Í hverju felst hamingjan?

Ham­ingjan felst í innri friði, ást, gleði og því að hafa fólkið sitt nærri sér.

Í hverju felst hamingjan?

Anna Þórunn Hauksdóttir, vöruhönnuðurog eigandihönnunarfyrirtækisins ANNA THORUNN

Hamingja fyrir mér er að hafa innri frið, elska sjálfa mig og fólkið mitt.

Ham­ingj­unni má líkja við tón­stiga sem hefur bæði háa og lága tóna en að velja að lifa skemmti­legu og inni­halds­ríku lífi er ákvörðun og ekki síður æfing.

Hvers­dags­lífið veitir mér mikla ham­ingju þar sem ég fæ að upp­lifa að vinna við það sem ég elska en það er að hanna. Ég er með­vituð um að njóta litlu hlut­ina í hvers­dags­leik­anum sem eru svo sjálf­sagðir en verða svo mik­il­vægir þegar eitt­hvað bjátar á. Ham­ingjan er að hafa góða heilsu og geta hreyft mig, fá að þroskast og efl­ast í því sem ég brenn fyrir ásamt því að eiga lífs­föru­naut sem er minn besti vinur gefur mér stað­festu og innri ham­ingju. Inni­halds­rík sam­töl og að vera til staðar fyrir aðra er hluti af minni ham­ingju. Þegar ég dvel í þakk­læti þá finn ég sanna ham­ingju og það besta er að það er alveg ókeypis, rétt eins og fal­legt bros út í heim­inn.


Ari Trausti Guðmundsson alþingismaður

Ham­ingjan er hug­ar­á­stand sem helg­ast af stund og stað, fólki og manns eigin líðan.

Ham­ingjan getur verið langæ eða skamm­vinn.

Fyrir henni er engin upp­skrift, á henni eng­inn skýr­an­legur mæli­kvarði og til hennar aðeins per­sónu­leg við­mið.

Þess vegna kemst ég ekki nær en þetta til svars við spurn­ing­unni.


Hendrikka Waage skartgripahönnuður

Ham­ingjan  fyrir mér er að vera sáttur í eigin skinni. Við getum einnig sagt að ham­ingjan sé hug­ar­far. Mér finnst einnig mjög mik­il­vægt að finna ástríðu sína og vinna við hana því hún veitir manni bæði ham­ingju og gleði. Ham­ingjan er til­finn­ing sem kemur þegar maður hefur full­nægt þörfum sínum. Það gefur manni ein­hverja sér­staka innri fyll­ingu. Við þurfum heldur ekki alltaf að vera á þeyt­ingi. Að vera með sjálfum sér í þögn­inni er æðis­legt og getur gefið manni ham­ingju. Það veitir manni ham­ingju að vera kær­leiks­ríkur og gefa af sér og aðstoða aðra.


Lilja Sigurðardóttir rithöfundur

Ég er oft mjög glöð og það er margt sem veitir mér gleði og þá helst fólkið í lífi mínu og dýrin í lífi mínu. Ég er líka oft­ast mjög glöð með vinn­una mína, ég hef inni­lega gaman af því að skrifa og finnst líka fremur gaman að kynna bæk­urnar mínar, bæði hér heima og erlendis. En það sem ég held að ham­ingjan sé er þegar ég er í tærustum tengslum við sjálfa mig og það er oft úti í nátt­úr­unni, ein­hvers staðar í nálægð við vatn eða tré eða hund og finn ein­hverja rósemd fylla hjartað. Svo ég held að ham­ingjan sé fremur fín­gerð og hæg­lát til­finn­ing sem lætur oft lítið yfir sér, svo lítið að maður tekur ekki alltaf eftir henni.


Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri

Ham­ingjan er heima­til­búin í réttum hlut­föllum við hvernig unnið er úr áskor­unum og hvernig til tekst að láta gott af sér leiða. Hún getur birst í ógleym­an­legum augna­blikum tengdum ást­inni, listum eða nátt­úru­feg­urð, en ef hún á að vera ferða­fé­lagi til lengri tíma þarf maður að vanda sig við eig­in­lega allt sem maður gerir, bæði stórt og smátt. Ham­ingjan er ásetn­ingur og teng­ing við til­gang­inn eins og hver og einn skil­greinir hann og að missa ekki sjónar af honum þótt á móti blási. Að vera heil­steyptur með mennsk­una að leið­ar­ljósi, rækta með sér þakk­læti og skapa sér til­efni til þess að hlakka til. Það er ham­ingjan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár