Félag Róberts seldi skuldabréf í Alvotech á 12 milljarða rétt fyrir verðhrun

Félaga­net Róberts Wessman hefur inn­leyst hagnað af sölu lyfja­verk­smiðj­unnar í Vatns­mýri á sama tíma og hluta­bréfa­verð Alvotech hefur hrunið. Árni Harð­ar­son segir að sala félags Róberts á skulda­bréfum sem það fékk sem greiðslu fyrir verk­smiðj­una sé til­viljun og teng­ist ekk­ert synjun Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi til Alvotech.

Félag Róberts seldi skuldabréf í Alvotech á 12 milljarða rétt fyrir verðhrun
Mark­aðsvirði hrynur en félag Róbert hagn­ast Mark­aðsvirði hluta­bréfa Alvotech hefur hrunið eftir synjun Banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins. Félög Róberts Wesmann inn­leysa á sama tíma hagnað upp á millj­arða króna vegna sölu á verk­smiðju til Alvotech. Mynd: Mynd: Alvotech

Íslenskt eign­ar­halds­fé­lag í eigu Róberts Wessman og við­skipta­fé­laga hans seldi tvö skulda­bréf í Alvotech, sem hægt er að breyta í hlutafé í fyr­ir­tæk­inu, fyrir rúm­lega 87 millj­ónir doll­ara, tæpa 12 millj­arða króna, rétt áður en verð­hrun varð á hluta­bréfum í fyr­ir­tæk­inu um miðjan mán­uð­inn. Salan á skulda­bréf­unum átti sér stað þann 5. og 11. apríl. Skulda­bréfin eru á gjald­daga árið 2025 en kaup­endur geta breytt þeim í hlutafé í Alvotech fyrir þann tíma. 

Verð­hrunið á bréfum Alvotech átti sér stað eftir að lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna (FDA) hafn­aði umsókn fyr­ir­tæk­is­ins um mark­aðs­leyfi fyrir lyfið Humira. Alvotech greindi frá þess­ari nið­ur­stöðu með til­kynn­ingu þann 14. apríl. Á tveimur virkum dögum hrundi mark­aðsvirði Alvotech um 170 millj­arða króna, úr 528 millj­örðum og niður í tæp­lega 360 millj­arða. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Róbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tapaði 332 milljónum krónum á dag á fyrsta ársfjórðungi
GreiningRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Alvotech tap­aði 332 millj­ónum krónum á dag á fyrsta árs­fjórð­ungi

Fjöl­margir fjár­festar, meðal ann­ars íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, hafa veðjað stórt á að Alvotech muni með tíð og tíma verða mylj­andi pen­inga­vél. Hökt hefur verið á því ferli og á síð­ustu 27 mán­uðum hefur félagið tapað um 180 millj­örðum króna. Stjórn­endur Alvotech eru hins vegar brattir og spá því að tekjur félags­ins muni allt að fimm­fald­ast milli ára.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúlletta Róberts og vitn­is­burðir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mikið álag“

Starfs­menn Alvotech lýsa vinnu­á­lag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leitað til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yfir­vinnu og fleiri málum. Vinnu­að­stæð­urnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá mark­aðs­leyfi fyrir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dreg­ist saman og sam­heita­lyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Banda­ríkj­unum og reiknað var með.
Lífeyrissjóður greiddi atkvæði gegn kaupréttum stjórnar Alvotech
FréttirRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Líf­eyr­is­sjóður greiddi atkvæði gegn kaup­réttum stjórnar Alvotech

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech hefur veitt fjórum óháðum stjórn­ar­mönnum kaup­rétti í félag­inu. Stjórn félags­ins fékk heim­ild til að veita öllum stjórn­ar­mönnum slíka kaup­rétti en þeir stjórn­ar­menn sem eru tengdir Alvotech, meðal ann­ars Róbert Wessmann og Árni Harð­ar­son hafa afsalað sér þessum kaup­réttum. Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi greiddi atkvæði gegn kaup­rétt­ar­kerf­inu.
Háskólinn hjálpaði Róberti að eignast verksmiðjuna fyrir ekkert
SkýringRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Háskól­inn hjálp­aði Róberti að eign­ast verk­smiðj­una fyrir ekk­ert

Við­skiptin með lóð­ina í Vatns­mýri þar sem lyfja­verk­smiðja Alvotech reis vöktu til­tölu­lega litla athygli fyrir ára­tug síðan. Í við­skipt­unum voru Reykja­vík­ur­borg og Háskóli Íslands hins vegar að afhenda Róberti Wessman afnot af gæðum í opin­berri eigu á silf­ur­fati, sem hann hefur síðan notað til að hagn­ast ævin­týra­lega á í gegnum lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár