Kristján telur óþarft að komast að því af hverju starfsmaður ráðuneytis hans lét fresta birtingu laga

Kristján Þór Júl­í­us­son, atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráð­herra, er ósam­mála því mati stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar að kom­ast þurfi að því hvað Jóhanni Guð­munds­syni gekk til. Ráð­herr­ann telur að máli Jóhanns sé lokið jafn­vel þó það hafi ekki verið upp­lýst.

Kristján telur óþarft að komast að því af hverju starfsmaður ráðuneytis hans lét fresta birtingu laga
Málinu lokið þó það sé óupp­lýst Kristján Þór sagði í svörum sínum á Alþingi í gær að máli Jóhanns Guð­munds­sonar sé lokið innan ráðu­neytis hans þrátt fyrir að vera óupp­lýst. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Kristján Þór Júl­í­us­son, atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, telur ekki þörf á að kom­ast að því af hverju og á hvaða for­sendum skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti hans lét fresta birt­ingu laga um fisk­eldi sum­arið 2019. Ráð­herr­ann virð­ist ekki vita af hverju skrif­stofu­stjór­inn, Jóhann Guð­munds­son, lét fresta laga­birt­ing­unni í Stjórn­ar­tíð­indum með því að vísa til hags­muna lax­eld­is­fyr­ir­tækja og að hann telji mál­inu vera lokið innan ráðu­neytis hans jafn­vel þó að hann viti ekki hvað skrif­stofu­stjór­anum gekk til. Þetta kemur fram í svari frá Krist­jáni Þór við fyr­ir­spurn þing­manns Flokks fólks­ins, Ingu Sæland, um málið. Svarið var birt á Alþing­isvefnum í gær. 

Stundin hefur fjallað um mál Jóhanns síð­ustu vik­urnar. Hann hringdi í rit­stjóra Stjórn­ar­tíð­inda þann 15. júlí 2019 þegar hann gegndi starfi skrif­stofu­stjóra lax­eldis og lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi á þeim for­sendum að lax­eld­is­fyr­ir­tæki hefðu fengið frest til að skila inn gögnum um lax­eld­is­á­form sín til 17. júlí. Ef lögin hefðu verið birt og tekið gildi áður en lax­eld­is­fyr­ir­tækin þrjú skil­uðu inn gögn­unum hefðu nýju og strang­ari lögin um lax­eldi gilt um þessi áform. Með því að fresta laga­birt­ing­unni þar til eftir að lax­eld­is­fyr­ir­tækin þrjú, Arnarlax, Arctic Fish og Fiskeldi Aust­fjarða, skil­uðu inn gögn­unum til Skipu­lags­stofn­unar giltu gömlu lögin um fisk­eldi um þessi áform.

„Hlut­að­eig­andi starfs­maður lét af störfum áður en þess­ari athugun lauk, og er því mál­inu lokið innan ráðu­neyt­is­ins.“

Um er að ræða laxeldisáform sem verðleggja má á 85 milljarða króna í ljósi þess verðs sem norsk laxeldisfyrirtæki greiddu fyrir nýja laxeldiskvóta í Noregi árið 2018.

Ekkert svar en rannsókn óþörf

Inga Sæland spurði Kristján að því hvort hann teldi að rann­saka þyrfi af hverju Jóhann lét fresta laga­birt­ing­unni. Hún spurði: „Telur ráð­herra ástæðu til að rann­sakað verði það verk­lag sem var við­haft á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs og fisk­eldis að fresta til 18. júlí 2019 að láta birta í Stjórn­ar­tíð­indum ný lög um fisk­eldi sem sam­þykkt voru á Alþingi 20. júní 2019, sbr. frétt Stund­ar­innar 23. októ­ber 2020?“

Svar Krist­jáns Þórs við þess­ari spurn­ingu er á þá leið að jafn­vel þó ráðu­neytið viti ekki af hverju Jóhann gerði þá þetta þá telji það að mál­inu sé lokið: „Ráðu­neytið hefur látið fara fram athugun á þessum emb­ætt­is­færslum innan ráðu­neyt­is­ins með hlið­sjón af ákvæðum laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins. Hlut­að­eig­andi starfs­maður lét af störfum áður en þess­ari athugun lauk, og er því mál­inu lokið innan ráðu­neyt­is­ins.“

Athugun ráðu­neyt­is­ins á mál­inu lauk sem sagt ekki, ráðu­neytið veit ekki hvað Jóhanni gekk til og telur sig ekki þurfa að vita það. 

Eins og Stundin hefur margoft greint frá hefur blaðið ekki náð í Jóhann þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir. 

Miðað við svör Krist­jáns Þórs þá veit ráðu­neytið ekki hvort Jóhann hafi verið að ganga erinda ein­hvers eða ein­hverra þegar hann hringdi umrætt sím­tal.

Í svörum ráðu­neyt­is­ins til Stund­ar­innar hefur komið fram að Jóhann hafi hringt í Stjórn­ar­tíð­indi að eigin frum­kvæði en miðað við svör Krist­jáns Þórs þá getur ráðu­neytið ekki vitað hvort þetta er satt þar sem það kláraði ekki athugun sína á mál­inu. Ráðu­neytið getur því bara full­yrt að eng­inn innan ráðu­neyt­is­ins hafi sagt Jóhanni að hringja umrætt sím­tal. 

Spurði um mál Jóhanns Guð­munds­sonarInga Sæland spurði Kristján Þór um mál Jóhanns Guð­munds­sonar.

Frétti fyrst af málinu í sumar

Inga Sæland spurði Kristján Þór einnig að því hvenær hann frétti af því að birt­ingu lag­anna hefði verið frestað. Hún spurði: „Hvenær varð ráð­herra ljós þessi fyr­ir­ætlan um frestun á birt­ingu lag­anna og hver var ástæðan fyrir henni?“

Svar Krist­jáns við þessu var: „Yfir­stjórn ráðu­neyt­is­ins fékk fyrst upp­lýs­ingar um málið 7. júlí 2020. Þá þegar hófst athugun á mál­inu. Ekki er að finna upp­lýs­ingar í mála­skrá ráðu­neyt­is­ins um ástæður frest­unar á birt­ingu lag­anna.“

Ráðu­neytið greindi ekki opin­ber­lega frá þessum afskiptum Jóhanns eftir að það komst að þeim nú í sumar og það var ekki fyrr en að fjöl­miðlar spurð­ust fyrir um það að málið varð opin­bert. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd gerir nú eigin athugun á mál­inu og virð­ist nefndin ekki vera á sömu skoðun og ráðu­neytið að ekki þurfi að upp­lýsa um hvað Jóhanni gekk til og á hvaða for­sendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Mál Jóhanns Guðmundssonar

Mál skrifstofustjórans talið sýna þörf á strangari reglum um snúningsdyravandann
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Mál skrif­stofu­stjór­ans talið sýna þörf á strang­ari reglum um snún­ings­dyra­vand­ann

Tvær þing­konur Sam­fylk­ing­ar­innar segja að laga­setn­ing til að koma í veg fyrir hags­muna­á­rekstra hjá fólki í opin­berum störfum þurfi að vera strang­ari. Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir segir að mál skrif­stofu­stjór­ans og lög­fræð­ings­ins í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sýni fram á þetta.
Skrifstofustjóri í ráðuneyti sendi trúnaðargögn til ráðgjafa Arnarlax
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti sendi trún­að­ar­gögn til ráð­gjafa Arnarlax

Skrif­stofu­stjór­inn í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu sem lét fresta birt­ingu nýrra laga um fisk­eldi vill fá rúm­lega 30 millj­ónir króna frá rík­inu vegna ólög­mætrar upp­sagnar. Í dómi í máli hans er sagt frá því hvernig sam­skiptum hans við ráð­gjafa lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax var háttað. Ráð­gjaf­inn var fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans í ráðu­neyt­inu.
Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arnarlaxi í ráðuneytinu
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Kæran sagði Jóhann hafa hyglað Arn­ar­laxi í ráðu­neyt­inu

Kæra vegna hátt­semi Jóhanns Guð­munds­sonar, skrif­stofu­stjóra í atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sner­ist um að hann hefði gengið erinda lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax. Jóhann beitti sér fyrir því að gild­is­töku laga um lax­eldi yrði seinkað um sum­arið 2019. Arnarlax skil­aði inn gögnum um lax­eld­is­á­form sín einum degi áður en lögin tóku eftir að Jóhann lét seinka gild­is­töku þeirra.
Skrifstofustjóri í ráðuneyti var til rannsóknar hjá héraðssaksóknara
FréttirMál Jóhanns Guðmundssonar

Skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti var til rann­sóknar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara

Mál Jóhanns Guð­munds­sonar, fyrr­ver­andi skristofu­stjóra í atvinnu­vega-og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, sem kom að því að láta fresta gild­is­töku nýrra laga um fisk­eldi sum­arið 2020 var sent til lög­regl­unnar og hér­aðs­sak­sókn­ara. Rannsókn máls­ins var hins vegar felld niður þar sem ekki var talið að um ásetn­ing hefði verið að ræða. Fjallað er um málið í nýrri skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um sjó­kvía­eldi á Íslandi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár