Nauðgari Tobbu beið dóms: „Jón Steinar hnoðar þá saman í eitt af sínum frægu sératkvæðum“

Tobba Mar­ín­ós­dóttir segir það dóm­greind­ar­brest hjá Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra að semja við Jón Steinar Gunn­laugs­son, sem aflétti far­banni manns sem flúði land þremur dögum áður en nauðg­un­ar­dómur féll.

Nauðgari Tobbu beið dóms: „Jón Steinar hnoðar þá saman í eitt af sínum frægu sératkvæðum“
Tobba Mar­in­ós­dóttir Jón Steinar Gunn­laugs­son var ekki meðal dóm­ara í máli hennar, en kom ein­ungis að því að rjúfa far­bann ger­and­ans.

Tobba Mar­ín­ós­dóttir, rit­stjóri DV, segir Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, hafa valdið því að maður sem var dæmdur fyrir að nauðga henni slapp úr landi og þurfti ekki að sitja inni fyrir brot sitt. Gagn­rýnir hún að Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hafi samið við Jón Steinar um aðstoð við vinnu við úrbætur í rétt­ar­kerf­inu.

Tobba skrifar um málið í grein á Vísi og tekur dóm­greind Jóns Steinars og Áslaugar Örnu til umfjöll­unar. „Í mátt­lausum til­raunum sínum til að klóra í bakk­ann hefur Áslaug Arna gefið það út að ráðn­ing­ar­samn­ingur Jóns snú­ist ekki beint um kyn­ferð­is­brota­mál – þvert á móti sé lögð áhersla á efna­hags­brota­mál,“ skrifar Tobba. „Það kemur ekki fram í samn­ingi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins við Jón Steinar, né kann­ast Jón sjálfur við það. Í við­tali á Bylgj­unni í gær sagð­ist Jón Steinar ekk­ert kann­ast við það að hann ætti að huga að efna­hags­brotum frekar en öðrum mála­flokkum.

„Ég get ekki annað séð en að Jóni Steinari hafi verið falið þetta starf í stór­kost­legri með­virkni með ein­hverju afar und­ar­legu afli“

Með því að velja svo umdeildan mann til starfa fer öll athygli á mann­inn ekki mál­efnið og verða til­lögur hans aldrei annað en harð­lega gagn­rýndar. Ég get ekki annað séð en að Jóni Steinari hafi verið falið þetta starf í stór­kost­legri með­virkni með ein­hverju afar und­ar­legu afli. Nú er rétti tím­inn til að staldra við og læra af mis­tök­unum.“

Nauðgarinn fór úr landi og aftur til starfa í hernum

Í grein­inni fer Tobba yfir mál sitt fyrir dóm­stólum þegar maður var dæmdur fyrir brot gegn henni. „Fyrir rúmum 11 árum varð ég fyrir kyn­ferð­is­of­beldi,“ skrifar Tobba. „Ger­and­inn var Banda­ríkja­maður og hefði átt að fara úr landi innan við sól­ar­hring eftir að hann var hand­tek­inn. Ég safn­aði saman öllum mínum and­lega styrk og með hjálp míns góða fólks stóð ég með sjálfri mér og kærði mann­inn. Hann var í kjöl­farið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald og svo síðar, þegar honum var sleppt úr því, í far­bann.“

Enginn fram­sals­samn­ingur er í gildi á milli Íslands og Banda­ríkj­anna og segir Tobba að ljóst hafi verið að hann mundi aldrei sitja af sér dóm­inn ef því yrði aflétt. Þremur dögum fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu var far­bannið kært og það fellt úr gildi.

„Jón Steinar Gunn­laugs­son, þáver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, fær málið á borð til sín en aðrir dóm­arar voru Ólafur Börkur Þor­valds­son og Viðar Már Matth­í­as­son,“ skrifar hún. „Tekið skal fram að Jón Steinar hafði enga aðra aðkomu að mál­inu og var ekki dóm­ari í aðal­með­ferð máls­ins sem átti að ljúka þremur dögum síðar. Jón Steinar hnoðar þá saman í eitt af sínum frægu sér­at­kvæðum þar sem hann segir að ekki sjái hann að rök­studdur grunur sé fyrir hendi að sak­born­ingur hafi gerst sekur um þá hátt­semi sem um ræðir.“

Jón Steinar og Ólafur Börkur felldu far­bannið úr gildi í óþökk við­ars. Skipan þeirra tveggja við Hæsta­rétt var umdeild á sínum tíma þar sem báðir voru metnir síður hæfir en aðrir umsækj­endur og höfðu sterk tengsl við ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Skilaði Ólafur Börkur sér­á­liti við skipan Jóns Steinars gegn átta hæsta­rétt­ar­dóm­urum sem töldu aðra umsækj­endur hæf­ari og sagði Ólafur Börkur að Jón Steinar væri „afburða­maður“.

Segir Jón Steinar ítrekað hafa sýnt dómgreindarbrest

„Ofbeld­is­mað­ur­inn er þarna orð­inn þreyttur á því að hanga á einu dýrasta hót­eli lands­ins og í lík­ams­rækt­ar­stöð á víxl og er fljótur að láta sig hverfa, enda aðeins þrír dagar í að aðal­með­ferð ljúki og átta dagar í dóms­upp­kvaðn­ingu. Átta dögum seinna er hann sak­felldur – en er þá á bak og burt og engin von um að fá hann fram­seldan,“ skrifar Tobba.

„Því gat þessi dæmdi kyn­ferð­is­af­brota­maður haldið aftur til starfa sinna í banda­ríska hernum. Áfram gakk.“

Tobba seg­ist ekki vekja athygli á máli sínu í bit­urð eða reiði heldur til að benda á að kerfið hafi virkað framan af „alveg þangað til að Jón ákvað að kippa því úr sam­bandi með því að bjóða mann­inum út bak­dyra­meg­inn korteri fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu.“

Ger­and­inn áfrýj­aði mál­inu í kjöl­farið. „Málið end­aði þó á þann veg að dóm­ur­inn var fjór­fald­aður og hann dæmdur í tveggja ára fang­elsi. Sem hann hefur aldrei þurft að afplána,“ skrifar Tobba.

„Þetta er ekki fyrsta né síð­asta dæmið um vinnu­brögð Jóns Steinars“

„Þetta er ekki fyrsta né síð­asta dæmið um vinnu­brögð Jóns Steinars og af hverju hann er ekki undir neinum kring­um­stæðum mað­ur­inn sem ætti að kalla til til þess að lag­færa rétt­ar­kerfið. Hann hefur ítrekað sýnt dóm­greind­ar­brest sem er engum sæm­andi, hvorki lög­fræð­ingi né fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár