Pálmar neitar að víkja - FME bað um breyttar reglur 2019

Sú furðu­lega staða er nú uppi í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu að þar situr stjórn­ar­for­maður sem nýtur hvorki stuðn­ings atvinnu­rek­enda, sem skip­uðu hann í stjórn, eða laun­þega sem skipa hinn helm­ing stjórn­ar­innar. SA segir reglur banna að hann verði rek­inn. FME bað um að þeim yrði breytt fyrir nokkrum árum, án árang­urs.

Situr sem fastast
Situr sem fast­ast Pálmar Óli Magn­ús­son situr að því er virð­ist í umboði sjálfs síns eins í stjórn Birtu líf­eyr­is­sjóðs. SA segir reglur koma í veg að þau víki honum úr stjórn, en FME hafði hvatt til þess að þeim reglum væri breytt fyrir fjórum árum síðan. Það gerð­ist hins vegar ekki. Mynd: Dagar

Allt frá því um mitt ár 2019 hefur legið fyrir að reglu­verk um það hvenær og hvernig megi aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­manna í líf­eyr­is­sjóðum, sé óskýrt. Þá sendi Fjár­mála­eft­ir­litið sér­stakt erindi til líf­eyr­is­sjóða og óskaði eftir því að sjóð­irnir end­ur­skoð­uðu reglur sínar svo skýrt væri við hvaða aðstæður væri rétt­læt­an­legt að full­trúar atvinnu­rek­enda eða laun­þega í stjórnum sjóð­anna, yrðu settir af. 

„Óskýrar sam­þykktir hvað varðar að gera ferli við val og mögu­lega aft­ur­köllun á umboði stjórn­ar­manna er ógagn­sætt,“ sagði í bréfi FME sem sent var líf­eyr­is­sjóðum lands­ins þar sem hvatt var til þess að regl­urnar yrðu skýrðar þannig að þær myndu „taka mið af sjón­ar­miðum um góða stjórn­ar­hætti og tryggja að sjálf­stæði stjórna líf­eyr­is­sjóða verði ekki skert“.

Sú stað­reynd að stjórn­endur Birtu líf­eyr­is­sjóðs hafi ekki brugð­ist við þessu er nú ástæða þess að Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) telja sig ekki geta aft­ur­kallað skipan eins full­trúa síns sem nú er stjórn­ar­for­maður …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Vægast sagt einkennilegt að SA geti ekki skipt út fulltrúum sínum í stjórn lifeyrissjóðs eins og VR gerði hér um árið. Eitthvað í þessu gengur ekki upp.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Glæpamenn standa með öðrum glæpamönnum.
    -2
    • Eyþór Dagur skrifaði
      Ertu að kalla FME glæpamenn? Ég skil ekki svona komment.
      0
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Getur stjórnin ekki sett hann af og kosið nýjan?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
FréttirSamráð skipafélaga

Mútur og sam­ráð í skipa­flutn­ingi með dag­blaða­pappír

Samskip er sagt hafa greitt kanadískum miðl­ara mútur gegn því að dag­blaða­pappír fyrir íslensk fyr­ir­tæki væri fluttur með Sam­skipum. Þetta kemur fram í skýrslu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­ráð skipa­fé­lag­anna þar sem rakið er hvernig greiðsl­unum var haldið leyndum fyrir inn­flytj­endum hér á landi. Samskip og miðl­ar­inn neita.

9 mín. lestur

FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár