Lífeyrissjóður hefur keypt skuldabréf Ölmu leigufélags fyrir tæpa 3 milljarða

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa hefur bundið fé sjóðs­fé­laga sinna í leigu­fé­lag­inu Ölmu sem tals­vert hefur verið fjallað um á síð­ustu vikum. Fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar Festu seg­ist skilja að ein­hver kunni að fetta fingur út í það en að á sama tíma þurfi að vera til leigu­fé­lög. Hann segir að Festa hafi brýnt Ölmu að sýna hóf gagn­vart við­skipta­vinum sínum.

Lífeyrissjóður hefur keypt skuldabréf Ölmu leigufélags fyrir tæpa 3 milljarða
Hefur keypt skula­bréf Ölmu Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa í Reykja­nesbæ hefur fjár­fest í skulda­bréfum leigu­fé­lags­ins Ölmu fyrir sam­tals 2,8 millj­arða króna. Gylfi Jónasson er fram­kvæmda­stjóri Festu.

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Festa hefur fjár­fest í skulda­bréfum leigu­fé­lags­ins Ölmu fyrir 2,8 millj­arða króna á síð­ustu árum. Baldur Snorra­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Festu líf­eyr­is­sjóðs, seg­ist skilja vanga­veltur um að slíkar fjár­fest­ingar kunni að virð­ast vafa­samar í hugum ein­hvers vegna starfs­hátta Ölmu. „Það er alltaf erfitt með leigu­fé­lögin því helm­ing­ur­inn vill að við fjár­festum í þessu og aðrir ekki. Við kaupum bréf í þessu af því okkur ber að ávaxta okkar eigna­safn. Þetta er svo­lítið erfið umræða.“

Alma hefur verið tals­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum eftir að greint var frá stífum hækk­unum á leigu hjá félag­inu sem tóku gildi í byrjun árs­ins. Málefni Ölmu urðu að frétta­efni þegar Brynja Bjarna­dóttir, öryrki á sjö­tugs­aldri, steig fram og greindi frá því að Alma hefði hækkað leig­una hjá henni um 30 pró­sent, úr 250 þús­und og …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (11)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Stjórnarmenn eftirlaunasjóðanna okkar hafa í raun EKKERT umboð frá sjóðsfélögum til að fjárfesta eftirlaunum okkar í fyrirtækjum án virkrar stjórnarsetu í fyrirtækjunum, hvaða fólk hefur það VALD að taka ákvarðanir um óvirka þátttöku í stjórnum fyrirtækja sem eftirlaunasjóðirnir fjárfesta eftirlaununum okkar ? Er það landsamband eftirlaunasjóða ? Er það stjórn hvers eftirlaunasjóðs ? Hvenær ætla fulltrúar launafólks í stjórnum eftirlaunasjóðanna OKKAR að leggja til BEINT-lýðræði sjóðsfélaga í stjórnir eftirlaunasjóðanna ?
    1
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Kemur ekki á óvart að Halldóra í Bárunni samþykki svona viðbjóð en að Vilhjálmur Birgisson sé flæktur í þetta veldur vonbrigðum.
    Þetta eru félögin sem standa að Festu.

    Verkalýðs- og sjómannafélag
    Keflavíkur og nágrennis
    Krossmóa 4
    260 Reykjanesbæ

    Efling - Stéttarfélag
    Austurmörk 2
    810 Hveragerði

    FIT
    Krossmóa 4
    260 Reykjanesbæ

    Verkalýðsfélag Suðurlands
    Suðurlandsvegi 3
    850 Hellu

    Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis
    Tjarnargötu 8
    245 Sandgerði

    Verkalýðsfélag Akraness
    Sunnubraut 13
    300 Akranesi

    Verkalýðsfélag Grindavíkur
    Víkurbraut 46
    240 Grindavík

    Verkalýðsfélag Snæfellinga
    Þvergötu 2
    340 Stykkishólmi

    VR
    Krossmóa 4a
    260 Reykjanesbæ

    Stéttarfélag Vesturlands
    Sæunnargötu 2a
    310 Borgarnesi

    Báran Stéttarfélag
    Austurvegi 56
    800 Selfossi

    Samtök Atvinnulífsins
    Borgartúni 35
    105 Reykjavík
    0
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Engin umfjöllun um þetta á dv.is, visir.is og frettabladid.is
    Enda þeru þessir miðlar í eigu auðróna og arðræningja.
    2
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Eru allir orðnir svo samdauna spillinguni að engin mynnist lengur á þann arfa andskotans fárðnleikann að fulltrúar samtaka arðræningja skuli eiga tryggan ákveðinn fjölda sæta í stjórn lífeyrissjóðana.
    Hvernig í ósköpunum var það tilkomið að ARÐRÆNINGJAR fengu leyfi til að vera með krumlurnar í féi sjóðsfélaga ?

    Það er dauði og djöfuls nauð
    er digðum snauðir fantar
    safna auð með augun rauð
    er aðra brauðið vantar.
    6
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Lífeyrissjóðir okkar eru komnir á móti þeim sem eiga að njóta þeirra.
    4
  • Sigurður Haraldsson skrifaði
    Ég hef það fyrir satt að lífeyrissjóðir neiti að lána til óhagnaðardrifinna leigufélaga.
    4
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ásgeir Överby - alveg rétt.
    Þó að engin einkarekin leigufélög væru til kæmi það ekki í veg fyrir að lífeyrissjóðir gætu stofnað slíkt félag og fjárfest í uppbyggingu þess.
    1
  • ÞNK
    Þórir N. Kjartansson skrifaði
    ,,Fjárfestarnir" og ,,viðskiptasnillingarnir" eru með lúkurnar á kafi í lífeyrissjóðunum ,,okkar" enda streyma þangað inn svo óheyrilegar fjárhæðir að stjórnendurnir vita ekkert hvernig þeir eiga að koma þeim í vinnu. Samt telur BB að það sé nauðsynlegt að lána þeim c.a. 70-80 milljarða á ári í frestuðum skattgreiðslum af inngreiðslunum. Telur sjálfsagt að þeir milljarðar séu betur komnir í höndum einhverra vildarvina en til að nota í ýmsa fjársvelta innviði s.s. heilbrigðiskerfið ofl.
    1
    • Sigurður Haraldsson skrifaði
      Það ríkir hér alræði mafíunar sama hvað hver segir við skiptum engu máli og ef mótmælt er þá er oft litið niður á þá sem þora að mótmæla og oft kemur spurningin "hverju er núna verið að mótmæla"
      2
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Ef lífeyrissjóðirnir myndu allir bara alls ekki fjármagn leigufélögin þá er snúið að þau gætu verið til"
    Það hefur farið fé betra. Íbúðirnar munu verða til fyrir því.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
FréttirLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma vill sækja þriggja millj­arða fjár­mögnun

Alma leigu­fé­lag heldur áfram að bjóða fjár­festum upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna félagið. Stjórn­ar­for­maður félags­ins, Gunnar Þór Gíslason, hefur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á félag­inu grafi undan hús­næð­is­mark­aðnum en Alma hefur reynt að fá þá til að fjár­festa í félag­inu. Formaður VR. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verðum meiði og segir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.
Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lagið Alma stærir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og segir ávinn­ing hlut­hafa og almenn­ings fara saman

Í nýjum árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svarar félagið fyrir leigu­verðs­hækk­anir sínar. Félagið und­ir­strikar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styður að hækk­anir leigu­verðs séu stundum bæði eðli­legar og óhjá­kvæmi­legar. Félagið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir okur.
Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líður eins og svik­ara“

Úkra­ínskir flótta­menn í hót­el­í­búðum Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerður var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ingur sem íslenska ríkið hefur gert. Í hús­inu búa úkra­ínskir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Meðal þeirra eru Olga, sem gat ekki verið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Dima, en fjöl­skylda hans hefur þrisvar sinnum þurft að flýja stríðs­á­tök Rússa.
Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði
GreiningLeigufélagið Alma

Þúsund verð­tryggðir leigu­samn­ingar skila Ölmu 230 millj­ónum á mán­uði

Leigu­fé­lagið Alma hefur um eitt þús­und heim­ili til útleigu til ein­stak­linga. Íbúð­irnar eru aðal­lega stað­settar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum; um 800 íbúðir. Í hverjum mán­uði tikka 220 millj­ónir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hefur vaxið veru­lega á síð­ustu árum. Nær allir samn­ingar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggðir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár