Yfirvöld í Úkraínu rannsaka 58 þúsund stríðsglæpi rússneska hersins

Yfirvöld í Úkraínu rann­saka nú allt að 58 þús­und mann­rétt­inda­brot rúss­neska hers­ins í land­inu. Ætt­ingjar óbreyttra borg­ara sem rúss­neski her­inn hefur myrt leita nú réttar síns vegna örlaga þeirra en óvíst hvort nokkuð komi út úr þeim rann­sóknum. Sak­sókn­ar­inn sem rann­sakar stríðs­glæp­ina, Yuriy Belousov, segir að honum fall­ist hendur yfir umfangi glæpanna.

Yfirvöld í Úkraínu rannsaka 58 þúsund stríðsglæpi rússneska hersins
Brennd og afskræmd lík Eitt af þekkt­ari dæm­unum um voða­verk rúss­neska hers­ins í Bucha eru fjöldamorðin í borg­inni Bucha. Rúss­neski her­inn er tal­inn hafa drepið 419 óbreytta borg­ara þar í lok febr­úar og byrjun mars í fyrra. Rúss­arnir brenndu sum af lík­unum en sum þeirra var búið að aflima. Mynd: afp

Yfirvöld í Úkraínu telja að rúss­neski her­inn hafi framið allt að 58 þús­und stríðs­glæpi í land­inu frá upp­hafi stríðs­ins í Úkraínu árið 2014 og eftir að inn­rás Rússa í landið hófst í febr­úar í fyrra. Þetta eru tölur frá því í lok síð­asta árs. Meðal þess sem er til rann­sóknar eru fjöl­mörg morð rúss­neska inn­rás­ar­hers­ins á úkra­ínskum rík­is­borg­urum, pynt­ingar og nauðg­anir.

Úkra­ínska leyni­þjón­ustan (SBU) rann­sakar málin en yfir rann­sókn­inni á stríðs­glæpum Rússa er sér­stakur sak­sókn­ari, Yuriy Belousov, sem er skip­aður af rík­is­sak­sókn­ar­anum í Úkraínu, Iryna Vene­diktova. Undir Yuriy Belousov starfa svo 70 sak­sókn­arar sem sinna þurfa öllum þessum málum. 

„Ég get ekki lýst til­finn­ingum mínum á prenti um hversu umfangs­mikið þetta er.“
Yuriy Belousov,
sak­sókn­ari sem stýrir rann­sóknum á stríðs­glæpum Rússa

Umfjall­anir um morð og aðra stríðs­glæpi Rússa í Úkraínu hafa verið að birt­ast í erlendum fjöl­miðlum síð­ast­liðna mán­uði, meðal ann­ars í banda­ríska tíma­rit­inu The New Yorker og greinum rúss­nesku …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Við megum aldrei gleyma þessu. Rússland undir stjórn núverandi valdhafa má aldrei verða þjóð á meðal þjóða. Þeir þurfa að fá sömu meðferð og Þýskaland nasismans fékk eftir 1945.
    3
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þetta er endurtekning á Tétseníu nema nú er skalinn miklu stærri og þjóðin sem ráðist er á er stærri og getur betur bitið frá sér. Þeir sem halda að Pútín og kerfið í kringum hafi breyst þekkja ekki fortíðina. Hann hefur verið böðull frá fyrsta degi sem hann hafði völd til að drepa fólk. Ég vil benda á bókina Blowing up Russia sem að Alexander Litvinenko kom að ritun á, sú bók er sennilega ein af stóru ástæðum þess að hann var myrtur með geislavirku Pólóníum í Bretlandi 2006. Einnig bækur Önnu Politkovskaja sérstaklega Rússland Pútíns sem að var þýdd á Íslensku, hún var einnig myrt fyrir utan heimili sitt 2006. Við fengum margar aðvaranir en hlustuðum ekki á neinar því það var svo gróðavænlegt að leppa Rússneska peninga sem þurfti að fela erlendis og fá þvegna. Hversu mikið ætli hafi verið þvegið og leppað hérlendis bæði fyrir og eftir hrun,og hversu mikið ætli sé ennþá í umferð hér á landi.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár