Ákvörðun um rannsókn á Laugalandi ræðst af mati Ásmundar Einars

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur greint rík­is­stjórn­inni frá því að hann sé með mál­efni Lauga­lands til skoð­unar. Hann hyggst funda með hópi kvenna sem þar dvöldu 12. febr­úar næst­kom­andi. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að það muni ráð­ast af mati Ásmundar hvort sér­stök rann­sókn fari fram.

Ákvörðun um rannsókn á Laugalandi ræðst af mati Ásmundar Einars
Lauga­land til skoð­unar Ásmundur Einar hefur upp­lýst rík­is­stjórn­ina um að hann sé að skoða mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands, að sögn Katrínar. Mynd: Pressphotos.biz / Alþingi

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur upp­lýst rík­is­stjórn­ina um að hann hafi mál­efni með­ferð­ar­heim­il­is­ins Lauga­lands og lýs­ingar hóps kvenna á ofbeldi sem þær urðu fyrir þar til skoð­unar. Ákvörðun um hvort opin­ber rann­sókn fari fram á rekstri Lauga­lands mun ráð­ast af mati Ásmundar á mál­inu.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. Katrín svar­aði þar fyr­ir­spurn Söru Elísu Þórð­ar­dóttur, vara­þing­konu Pírata, sem vakti máls á lýs­ingum sex kvenna, sem stigu fram í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar og lýsta því að þær hefðu búið við harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­þórs­sonar, for­stöðu­manns Lauga­lands á ára­bil­inu 1997 til 2007.

Sara spurði Katrínu hvort hún hyggð­ist beita sér fyrir því að mál­efni Lauga­lands yrðu rann­sökuð og hvort ekki væri eðli­legt að þær konur sem þar voru vistaðar fengju greiddar miska­bætur vegna þess skaða sem þær hefðu orðið fyrir af dvöl­inni. Katrín svar­aði því til að Ásmundur Einar hefði greint sam­ráð­herrum sínum frá því að hann væri með umrædd mál til skoð­unar og myndi upp­lýsa rík­is­stjórn­ina um fram­vindu þeirrar skoð­unar. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar hyggst Ásmundur funda með hópi kvenna sem vistaðar voru á Lauga­landi 12. febr­úar næst­kom­andi.

„Það mun að sjálf­sögðu ráð­ast af því hvaða mat hæst­virtur félags- og barna­mála­ráð­herra leggur á málið“
Katrín Jak­obs­dóttir
for­sæt­is­ráð­herra

„Hátt­virtur þing­maður spyr hér sömu­leiðis um það hvort rétt sé að efna til rann­sóknar. Nú er það svo að það mun að sjálf­sögðu ráð­ast af því hvaða mat hæst­virtur félags- og barna­mála­ráð­herra leggur á málið,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráðu­neytið hefur, að sögn Katrínar, verið að fara yfir fyr­ir­komu­lag rann­sókna á frá­sögnum af harð­ræði og ofbeldi inni á stofn­unum sem rekin hafa verið af hinu opin­bera. Sú yfir­ferð hófst vegna umfjöll­unar um mál­efni vist­heim­il­is­ins í Arn­ar­holti á síð­asta ári. Mun ráðu­neytið hafa skilað vel­ferð­ar­nefnd Alþingis minn­is­blað þar um í dag. Katrín sagði að hægt væri að skipa rann­sókn­ar­nefndir Alþingis til að fara yfir slík mál en einnig væri hægt að skipa sér­stakar rann­sókn­ar­nefndir. Til þess þyrfti þó laga­stoð. Hvað þetta til­tekna mál varði sagði Katrín rétt að bíða eftir yfir­ferð Ásmundar Einars á vett­vangi rík­is­stjórn­ar­innar, áður en hún geti sagt til um hver end­an­leg nið­ur­staða verði.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár