Alvotech hrynur í verði í fyrstu viðskiptum – Markaðsvirðið niður um tugi milljarða

Synjun banda­ríska lyfja­eft­ir­lits­ins á mark­aðs­leyfi fyrir AVT02 líf­tækni­hlið­stæð­una í Banda­ríkj­unum sem Alvotech ætl­aði að hefja mark­aðs­setn­ingu á fyrir mitt ár hefur orskaðað verð­hrun á bréfum í félag­inu.

Alvotech hrynur í verði í fyrstu viðskiptum – Markaðsvirðið niður um tugi milljarða
For­stjóri Róbert Wessman hringir inn við­skipti með bréf í Alvotech í des­em­ber síð­ast­liðnum, eftir að félagið færði sig yfir á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands. Virðið hefur rokið upp síðan þá, og Alvotech orðið verð­mætasta félagið á mark­aðnum. Mynd: Nasdaq Iceland

Gengi bréfa í Alvotech lækk­aði um tæp­lega 22 pró­sent frá því að íslenska kaup­höllin opn­aði í morgun. Í lok dags í gær var mark­aðsvirði félags­ins 528 millj­arðar króna en var komið niður í 414 millj­arða króna um klukkan tíu í morgun. Það hafði þá lækkað um 114 millj­arða króna í fyrstu við­skiptum dags­ins. Staðan hefur aðeins skánað síðan þá, en hluta­bréfin í Alvotech hafa samt sem áður lækkað um 15,9 pró­sent það sem af er degi. Það þýðir að þau hafa misst vel yfir 80 millj­arða króna af mark­aðsvirði sínu síðan í gær.

Ástæðan er ein­föld: skömmu eftir mið­nætti í nótt greindi Alvotech frá því að mat­væla- og lyfja­eft­ir­lit Banda­ríkj­anna (FDA) hefði til­kynnt félag­inu að eft­ir­litið geti ekki veitt félagið mark­aðs­leyfi fyrir AVT02, sem líf­tækni­lyfja­hlið­stæðu við Humira. Humira er sölu­hæsta lyf heims, en langstærsti hluti söl­unnar fer fram á Banda­ríkja­mark­aði, eða um 85 pró­sent. Þar selst lyfið fyrir um 17 millj­arða dala á ári, eða um 2.300 millj­arða króna. 

Í til­kynn­ingu sem Alvotech sendi frá sér 22. des­em­ber í fyrra, þar sem greint var frá því að banda­ríska lyfja­eft­ir­litið hefði stað­fest að fram­lögð gögn hefði sýnt að kröfur um útskipti­leika AVT02 væru upp­fyllt­ar var boðað að ákvörðun um veit­ingu mark­aðs­leyfis myndi liggja fyrir 13. apríl 2023. Þann dag hækk­uðu hluta­bréf í Alvotech um 30 pró­sent. 

Ætluðu að skila hagnaði á síðari hluta ársins

Alvotech, sem tap­aði um 70 millj­örðum króna á síð­asta ári, hefur stefnt að því að skila hagn­aði á seinni hluta þessa árs. Þau áform tóku mið af því að félagið gæti hafið mark­aðs­setn­ingu á AVT02 1. júlí næst­kom­andi. Eftir tíð­indi næt­ur­innar eru þau áform í upp­námi. 

Í árs­reikn­ingi Alvotech vegna árs­ins 2022 segir að í lok síð­asta árs hafi félagið átt 66,4 millj­ónir dala, um 9,5 millj­arða króna miðað við árs­loka­gengi Banda­ríkja­dals, í lausu fé. Án frek­ari fjár­mögn­unar hefði Alvotech því ekki átt aðgengi­lega fjár­muni til að starfa lengi á árinu 2023. Félagið hefur hins vegar verið dug­legt að sækja sér slíka fjár­muni á und­an­förnum mán­uðum, á grund­velli áforma um að skila hagn­aði á síð­ari hluta yfir­stand­andi árs.

Á meðal þeirra sem hafa fjár­fest í félag­inu eru hópur inn­lendra fjár­festa sem keypti hluta­bréf í Alvotech fyrir 19,5 millj­arða króna í jan­úar. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir keyptu um þriðj­ung þeirra bréfa sem seld voru. Það þýðir að þeir hafi keypt bréf fyrir yfir sex millj­arða króna. 

Bréf allra félaga sem skráð eru á Aðal­markað Kaup­hallar Íslands sem búið er að eiga við­skipti með í dag hafa lækkað í virði, að Nova und­an­skildu sem hefur hækkað um 1,72 pró­sent. Kaup­höllin opn­aði því eldrauð í morg­unsárið. Ástæða þess að virði bréfa í Nova hefur hækkað er sú að stærsti ein­staki hlut­haf­inn í félag­inu, Nova Acquisition Holding ehf., sem átti 11,1 pró­sent hlut, seldi hann allan fyrir rúm­lega tvo millj­arða króna. Félagið er í eigu Pt. Capital frá Alaska, en fram­kvæmda­stjóri þess, Hugh Short, var felldur úr stjórn Nova á síð­asta aðal­fundi félags­ins. Hann hafði verið stjórn­ar­for­maður og sótt­ist eftir end­ur­kjöri. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár