Sagan af „far­sæl­asta hluta­fjárút­boði Íslands­sög­unn­ar“

Maður gekk undir manns hönd við að mæra útboð á 22,5 pró­senta hlut rík­is­ins í Íslands­banka fyrstu dag­ana eftir það í mars í fyrra. Þegar fór að koma upp úr kaf­inu hvernig að útboð­inu var staðið tók að þykkna upp í mörgum. Flestum jafn­vel, nema for­stjóra Banka­sýsl­unnar, sem hélt því hátt á lofti hversu frá­bær­lega hefði til tek­ist. Heim­ildin rekur hér helstu vend­ingar í mál­inu síð­ustu 15 mán­uði.

Sagan af „far­sæl­asta hluta­fjárút­boði Íslands­sög­unn­ar“
„Við­skipti árs­ins“ Fyrri salan á hlutum rík­is­ins í Íslands­banka hlaut verð­laun sem við­skipti árs­ins. Senni­lega yrðu seint veitt nein verð­laun fyrir seinni söl­una.

Íslenska ríkið fékk Íslands­banka í fangið þegar bjarga þurfti banka­rekstri í efna­hags­hrun­inu árið 2008. Síðan þá hefur oft og ítrekað verið til umræðu að óeðli­legt sé að ríkið reki banka, hvað þá tvo, eins og til­fellið var. Fyrir vikið tók Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, með stuðn­ingi sam­ráð­herra sinna í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, ákvörðun um að ríkið skyldi selja bank­ann. Og það var gert. Og end­aði með því sem sumir myndu kalla ósköpum.

Fyrra útboð í bank­anum fór fram 7. til 15. apríl 2021, í formi almenns hluta­fjár­út­boðs, þar sem ríkið seldi 35 pró­senta hlut sinn í bank­anum á 55,3 millj­arða króna. Sú sala hlaut verð­launin Við­skipti árs­ins á árlegum Við­skipta­verð­launum Innherja 2021. Verð­launum sem hafa raunar hvorki verið veitt fyrr né síðar.

Rík­is­stjórnin lýsti því yfir í fram­hald­inu að stefnt væri að því að halda áfram að losa um hlut rík­is­ins í bank­anum. Í febr­úar 2022 var birt grein­ar­gerð …

Kjósa
66
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Forsíðumynd þessarar greinar er stórfengleg, og segir svipur fyrirsætanna meira en mörg orð. Ætti að fá tilnefningu til fréttaljósmyndar ársins.
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Leyndarhyggjan gagnvar þessum málum öllum er náttúrlega algjörlega í anda stærstu skipulögðu glæpasamtaka Íslands, sjálfstæðisflokksins.
    Ef bjarN1 benediktsson og hyskið í kringum hann fer ekki að hirða pokana sína.
    Þá þarf einfaldlega að fjarlæja þau með valdi og stokka svo ærlega upp í fjölskyldu atvinnuáskriftar í öllum ráðuneytum og öðrum ríkisstofnunum.

    When the power of love overcomes the love of power, this world will see peace.
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Mjög gott yfirlit. Mín skoðun er að Benedikt Sveinsson eða fyrirtæki í hans eigu eigi rétt á að sækja um kaup eins og hver annar. En þá hefði syni hans átt að vera ljóst að hann er vanhæfur að fjalla um málið og hefði átt að stíga til hliðar um leið. Í staðinn gasprar hann um málið í sífellu sem rústsar trúverðugleika hans. Ég sé enga sönnun fyrir því að hann hafi ekki haft puttana í málinu.
    1
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Gott yfirlit um málið.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Salan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þings­ins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagn­vart hverjum og einum kaup­anda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera aug­ljóst að ekki væri hægt að fylgja hæf­is­reglum í sölu­með­ferð­inni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár