Sólveig Anna segir fyrrum forseta ASÍ hafa rekið láglaunastefnu: „Thanks for nothing, Gylfi“

Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti ASÍ, er gagn­rýn­inn á núver­andi for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Hann vill að stjórn­völd lækki trygg­inga­gjald til að koma til móts við atvinnu­rek­endur. Formaður Eflingar telur hann ekki hafa stutt verka­konur í sinni for­seta­tíð.

Sólveig Anna segir fyrrum forseta ASÍ hafa rekið láglaunastefnu: „Thanks for nothing, Gylfi“
Sólveig Anna Jóns­dóttir og Gylfi Arn­björns­son Verka­lýðs­for­ingj­arnir fyrr­ver­andi og núver­andi eru ósam­mála um stefnu og aðferða­fræði.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, segir að Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti ASÍ, leggi „sitt á vog­ar­skál­arnar fyrir for­hertasta arm íslenskrar auð­stéttar þegar gerð er árás á kjör lægst laun­að­asta fólks­ins á íslenskum vinnu­mark­aði“.

Gylfi var í við­tali í Morg­un­blað­inu í morgun og var gagn­rýn­inn á for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar þessa dag­ana. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að orð­ræðan er bein­skeytt­ari og sam­skiptin líka,“ segir hann. „Það er heldur engin laun­ung að ég gaf ekki kost á mér á sínum tíma þar sem ég taldi mig ekki geta staðið fyrir svona stefnu og fram­göngu. Ég vildi nálg­ast hlut­ina öðru­vísi og gerði það. Þetta kemur mér því ekk­ert á óvart.“

Forysta Samtaka atvinnu­lífs­ins skoðar nú að segja upp Lífs­kjara­samn­ingnum svo­kall­aða frá því í fyrra þar sem algjör for­sendu­brestur hafi átt sér stað á vinnu­mark­aði. Segir Gylfi áhyggju­efni að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins ræð­ist ekki við og að traust milli þeirra virð­ist lítið. „Það hefur alltaf verið tal­sam­band milli sam­tak­anna þannig að hægt sé að máta hug­myndir. Miðað við fréttir virð­ist svo ekki vera og það eitt og sér end­ur­speglar alvar­leika stöð­unnar,“ segir hann.

Telur Gylfi að rík­is­stjórnin geti komið til móts við atvinnu­rek­endur, sem nú íhuga að segja upp samn­ingum, með því að lækka trygg­ing­ar­gjald. „Í þau 30 ár sem ég starf­aði var í for­gangi að finna leiðir til að hjálpa þeim sem misstu vinn­una. Það á að yfir­skyggja allt annað. Þetta reynir mjög á traust í sam­skiptum aðila og stjórn­valda. Það virð­ist ekki vera þannig núna.“

„Áhuga­leysi þitt gagn­vart kjörum kven-vinnu­aflsins fer í sögu­bæk­urnar“

Sólveig Anna svarar Gylfa með færslu á Facebook í dag. „Merki­legt að hugsa til að þess að hálauna maður innan úr hreyf­ingu vinn­andi fólk skuli hafa lyst á því að mætta í Moggann til að leggja sitt á vog­ar­skál­arnar fyrir for­hertasta arm íslenskrar auð­stéttar þegar gerð er árás á kjör lægst laun­að­asta fólks­ins á íslenskum vinnu­mark­aði. Í stuttu máli get ég svarað honum svona: Allt í lagi, Gylfi, mér hugn­ast ekki heldur sú sam­ræmda lág­launa­stefna sem er arf­leið þín á íslenskum vinnu­mark­aði, lág­launa­stefnan sem gerir það að verkum að verka­konur þurfa að þræla sér út þangað til þær missa heils­una og enda sem fátækir öryrkjar. Áhuga­leysi þitt gagn­vart kjörum kven-vinnu­aflsins fer í sögu­bæk­urnar. Thanks for not­hing, Gylfi.“

Sagði ASÍ og SA renna saman í eitt

Vísar hún í ályktun Eflingar frá því í maí 2018 þegar hún var nýtekin við sem for­maður en Gylfi var enn for­seti ASÍ. Kom þar fram að mál­flutn­ingur ASÍ væri „far­inn að ríma svo ræki­lega við mál­flutn­ing for­kólfa fjár­magns­eig­enda og auð­kýf­inga að varla má greina í sundur hvor talar hverju sinni hlýtur verka­fólk að hug­leiða vel og lengi þá frá­leitu stað­reynd og spyrja í kjöl­farið: Er það ætlun þeirra sem stjórna til­veru okkar að ASÍ og SA renni saman í eitt risa­vaxið sam­fé­lags­legt stjórn­unar-fyr­ir­bæri.“

Segist Sólveig Anna telja að lág­launa­konur syrgi ekki að Gylfi hafi ákveðið að hverfa til ann­arra starfa. „Þær geta í það minnsta glaðst örlítið yfir því að í for­ystu Eflingar er nú mann­eskja sem þekkir aðstæður þeirra af djúpri per­sónu­legri reynslu og mun aldrei láta sér detta til hugar að taka þátt því að traðka á þeim til að tryggja að þær haldi áfram að vera tap­arar Íslands svo að flottu strák­arnir geti haldið áfram að drottna, alveg slakir í þeirri vit­neskju að þeirra sé ríkið, mátt­ur­inn og dýrðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár