Þingmenn VG vilja að stjórn Íslandsbanka víki og ný stjórn ráði bankastjóra

Í það minnsta tveir þing­menn Vinstri grænna eru þeirrar skoð­unar að Banka­sýslan eigi að krefj­ast þess á hlut­hafa­fundi í Íslands­banka að stjórn bank­ans segi af sér. Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður flokks­ins, lýsir þess­ari skoðun og Orri Páll Jóhanns­son sam­flokks­maður hennar tekur undir.

Þingmenn VG vilja að stjórn Íslandsbanka víki og ný stjórn ráði bankastjóra
Verður að starfa í umboði nýrrar stjórnar Ný stjórn Íslands­banka, sem Banka­sýslan á að gera kröfu um að verði kosin á hlut­hafa­fundi, á að ráða banka­stjóra. Ekki gengur upp að banka­stjóri starfi án umboðs frá nýrri stjórn, að mati Stein­unnar Þóru. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Banka­sýslan á, fyrir hönd íslenska rík­is­ins, að gera kröfu um að stjórn Íslands­banka víki. Ný stjórn á síðan að ráða nýjan banka­stjóra sem starfar í hennar umboði. Að því búnu á að leggja Banka­sýsl­una niður.

Þetta er álit tveggja þing­manna Vinstri grænna, og senni­lega fleiri. Í það minnsta telur Steinunn Þóra Árna­dóttir að svo sé en hún birti í gær færslu á Facebook þar sem inn­takið er það sem hér er nefnt að ofan. Þeirri færslu deildi annar þing­maður Vinstri grænna, Orri Páll Jóhanns­son, með orð­unum „Steinunn Þóra súmmerar þetta vel!“

„Steinunn Þóra súmmerar þetta vel!“
Orri Páll Jóhanns­son
um orð sam­flokks­konu sinnar

Í færsl­unni sagði Steinunn Þóra að skýrsla fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og vís­aði þar til sáttar stofn­un­ar­innar við Íslands­banka vegna mis­ferla við sölu hlutar rík­is­ins í bank­anum, væri mik­ill áfell­is­dómur yfir starfs­mönnum Íslands­banka sem sáu um fram­kvæmd­ina á söl­unni. Það hafi því vakið furðu Stein­unnar Þóru að Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, skyldi enn halda sig fast við þá skoðun að um hafi verið að ræða „far­sælasta hluta­bréfa­út­boð í Íslands­sög­unni“. Aug­ljós­lega gæti það ekki verið í ljósi þess að lög voru brotin.

„Ég myndi ekki vilja vera sá bankastjóri“

Steinunn Þóra segir enn fremur að skilj­an­legt sé að Birna Ein­ars­dóttir hafi þegar vikið úr starfi sem banka­stjóri, en ljóst sé af lestri skýrsl­unnar að hún beri ekki ein ábyrgð. „Fyrir liggur að hlut­hafa­fundur verður hald­inn í bank­anum síðar í sumar. Það liggur að sjálf­sögðu bein­ast við að Banka­sýslan sem á þeim fundi fer með umboð rík­is­ins geri kröfu um afsögn stjórnar og að nýr banka­stjóri í bank­anum sé ráð­inn í umboði nýrrar stjórnar.“

Spurð hvort hún sé með þessu að krefj­ast þess að Jóni Guðna Ómars­syni, sem ráð­inn var banka­stjóri Íslands­banka í stað Birnu aðfar­arnótt mið­viku­dags, verði sagt upp störfum af nýrri stjórn og annar ráð­inn í hans stað segir Steinunn Þóra svo ekki vera. „Í raun­inni ekki heldur finnst mér skipta máli að banka­stjóri sé ráð­inn í umboði nýrrar stjórnar.“

Og það gæti í praxís verið Jón Guðni Ómarsson, ef að ný stjórn myndi svo vilja?

„Ég er ekki að úti­loka það.“

Þá með ein­hverjum end­ur­skoð­unum á starfs­kjörum jafn­vel?

„Ný stjórn myndi fara í það.“

Þú ert sem sagt að segja að ótækt sé að banka­stjóri hafi ekki umboð frá nýrri stjórn?

„Ég myndi ekki vilja vera sá banka­stjóri alla vega.“

„Þetta eru mín orð en ég held að þetta sé nú meira og minna í takti við sýn ann­arra“
Steinunn Þóra Árna­dóttir
aðspurð um hvort hún sé að lýsa skoðun þing­flokks VG

Spurð hvort hún sé með þessum mál­flutn­ingi vera að tala fyrir hönd ann­arra þing­manna Vinstri grænna, auk Orra, svarar Steinunn Þóra: „Þetta eru mín orð en ég held að þetta sé nú meira og minna í takti við sýn ann­arra, án þess að ég hafi borið það undir þau. Þetta eru mín orð, sem Orri tekur undir, en hafa ekki verið borin undir þing­flokk­inn.“

Klára þarf niðurlagningu Bankasýslunnar

Steinunn Þóra sagði enn fremur í færsl­unni að fara þyrfti í þá vinnu, sem for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafa þegar boðað, „um að leggja Banka­sýsl­una niður og breyta fyr­ir­komu­lag­inu kringum utan­um­hald á sölu hlutum rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum.“

Þá ítrekar Steinunn Þóra mál­flutn­ing Vinstri grænna þess efnis að ekki skuli seldir frek­ari hlutir rík­is­ins í Íslands­banka á „meðan rann­sókn þess­ara mála stendur yfir og fyr­ir­komu­lagið end­ur­skoðað.“

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    VG liðar tala mikið um allt mögulegt en eru svo vonlausir í öllu , en hvers vegna ?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár