Segir Pútín að stöðva stríðið

Leiðtogi Kasakstans þrýsti á Pútín að hætta stríðinu. „Þetta er skammarlegt,“ sagði hann við hlið Rúss­lands­forsetans. Úkraína gerir árásir í Síberíu.

Pútín og Tokayev
Pútín og Tokayev Leiðtogi lands­ins með lengstu landa­mærin að Rúss­landi lagði að honum að ljúka stríð­inu. Myndin er frá fundi þeirra 2019. Mynd: Kremlin.ru

Úkraínskir drónar gerðu árás á olíu­hreinsunarstöð í Síberíu í nýrri árása­hrinu í dag, á sama tíma og forseti Kasakstans sagði við Vladimír Pútín Rúss­lands­forseta á ráðstefnu í Omsk í Síberíu að stríðinu í Úkraínu yrði að ljúka.

Í hernumdu Úkraínu sögðu yfirvöld, sem Rússar hafa komið til valda, að úkraínsk árás hefði orðið 12 manns að bana í „ferðamanna­búðum“ við sjávar­síðuna, auk eins til viðbótar í bæ á valdi Rússa og tveggja í rússneskum landamæra­þorpum.

Stjórn­völd í Kyiv sögðu að árásir Rússa hefðu orðið fimm manns að bana í austur- og suður­hluta Úkraínu og tveggja áhafnar­meðlima væri saknað eftir að Rússar gerðu árás á flutninga­skip sem flutti maís.

Mann­fallið á sér stað á sama tíma og Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að fleiri almennir borgarar hafi fallið að undan­förnu í stríðinu sem staðið hefur í tæp 4,5 ár.

Stjórn­völd í Moskvu sögðu að Úkraína, …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár