Skipti máli Flutn­ingar á dag­blaða­pappír voru meðal mik­il­væg­ustu þátt­anna í flutn­ingi Samskipa frá Norður-Ameríku til Íslands á árunum 2009 til 2011. Mynd: Shutterstock

Mútur og samráð í skipaflutningi með dagblaðapappír

Samskip er sagt hafa greitt kanadískum miðlara mútur gegn því að dagblaða­pappír fyrir íslensk fyrirtæki væri fluttur með Samskipum. Þetta kemur fram í skýrslu Samkeppnis­eftirlitsins um samráð skipa­félaganna þar sem rakið er hvernig greiðslunum var haldið leyndum fyrir innflytj­endum hér á landi. Samskip og miðlarinn neita.

Prentsmiðjur Morgun­blaðsins og Frétta­blaðsins eru meðal fjölmargra stórra íslenskra innflytjenda sem sögð eru hafa orðið fyrir ólöglegu samráði Eimskips og Samskipa, samkvæmt niður­stöðu Samkeppnis­eftirlitsins sem sektaði Samskip um 4,2 milljarða króna í síðustu viku. Áður hafði Eimskip gengist við brotum sínum og undir­gengist sátt og greiðslu 1,5 milljarða sektar fyrir hið ólöglega samráð og villandi og ranga upplýsinga­gjöf til Samkeppnis­eftirlitsins.

Í atvika­lýsingum af þeim hluta samráðsins sem beindist gegn íslensku dagblaða­prentsmiðjunum, vekur Samkeppnis­eftirlitið líka athygli á því sem kallaðar eru mútu­greiðslur í tengslum við þau viðskipti og hvernig lögð var áhersla á að leyna þeim fyrir viðskipta­vinum hér á Íslandi.

Þúsundir tonna af pappír

Umræddar mútu­greiðslur eru sagðar hafa átt sér stað á árunum 2009–2011. Í miðju málsins er framkvæmda­stjóri kanadísks flutnings­miðlunar­fyrirtækis, sem miðlar kaupum og flutningum á dagblaða­pappír. Lands­prent, sem prentaði Morgun­blaðið, og Ísafoldar­prentsmiðja, sem prentaði Frétta­blaðið, nýttu sér þjónustu miðlarans í viðskiptum við pappíra­fram­leiðandann Abitibi …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hafa einhverjir viðskiptavinir þessara skipafélaga sloppið undan samráðinu? Varla hafa þeir minni notið góðs af okrinu á þeim stóru.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Lykil­maður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyris­sjóðs

Fyrr­verandi forstjóri Samskipa, Pálmar Óli Magnússon, sem lýst er sem arkitekt og lykil­manni í samráðs­brotum fyrir­tækisins í úrskurði Samkeppnis­eftirlitsins, ætlar ekki að víkja úr stjórnar­formanns­stóli eins stærsta lífeyris­sjóðs landsins. Hann var skipaður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lögbrotin. SA með skipan hans til skoðunar.

Mest lesið undanfarið ár