eru vopnuð átök, efna­hags­erf­ið­leikar og nátt­úru­ham­farir meðal því helsta sem stendur upp úr að ári liðnu. Miklar fram­farir í tækni­legri getu gervi­greindar og árangur í aðgerðum gegn lofts­lags­málum eru einnig meðal helstu stak­steina árs­ins, sem og gangur lýð­ræð­isafla víðs vegar um heim­inn, bæði upp og niður. 

Gereyðing á Gasa

Stríðs­á­tök voru sann­ar­lega ein­kenn­andi fyrir árið en Ísrael varð fyrir blóð­ugri árás Hamas í byrjun októ­ber og fór í kjöl­farið í heift­ar­lega sprengju­her­ferð og inn­rás á Gasa­strönd­ina sem búið hefur til ham­fara­á­stand í mann­falli almennra borg­ara, eyði­legg­ingu og hruni inn­viða sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Átökin eru þó aðeins þau nýj­ustu í langri röð stríða og ófriðar, sem teygja sig allt að 75 ár aftur í tím­ann, þegar Ísra­els­ríki var stofnað, og enn lengra aftur þegar horft er til reglu­legra átaka milli ann­arra aðila á svæð­inu. Hin …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist 2024?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár