Þurfti að vernda stöðu Samskipa sem „cash cow“ í kjölfar veðkalla vegna Kaupþingsbréfa

Ólafur Ólafsson eign­að­ist Samskip á skraut­legan hátt á tíunda ára­tugnum og varð síðar næst stærsti ein­staki eig­andi Kaup­þings­banka. Snemma á árinu 2008 var hann í miklum vand­ræðum vegna veð­kalla sem leiddu til þess að Kaupþing þurfti að taka á sig mark­aðs­á­hættu af bréfum Ólafs. Sam­keppn­is­eft­ir­litið rekur upp­haf sam­ráðs Samskipa og Eimskip til þessa tíma.

Í byrjun árs 2008 var lausa­fjár­kreppa og efna­hags­horfur víða um heim, meðal ann­ars hér­lendis, fóru hratt versn­andi. Árin á undan, sem oft voru kölluð góð­æris- eða útrás­ar­árin á tylli­dögum á Íslandi, höfðu ein­kennst af því að ýmis fyr­ir­tæki skuld­settu sig mikið til að fjár­festa erlendis eða í óskyldum greinum. Þannig hátt­aði um íslensku skipa­fé­lögin. Eimskip var í miklu brim­róti, meðal ann­ars vegna mik­illar fjár­fest­ingar í flug­rekstri og fjár­fest­ingum í Bret­landi og Hollandi. Á end­anum skil­aði þessi staða því að Eimskip tap­aði rúm­lega 96 millj­örðum króna á árinu 2008. 

For­stjóri Eimskips, Baldur Guðnason, og stjórn­ar­for­maður þess, Magnús Þor­steins­son, sem stýrði Avion Group stærsta eig­anda félags­ins, létu báðir af störfum sitt hvoru megin við ára­mótin 2008 vegna þeirrar alvar­legu stöðu sem upp komin var innan Eimskips. Gylfi Sig­fús­son tók við sem for­stjóri og Sindri Sindra­son sem stjórn­ar­for­maður. 

Hjá Sam­skipum var …

Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Með bankasölunni sem hófst fyrir aldarfjórðungi, hefur óhept græðgisvæðing verið einknnandi fyrir íslenska athafnamenn. Þeim tókst það ótrúlega að sölsa undir sig gríðarlegar eignir á kostnað fjöldans.
    Venjulegt fólk glaptist á að kaupa hlutabréf í ýmsum félögum sem síðar urðu einskis virði í höndunum á þessum skelfilegu mönnum. Þeir útnýttu sér traust fjöldans, urðu moldríkir meðan fjöldinn tapaði sparnaði sínum og jafnvel eignum.
    Er komið að skuldaskilum? Það þarf að fara betur í saumana á öllum þessum fjárglæframálum
    4
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Prýðileg grein. Ólafur gaf Framsóknarflokknum Hverfisgötu 33 sem hýsir höfuðstöðvar flokksins í Reykjavík. Nú er það hús er til sölu. Kallast það ekki peningaþvætti?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samráð skipafélaga

Samfélagslegt tjón af samráði skipafélaganna metið á 62 milljarða
FréttirSamráð skipafélaga

Sam­fé­lags­legt tjón af sam­ráði skipa­fé­lag­anna metið á 62 millj­arða

Kostn­aður íslensks sam­fé­lags vegna ólög­legs sam­ráðs Eimskips og Samskipa er met­inn 62 millj­arðar króna í nýrri grein­ingu Analytica. Stærstur hlut­inn er sagður hafa lent á neyt­endum vegna hærri kostn­aðar á inn­fluttum vörum og þeim sem skulda verð­tryggð lán. „Dýrkeypt og hrika­leg aðför að neyt­endum,“ segir for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna.
Lykilmaður í samráði víkur ekki úr stjórn lífeyrissjóðs
FréttirSamráð skipafélaga

Lyk­il­maður í sam­ráði víkur ekki úr stjórn líf­eyr­is­sjóðs

Fyrr­ver­andi for­stjóri Samskipa, Pálmar Óli Magn­ús­son, sem lýst er sem arki­tekt og lyk­il­manni í sam­ráðs­brotum fyr­ir­tæk­is­ins í úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, ætlar ekki að víkja úr stjórn­ar­for­manns­stóli eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Hann var skip­aður í stjórn nokkrum dögum áður en hann var yfir­heyrður vegna gruns um lög­brotin. SA með skipan hans til skoð­unar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár