Sigurður Ingi: „Við ráðum leikandi við þennan kostnað“

Eftir blaða­manna­fund um hús­næð­is­stuðn­ing við Grind­vík­inga sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra að kostn­að­ur­inn við stuðn­ing­inn væri langt í frá að vera högg fyrir rík­is­sjóð. „Við ráðum leik­andi við þetta, jafn­vel þó það væri stærra,“ segir hann.

Sigurður Ingi: „Við ráðum leikandi við þennan kostnað“
Inn­fluttar hús­ein­ingar Inn­við­a­ráð­herra kynnti í dag ákvörðun um að meðal ann­ars flytja inn til­búnar hús­ein­ingar sem bæði væri komið upp á Suð­ur­nesjum sem og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Mynd: Heimildin / AMÓ

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra seg­ist ekki vita með vissu hversu margar hús­næð­is­ein­ingar verði fluttar inn vegna hús­næð­is­þarfar Grind­vík­inga, en lík­leg­ast væri um tvö hund­ruð ein­ingar að ræða í fyrsta áfanga af mörgum. „Það væru ein­hver hund­ruð sem þyrfti að flytja inn í ein­hverjum áföngum. Síðan verðum við að taka skref í takti við það hvernig nátt­úran hagar sér [...] Þetta þurfum við að meta og það getur breyst aftur þannig að við verðum til­búin til hins, að panta inn þær ein­ingar sem þarf.“

Þetta stað­festi hann eftir blaða­manna­fund um hús­næð­is­stuðn­ing við Grind­vík­inga en sér­stakur starfs­hópur er að sögn Sigurðar að störfum við að skoða slíkan inn­flutn­ing. Aðspurður að því af hverjum slíkar hús­næð­is­ein­ingar yrðu keyptar, segir hann það í skoðun. „Það er verið að skoða þarfa­grein­ingar, gæðin og fram­boð. Síðan verður lagst yfir það með jafn­ræði í útboð­unum og nálg­unum hvernig það yrði gert.“

Það eru engin slík til­boð í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gudmundur Audunsson skrifaði
    Allan starfstíma ríkisstjórnarinnar hefur hún gert nákvæmlega ekkert í húsnæðismálum. Þúsundir ef ekki tugir þúsunda leigjenda hafa barsit í bökkum í fjölda ára. Nú kemur góðu heilli í ljós að það var alltaf hægt að taka á þessu. Hvers vegna var ekki gripið inn miklu fyrr? Hvers vegna fór ríkisstjórnin ekki í stórfellda uppbyggingu á óhagnaðardrifnu húsnæði fyrir löngu?
    0
    • Sigurður Úlfarsson skrifaði
      Bæði Bjarg og Bríet hafa orðið til á undanförnum árum og er það vel. Það virðist hins vegar alveg vera rými til að gera enn betur.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár