Andúð gagnvart Albönum blossar upp í kjölfar hópslagsmála

Margir láta andúð sína á Albönum, útlend­ingum og múslimum ekki liggja á milli hluta á athuga­semda­kerfum eftir hópslags­mál síð­ustu helgi. Tvennum sögum fer af upp­tökum slags­mál­anna.

Andúð gagnvart Albönum blossar upp í kjölfar hópslagsmála
Útlend­inga­andúð rétt­lætt með hegðun örfárra ein­stak­linga Hópslags­mál brut­ust út 29. ágúst, en hópur þátt­tak­enda eru frá Albaníu.

„Albanir eru einsog kakka­lakkar, mennskt rusl sem allar þjóðir ættu að loka af áður en þessi ógeðs­lega plága stækkar“. Þetta er meðal þeirra orða sem hafa fallið í athuga­semda­kerfi um hópslags­mál á Lauga­vegi síð­ustu helgi. Þrír voru fluttir á bráða­deild Land­spít­al­ans eftir átökin, en eng­inn þeirra var í lífs­hættu. Fjórir eru með stöðu grun­aðs.

Eins og fjallað hefur verið um brut­ust út hópslags­mál laug­ar­dag­inn 29. ágúst. Lög­reglan hefur gefið út að átökin hafi hugs­an­lega verið upp­gjör á milli tveggja hópa, íslenskra og erlendra manna. Erlendi hóp­ur­inn hefur verið kenndur við Albani, en ein­stak­lingar úr báðum hópum hafa stigið fram og sagst vera fórn­ar­lömb.

Í athuga­semda­kerfi Mannlífs fyr­ir­finn­ast margar athuga­semdir þar sem andúð gagn­vart útlend­ingum og Albönum ræður ríkjum. Meðal ann­ars líkir einn Albönum við kakka­lakka og spyr: „Er ekki kom­inn tími til að henda albanska við­bjóði úr landi“. Guð­mundur Sig­ur­jóns­son tekur undir þessi orð og bætir við að þetta „vanda­mál“ fyr­ir­finn­ist líka á Norð­ur­lönd­unum og Englandi. „Evr­ópu­sam­bandið stendur fyrir þessu, má ekki mis­muna fólk allir eiga sama rétt sem búa í þessum heimi en þegar kemur að muslimum þá eru þeir [verstir] allra hvað kyn­þátta­hatur varðar“.

Baldur Hann­es­son segir að það eigi að henda „þessum mönnum“ úr landi, „helst á gúmmí­bát“. Bragi Páll Bragason tekur í sama streng. „Senda þetta rusl úr landi“, segir hann. Ívar Ásgeirs­son segir að þessir ein­stak­lingar hafi vænt­an­lega „upp­runa­lega verið að flýja lög­regl­una í heima­landi sínu og til að lenda ekki í fang­elsi fyrir glæpi sína þar“.

Mismunandi frásagnir af atburðarásina

Angjelin Sterkaj, einn þeirra sem er með stöðu grun­aðs eftir hópslags­málin, sagði við Frétta­blaðið í gær að hann og vinir hans hafi ekki átt upp­tökin að slags­mál­unum heldur hafi verið að verja sig. Hann sagði að ráð­ist hafi verið á einn úr þeirra röðum, dyra­vörð á Kofa Tómasar Frænda. „Þeir mættu með hnífa, þeir mættu með járn­kylfur og réð­ust á okkur. Hvað áttum við að gera? Við vorum bara að verja okkur,“ sagði hann við Frétta­blaðið.

Frásögn hans var við­bragð við við­tali Mannlífs við Hander Maria de la Rosa frá 2. sept­em­ber. „Þetta byrj­aði þannig að húð­litur minn var orsökin en þeir eru líka að ráð­ast á Íslend­inga. Meðal ann­ars spörk­uðu þeir í og rot­uðu einn sem reyndi að hjálpa mér,“ sagði Hander við Mannlíf, en hann er dökkur á hör­und. Angjelin þvertók fyrir þá atburða­rás.

Mannlíf hefur eftir Hander að hann hafi kjálka­brotnað í nóv­em­ber síð­ast­liðnum eftir árás sama hóps­ins og að upp­tök hópárás­ar­innar síð­ustu helgi megi rekja til þess að hann neit­aði að draga kæru sína gagn­vart hópnum til baka. Hander var stung­inn með hníf í hand­legg­inn síð­ast­liðna helgi og þurfti að gang­ast tvisvar undir aðgerð.

Réttindalítill minnihlutahópur

Þess má geta að Albanir eru ber­skjald­aður minni­hluta­hópur á Íslandi. Landið er utan Evr­ópu­sam­bands­ins og því þurfa borg­arar þess að sækja um dvalar- og atvinnu­leyfi til að starfa hér á landi, sem er hæg­ara sagt en gert. Frá árinu 2015 hafa 763 umsóknir um alþjóð­lega vernd borist Útlend­inga­stofnun, en sára­fáir hafa fengið hæli.

Til dæmis var tveim slíkum fjöl­skyldum vísað úr landi í skjóli nætur 10. des­em­ber 2015, en í báðum þeirra voru ung börn með lífs­hættu­leg veik­indi sem læknar töldu ólík­legt að yrði sinnt í heima­landi þeirra. Vegna þrýst­ings frá almenn­ingi fengu báðar fjöl­skyld­urnar rík­is­borga­rétt og gátu snúið aftur til lands­ins.

Klevis Sula, tví­tugur Albani, lést af sárum sínum eftir hnífs­stungu­árás í mið­bænum í des­em­ber 2017. Hann, og annar albanskur maður, var stung­inn af Íslend­ingi á þrí­tugs­aldri. Móðir Klevis sagði við Vísi að Klevis hafi komið til Íslands: „til að vinna og öðl­ast betra líf“. Vísir hefur eftir vini Klevis að hann hafi boðið grát­andi manni aðstoð og verið stung­inn af honum. Klevis hafði aðeins búið á Íslandi í nokkra mán­uði.

Albanskir for­eldar 19 mán­aða gam­allar stúlku sem fædd­ist á Íslandi 2017 fóru í mál gegn íslenska rík­inu vegna úrskurð Útlend­inga­stofn­unar um að vísa þeim og barn­inu úr landi þar sem þeir töldu það brjóta í bága við barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Ólétt albönsk kona sem var komin níu mán­uði á leið var hand­tekin ásamt manni sínum og tveggja ára barni. Eftir 19 tíma flug voru þau komin aftur til Albaníu, en lækn­is­vott­orð lág fyrir sem mælti gegn löngu flugi. Starf­andi for­stjóri Útlend­inga­stofnun sagði að vott­orðið hafi ekki breytt neinu við fram­kvæmd­ina.

Margeir Sveins­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjón hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, gerði í sam­tali við Mbl.is tor­tryggi­legt að „ákveðnir hópar“ útlend­inga geri sig „heima­komna“ á Íslandi.

Rannsókn máls­ins er enn í gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár