Samskip krefja Eimskip um bætur

Flutn­inga­fyr­ir­tækið Samskip ætlar að krefja flutn­inga­fyr­ir­tækið Eimskip um bætur vegna meintra „ólög­mætra og sak­næmra athafna“ þess gagn­vart Sam­skipum. Jafn­framt hafa Samskip kært ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að leggja á fyr­ir­tækið 4,3 millj­arða króna í sam­ráðs­máli.

Samskip krefja Eimskip um bætur
Nánir Helstu per­sónur og leik­endur í sam­ráðs­máli Samskips og Eimskipa. Samstarf þeirra end­aði með sektum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu sem sam­tals nema á sjötta millj­arð króna. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Samskip telja að Eimskip hafi lagst í „mjög alvar­lega atlögu“ að Sam­skipum með því að lýsa því yfir í sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið að Eimskip hafi átt í sam­ráði við Samskip. Það gerði Eimskip árið 2021 og við­ur­kenndi brot sín á sam­keppn­is­lögum. 

„Hefur Eimskip með þessu rang­lega sakað félagið, sem og núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn félags­ins og Eimskips, um ólög­mæta og eftir atvikum refsi­verða hátt­semi,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­skipum. 

Þau hafa falið lög­manns­stof­unni Mörkinni að sækja bætur frá Eimskips vegna þess sem þau telja „ólög­mætar og sak­næmar athafnir“ Eimskips gagn­vart Sam­skipum. 

Ekki hefur verið ákveðið hversu háar bætur Samskip muni krefja Eimskip um en lög­menn Samskipa hafa sent for­stjóra Eimskips kröfu­bréf. Þá hafa þeir jafn­framt óskað þess að fá að vita hvaða stjórn­endur eða stjórn­ar­menn Eimskips komu að ákvörðun um að und­ir­gang­ast sátt­ina við Sam­keppn­is­eft­ir­litið. …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Eigum við að rifja upp söluna á Búnaðarbankanum, persónur og leikendur og sækja gögnin sem aldrei voru sótt. Aðkoma íslendinga að Dekhill og fleira hefur aldrei komið fyrir augu almennings en hætt við að ansi mörgum yrði brugðið ef þeir sæu hversu ósvífnir menn hafa verið gengum tíðina. Líka fjölmiðlamenn.

    Svo þetta útspil er með þeim súrreslískari ósvinnu sem sést hefur og lætur Samherjaliðið líta út sem viðvaninga í svona málum.

    nú væri fróðlegt að sjá raunverulegu fórnarlömbin skutla inn skaðabótakröfum á bæði skipafélögin... en hætt við að þá fyki í þingmenn.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

Samfélagslegt tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða
FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs
FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár