Lömun á farþegaflugi getur ógnað starfsemi Landspítala

Flókið hefur reynst að koma til lands­ins tækni­mönnum og afleys­inga­læknum. Auk þess gætu skap­ast vanda­mál við að koma íhlutum í lækn­inga­tæki hratt til lands­ins í bráða­til­fellum. Þá er far­ald­ur­inn einnig far­inn að hafa veru­leg áhrif á dag­lega starf­semi. 22 aðgerðum var frestað í síð­ustu viku.

Lömun á farþegaflugi getur ógnað starfsemi Landspítala
Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spítla Flókið hefur reynst að koma fólki og tækjum til lands­ins vegna nið­ur­fell­ingar flug­ferða. Mynd: Landspítali

Stopular flug­ferðir til og frá land­inu og sótt­varn­ar­að­gerðir bæði hér á landi og erlendis hafa nú þegar valdið Land­spít­ala umtals­verðum áskor­unum. Ástæðan er sú að erfitt, og í sumum til­fellum hefur reynst flókið að koma hingað til lands vara­hlutum í lækn­inga­tæki, tækni­mönnum til að sinna slíkum tækjum og læknum til afleys­inga vegna þess að far­þega­flug liggur því sem næst niðri. Aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spít­ala segir að ekki hafi skap­ast hættu­á­stand enn sem komið er vegna þessa en staðan sé erfið og geti valdið ógn við starf­semi spít­al­ans.

Svo sem þekkt er hefur far­þega­flug að veru­lega leiti verið fellt niður til og frá land­inu vegna Covid-19 far­ald­urs­ins, og far­þega­flug milli ann­arra landa Evrópu og í heim­inum öllum er sömu­leiðis stop­ult. Þannig var aðeins ein lend­ing á Kefla­vík­ur­flug­velli í morgun, flug EasyJet frá Luton. Aðeins tvö flug eru áætluð seinna í dag, frá Kaup­manna­höfn og Varsjá.

Ljóst að fresta þarf fleiri aðgerðum

Þetta hefur sem fyrr segir skapað flókin úrlausn­ar­efni fyrir Land­spít­al­ann. Ástæðan er einkum þrí­þætt.

Í fyrsta lagi er ekki hægt að úti­loka að stopular flug­ferðir til lands­ins gætu skapað vanda­mál, ef skap­ast bráða þörf á að koma til lands­ins íhlutum í mik­il­væg lækn­inga­tæki, þó fyr­ir­byggj­andi við­hald komi að mestu í veg fyrir slík atvik.

Í öðru lagi getur reynst örð­ugt að fá tækni­menn sem sinna við­haldi slíkra tækja til lands­ins, af sömu orsökum en einnig vegna reglna um sótt­kví bæði hér á landi og en ekki síður erlendis.

Í þriðja lagi eiga læknar sem hingað koma erlendis frá til sér­stakrar lækn­is­þjón­ustu eða afleys­inga erfitt með að kom­ast til lands­ins og eru auk þess ekki gin­keyptir fyrir því að þurfa  að fara í sótt­kví hér á landi og hugs­an­lega einnig þegar þeir fara út á nýjan leik.

Ofan á þessi úrlausn­ar­efni er Covid-19 far­ald­ur­inn far­inn að hafa veru­leg áhrif á dag­lega starf­semi Land­spít­ala. Í síð­ustu viku var 22 aðgerðum frestað á spít­al­anum og ljóst er að fresta þarf enn fleiri aðgerðum í þess­ari viku. Helgast það einkum af því að 22 starfs­menn Land­spít­ala eru smit­aðir af kór­óna­veirunni og 200 eru í sótt­kví, sem raskar starf­semi spít­al­ans tals­vert.

Reglur um sóttkví valda vandkvæðum

Anna Sigrún Bald­urs­dóttir, aðstoð­ar­maður for­stjóra Land­spítla, segir að þar á bæ sé fólk að glíma við þessar krefj­andi aðstæður, sem kalli á mikla útsjón­ar­semi. Þó tek­ist hafi hingað til að púsla saman komum fólks til lands­ins og íhluta sé staðan áhyggju­efni, sér­stak­lega ef ástandið vari lengi. „Þetta snýst um afhend­ingu á bráða­í­hlutum, vara­hlutum, ef upp kemur að eitt­hvað slíkt vanti brátt, og um komur tækni­manna til lands­ins. Það eru tækni­menn sem sinna við­haldi á flóknum tækjum og þurfa að koma hingað til reglu­legs, fyr­ir­byggj­andi við­halds en einnig bráða­við­halds og við­gerða.“

„Stór tækni­fyr­ir­tæki senda jafn­vel ekki sína starfs­menn frá sér vegna þeirra tak­markanna sem gilda í heima­löndum þeirra, um sótt­kví“

Anna Sigrún segir að vand­inn sé marg­þættur. Í fyrsta lagi sé fátt um flug til lands­ins og svo spili reglur um sótt­kví inn í. „Við leysum vand­ann sem skap­ast vegna reglna um sótt­kví hér á landi ef þessir menn kom­ast bara til lands­ins. Við erum með sótt­kví A, B og C, og þessir aðilar fara í sótt­kví B, eru í örygg­is­klæðn­aði þegar þeir vinna inni á spít­al­anum og fara svo beint á hótel þess á milli. Hins vegar er það svo að stór tækni­fyr­ir­tæki senda jafn­vel ekki sína starfs­menn frá sér vegna þeirra tak­markanna sem gilda í heima­löndum þeirra, um sótt­kví. Þannig gætu aðilar sem kæmu til Íslands frá Bret­landi lent í fjórtán daga sótt­kví við heim­kom­una.“

Gætu farið fram á sérstakar flugferðir

Hið sama á við um lækna sem koma hingað til afleys­inga eða til að sinna sér­tækum verk­efnum, að sögn Önnu Sigrúnar. „Af því við erum ekki fleiri en raun ber vitni, íslenskt heil­brigð­is­starfs­fólk, þá höfum við notað hjálpar frá kol­legum okkar úti í heimi sem aðstoða okkur við sér­stakar aðstæður. Þá er ég sér­stak­lega að tala um skurð­lækna og lækna sem eru að koma í mjög afmark­aða, sér­hæfða þjón­ustu. Þetta eru aðilar sem sumir hverjir hafa verið að koma hingað á nokk­urra mán­að­ar­fresti til að sinna ákveð­inni þjón­ustu en nú er staðan sú að sumir þeirra ein­fald­lega kom­ast ekki vegna skorts á flugi, eða þá að ferða­lögin eru rosa­lega flókin og erfið. Það kann að vera  letj­andi fyrir þetta fólk að þurfa að fara í sótt­kví við komu hingað til lands og svo mögu­lega aftur við kom­una út. Ég tek samt fram að margir þess­ara lækna hafa sann­ar­lega samt lagt þetta á sig en það er spurn­ing hversu lengi þeir end­ast í því, ekki síst ef þeir þurfa einnig að fara í langa sótt­kví við heim­komu.“

„Þetta getur valdið ógn við starf­sem­ina ef ástandið  verður svona til lengri tíma og við höfum áhyggjur af því“

Anna Sigrún segir að ekki sé alveg ljóst hvert umfang vand­máls­ins sé en verið sé að taka það út á spít­al­anum. Alveg sé þó ljóst að um alvar­legt vand­mál geti verið að ræða. „Þetta getur valdið ógn við starf­sem­ina ef ástandið  verður svona til lengri tíma og við höfum áhyggjur af því. Það þarf að finna á þessum lausnir. Þetta hefur ekki valdið okkur telj­andi vand­ræðum í það minnsta ekki enn sem komið er.“

Spurð hvort að brugð­ist verði við með því að fara fram á sér­stakar flug­ferðir til að sækja íhluti, tækni­menn eða lækna, komi upp bráða­á­stand svarar Anna Sigrún: „Já, við munum gera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár