Ný kosningastefna Pírata: Útiloka ríkisstjórn án nýrrar stjórnarskrár

Ný kosn­inga­stefna Pírata kveður á um að þeir úti­loka rík­is­stjórn­ar­sam­starf án stuðn­ings við nýju stjórn­ars­r­kána. Píratar boða skatta­lækk­anir til lengri tíma á neyslu og laun, en að „meng­andi og auð­ugir“ borgi meira. Þau boða mikla útgjalda­aukn­ingu, en að öll útgjöld rík­is­ins verði end­ur­skoðuð.

Ný kosningastefna Pírata: Útiloka ríkisstjórn án nýrrar stjórnarskrár
Fram­bjóð­endur Pírata Píratar fund­uðu um kosn­inga­stefnu fyrir rúmum mán­uði síðan og kynna kosn­inga­stefnu sína í dag. Mynd: piratar.is

Píratar kynntu kosn­inga­stefnu sína í dag undir yfir­skrift­inni „Lýðræði - ekk­ert kjaftæði“ og boða þar að skil­yrði fyrir rík­is­stjórn­ar­þátt­töku flokks­ins sé „ný stjórn­ar­skrá á grund­velli vinnu stjórn­laga­ráðs“ og „þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla sam­hliða þarnæstu kosn­ingum“. 

Í nýrri ítar­legri kosn­inga­stefnu Pírata, sem telur yfir 13 þús­und orð og ótil­greindan millj­arða króna í útgjalda­aukn­ingu, eru áform um að end­ur­skoða „öll opin­ber útgjöld“ og upp­ræta fátækt með „skil­yrð­is­lausri grunn­fram­færslu“. 

Píratar flokka stefnu sína eftir inn­leið­ing­ar­tíma í fyrstu skref, á kjör­tíma­bil­inu og til fram­tíðar. Boðuð er skatta­lækkun til fram­tíðar, en strax í fyrstu skrefum vilji Píratar „stig­vax­andi skatt­kerfi þar sem lægstu skattar lækka og hæstu skattar hækka“.

Boða „velsældarhagkerfi“

Líkt og vinstri flokk­arnir vilja Píratar fjár­magna aukin útgjöld með því að skatt­leggja þá ríku. 

Ólíkt hefð­bund­inni vinstri stefnu boða þau hins vegar skatta­lækk­anir á laun og neyslu til langs tíma. „Við viljum skatt­leggja meira af auði og arði en minna af launum og eðli­legri neyslu. Þá verður öll mengun skatt­lögð í raun­tíma.“

Samtímis segj­ast Píratar ætla að end­ur­skoða öll útgjöld, án þess að það sé útfært nánar í lýs­ingu á stefn­unni. „Við viljum víð­tæka end­ur­skoðun á opin­berum útgjöldum til að skapa rými til nýrra útgjalda,“ segja þau. 

Eitt af lyk­il­kosn­inga­lof­orðum Pírata er að per­sónu­af­sláttur verði greiddur út til þeirra sem nýta hann ekki, en fram að þessu hefur hann aðeins virkað í þá átt að lækka skatta fólks af launa­greiðslum þess. Að auki verði barna­bætur ekki lengur tekju­tengdar, heldur fylgi þær barn­inu en „ekki tekju­sögu for­eldra“. Einnig verði frí­tekju­mark öryrkja hækkað og þeir þar með látnir borga minni skatta af auka­tekjum sem þeir vinna sér inn.

Hvað varðar aðrar fjár­mögn­un­ar­leiðir til að tryggja skil­yrð­is­lausa lág­marks­fram­færslu og skatta­lækk­anir, er ekki að sjá tæm­andi eða útreikn­aða útlistun í stefnu Pírata. Þeir boða hins vegar almennt að „meng­andi og auð­ugir bera byrð­arnar“. 

Ólíkt vinstri flokk­unum, sem boða vel­ferð­ar­sam­fé­lag, boða Píratar „vel­sæld­ar­hag­kerfi“. 

Eldri stefnu­mál Pírata eru áfram í sjáv­ar­út­vegs­stefn­unni, meðal ann­ars upp­boð á kvóta og að allur afli fari í gegnum inn­lendan markað.

Hverfa frá Hálendisþjóðgarði

Í síð­ustu kosn­inga­stefnu, árið 2017, lögðu Píratar áherslu á Mið­há­lend­is­þjóð­garð, sem á end­anum varð hluti af stefnu­skrá sitj­andi rík­is­stjórnar, en náði ekki fram að ganga vegna and­stöðu innan rík­is­stjórn­ar­innar. Þótt ekki sé rætt um hálend­is­þjóð­garð segj­ast þeir „vilja vernd mið­há­lend­is­ins í lýð­ræð­is­legt ferli svo hægt sé að tryggja vernd hálend­is­ins í þágu kom­andi kyn­slóða“. 

Græn stefnu­mál eru áber­andi hjá Pírötum að þessu sinni. Árið 2017 vildu þau raf­bíla­væð­ingu, en nú er áhersla á „græn­væð­ingu atvinnu­lífs­ins“ og lang­tíma­stefna fyrir „vist­væna og kolefn­is­hlut­lausa mat­væla­fram­leiðslu“, „auk þess að girða fyrir sjálfs­eft­ir­lit meng­andi fyr­ir­tækja“, svo og hringrás­ar­hag­kerfi og aðgerðir gegn mengun hafs­ins, auk ann­ars.

Þjóðaratkvæði skilyrði

Þá er for­senda við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið um aðild sú að fyr­ir­fram verði haldin þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla, en ekki eftir á, eins og var gert í vinstri stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna á sínum tíma.

Skilyrði um nýju stjórn­ar­skrána, sem er úrslita­at­riði fyrir stjórn­ar­sam­starfi, byggir á mál­efna­vinnu frá því í júlí. „Píratar munu ein­ungis taka þátt í myndun rík­is­stjórnar sem skuld­bindur sig til þess að kjósa um nýju stjórn­ar­skrána á næsta kjör­tíma­bili,“ segir í kosn­inga­stefn­unni.

Ekki sami samhljómur með VG

Á sama tíma og Píratar setju nýju stjórn­ar­skrána sem skil­yrði fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfi hafa Vinstri græn horfið frá fyr­ir­ætl­unum um að taka upp nýja stjórn­ar­skrá byggða á til­lögum stjórn­laga­ráðs. VG stefni árið 2017 að því að „ljúka vinnu“ við að klára „nýja stjórn­ar­skrá sem byggir á til­lögum Stjórn­laga­ráðs“. Í stjórn­mála­á­lyktun nýaf­stað­ins lands­fundar var breytt stefna gagn­vart stjórn­ar­skránni, þar sem áherslan var á end­ur­skoðun hennar í þrepum. „Halda þarf áfram end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Löngu er tíma­bært að ný ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign og umhverfis- og nátt­úru­vernd hljóti afgreiðslu Alþingis en einnig þarf að ráð­ast í tíma­bærar breyt­ingar á öðrum köflum.“

Því gæti þetta stefnu­mál Pírata sett rík­is­stjórn­ar­myndun sam­kvæmt Reykja­vík­ur­mód­el­inu, með Vinstri grænum, Sam­fylk­ingu og Viðreisn, í upp­nám fremur en að virka til sam­ein­ingar.

Leggja niður Útlendingastofnun

Meðal ann­arra stefnu­mála eru „færri próf og minni páfa­gauka­lær­dómur“ í skólum, launa­hækk­anir kenn­ara og að breyta náms­lánum í styrki í vax­andi mæli. Þá vilja Píratar „leggja niður Útlend­inga­stofnun í núver­andi mynd og fela verk­efni stofn­un­ar­innar öðrum emb­ættum, svo sem Þjóðskrá og sýslu­mönnum“ til þess að leggja áherslu á hrað­ari, ein­fald­ari og not­enda­vænni með­ferð umsókna um dval­ar­leyfi og rík­is­borg­ara­rétt.

Kosn­inga­stefna Pírata 2021 inni­heldur önnur klass­ísk stefnu­mál flokks­ins, svo sem aukið gagn­sæi, sjálf­virkni­væð­ingu, áherslu á stuðn­ing við nýsköpun og styrk­ing eft­ir­lits­stofn­ana.

Á end­anum segj­ast Píratar ætla að „skapa rými til nýrra útgjalda án þess að hækka þurfi heild­ar­skatta eða að rík­is­út­gjöld vaxi óstjórn­lega“ með því að „kafa ofan í  opin­ber útgjöld og varpa ljósi á það hvort vel sé farið með pen­inga almenn­ings“. Ekki er því ljóst hvað kæmi út úr slíkri end­ur­skoðun og hvar eða hvernig næð­ist að hag­ræða á móti í þjón­ustu og útgjöldum rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár