Samherji gengst við „gagnrýniverðri“ háttsemi í Namibíu en varpar ábyrgðinni á millistjórnendur

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji varpar ábyrgð­inni á því „gagn­rýni­verða“ sem gerð­ist í rekstri félags­ins í Namibíu yfir á milli­stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins í norskum fjöl­miðlum. Vörn Samherja byggir á því að yfir­stjórn fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi hafi ekk­ert komið að mútu­greiðsl­unum í Namibíu heldur alfarið stjórn­end­urnir í Afríku.

Samherji gengst við „gagnrýniverðri“ háttsemi í Namibíu en varpar ábyrgðinni á millistjórnendur
Ábyrgð ein­stakra milli­stjórn­enda Aðal­steinn Helgason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Afríku, var um hríð fram­kvæmda­stóri starf­semi Samherja í Namibíu. Samherji segir í norsku dag­blaði að ein­staka starfs­menn Samherja hafi verið ábyrgir fyrir „gagn­rýni­verðum“ við­skipta­háttum. Tekið skal fram að Aðal­steinn er ekki nafn­greindur sem ábyrgur aðili en hann var æðsti stjórn­andi Samherja í Afríku.

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji við­ur­kennir að atriði í rekstri dótt­ur­fé­laga sam­stæð­unnar í Namibíu hafi verið „gagn­rýni­verð“ og að félagið geti lært ýmis­legt af skýrslu norsku lög­manna­stof­unnar Wikborg Rein um Namib­íu­málið. Samherji skellir hins vegar skuld­inni á því sem miður fór í Namibíu á þá milli­stjórn­endur sem stýrðu rekstr­inum þar og full­yrðir að yfir­stjórn félags­ins á Íslandi hafi ekki vitað eða komið að því að greiða mútur til stjórn­mála- og ráða­manna í land­inu til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta.

Þetta kemur fram í grein um Namib­íu­málið og rann­sókn Wikborg Rein sem birt var í norska blað­inu Dagens Nær­ingsliv í vik­unni. 

Samherji stendur vörð um ÞorsteinMálsvörn Samherja gengur út á að Þor­steinn Már Bald­vins­son ber engu ábyrgð á mútu­greiðsl­unum í Namibíu.

Engir starfsmenn nafngreindir

Samherji nafn­greinir ekki hvaða starfs­menn, eða ein­stak­lingar það eru sem bera ábyrgð á hinni „gagn­rýni­verðu“ hátt­semi en tals­kona félags­ins og rit­ari for­stjór­ans, Margrét Ólafs­dóttur, notar fleir­tölu þegar hún svarar spurn­ingum blaðs­ins. 

Út frá þessu má áætla að vörn Samherja í mútu­mál­inu í Namibíu snú­ist ekki ein­göngu um að reyna að halda því fram að Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri dótt­ur­fé­lags Samherja í Namibíu og upp­ljóstr­ari í mál­inu, beri einn ábyrgð á mútu­greiðsl­unum heldur einnig aðrir milli­stjórn­endur hjá félag­inu. Aðrir stjórn­endur Samherja í Afríku og Namibíu á þessum tíma voru þeir Aðal­steinn Helgason, Ingvar Júl­í­us­son og Egill Helgi Árnason sem tók við fram­kvæmda­stjóra­starf­inu í Namibíu af Jóhann­esi og stýrði henni fram á þetta ár.  Upp­haf­lega reyndi Samherja að halda því fram að Jóhannes einn væri ábyrgur fyrir mútu­greiðsl­unum en þessar greiðslur héldu hins vegar áfram eftir að hann hætti hjá fyr­ir­tæk­inu og því gekk sú skýr­ing ekki upp. 

Greint var frá mútu­greiðslum Samherja í Namibíu í sjón­varps­þætt­inum Kveik, Stund­inni, hjá Al-Jazeera og á upp­ljóstr­un­ar­síð­unni Wikileaks í nóv­em­ber í fyrra.  Rannsókn Wikborg Rein á mál­inu hefur staðið yfir síðan þá og hafa komið fram ólíkar upp­lýs­ingar um hvort til standi að gera rann­sókn­ar­skýrsl­una opin­bera eða ekki. Í grein norska blaðs­ins kemur fram að ekki standi til að birta skýrsl­una opin­ber­lega.

Ábyrgðin Jóhann­esar og ann­arraMálsvörn Samherja virð­ist vera sú að skella ábyrgð­inni á mútu­greiðsl­unum á Jóhannes Stef­áns­son og aðra milli­stjórn­endur félags­ins í Namibíu.

Samherji gengur lengra í Noregi

Í við­tali við norska við­skipta­blaðið gengur Samherji lengra í því að gang­ast við „gagn­rýni­verðri“ hátt­semi innan sam­stæð­unnar en félagið gerði í tilkynn­ingu á íslensku sem félagið sendi frá sér í síð­ustu viku. Samherji gengur einnig lengra í því að varpa ábyrgð­inni á þess­ari hátt­semi yfir á ein­stak­linga sem störf­uðu innan sam­stæð­unnar, jafn­vel þó Samherji nafn­greini þá ekki.

„Enginn vafi leikur á því að Samherji hefur leyft ein­staka starfs­mönnum að stýra ein­staka dótt­ur­fé­lögum með gagn­rýni­verðum hætti.“

Orðrétt segir Margrét fyrir hönd for­stjóra Samherja, Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Björg­ólfs Jóhanns­sonar, í tölvu­pósti til Dagens Nær­ingsliv:  „Við höfum fengið í hend­urnar mjög yfir­grips­mikla rann­sókn­ar­skýrslu og það er ljóst að í henni er að finna mörg atriði sem hægt er að læra af. Enginn vafi leikur á því að Samherji hefur leyft ein­staka starfs­mönnum að stýra ein­staka dótt­ur­fé­lögum með gagn­rýni­verðum hætti. Samherji hefur hins vegar ætíð hafnað því að stjórn­endur sam­stæð­unnar hafi skipu­lagt það að til­tekin dótt­ur­fé­lög skyldu gera gagn­rýni­verða hluti til að kom­ast yfir gæði.“

Í íslensku frétta­til­kynn­ing­unni um málið var haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni, stjórn­ar­for­manni Samherja, að útgerðin hafni því að „stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins“ hafi lagt á ráðin um „vafa­sama við­skipta­hætti“. Eiríkur hafnar því hins vegar ekki í þeim orðum sem höfð eru eftir honum að „vafa­samir við­skipta­hættir“ hafi átt sér stað innan sam­stæð­unnar heldur ein­ungis því að æðstu stjórn­endur Samherja á Íslandi hafi skipu­lagt þessar gjörðir sem sagðar eru „gagn­rýni­verðar“ í norska dag­blað­inu.

Orðrétt er haft eftir Eiríki: „Þá ber að und­ir­strika að Samherji hafnar því alfarið að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi nokkru sinni hlut­ast til um að nokk­urt dótt­ur­fyr­ir­tækja þess stund­aði vafa­sama við­skipta­hætti, þar á meðal mútu­greiðslur eða pen­inga­þvætti, í því skyni að ná fram fjár­hags­legum ávinn­ingi og mun and­mæla kröft­ug­lega frek­ari ásök­unum í þá veru.“

Nið­ur­staðan virð­ist því vera sú að Samherji gengst við því að vafa­samir hlutir hafi átt sér stað í rekstr­inum í Namibíu en að stjórn­end­urnir á Íslandi beri ekki ábyrgð á þessu heldur ein­ungis milli­stjórn­end­urnir í Afríku, þó ekki séu þeir nafn­greindir.

Þannig bygg­ist vörn Samherja ekki á því að því að atburð­irnir sem sagt hefur verið frá í fjöl­miðlum, mútu­greiðslur upp á vel á annan millj­arð króna, hafi ekki átt sér stað heldur ein­fald­lega að stjórn­endur móð­ur­fé­lags­ins á Íslandi hafi ekki vitað þetta eða komið að mút­unum með nokkrum hætti. Út frá orða­lag­inu í norska blað­inu þar sem talið er um ónafn­greinda ein­stak­linga í fleir­tölu þá liggur ábyrgðin hjá þeim en ekki Þor­steini Má Bald­vins­syni og yfir­stjórn­inni á Íslandi, sam­kvæmt Samherja. 

Vörnin sem Samherji er með og und­ir­býr virð­ist því fyrst og fremst snú­ast um að verja æðstu stjórn félags­ins en ekki milli­stjórn­end­urna í Afríku. 

Nið­ur­stöð­urnar ekki birtar opin­ber­legaSamherji hefur ákveðið að birta nið­ur­stöður Wikborg Rein ekki opin­ber­lega en við­ur­kennir að þar sé margt gagn­rýni­vert sem félagið geti lært af. Geir Swiggum er tals­maður Wikborg Rein.

Niðurstaða Wikborg Rein virðist afhjúpandi 

Miðað við orða­lag Samherja sjálfs eru að minnsta kosti hluti nið­ur­staðna Wikborg Rein afhjúp­andi og óþægi­legar fyrir Samherja. Þetta skýrir vænt­an­lega af hverju Samherji hyggst ekki birta skýrsl­una eða nið­ur­stöður hennar að sinni. 

Norska blaðið Fiskeribla­det hefur meðal ann­ars fjallað um þá ákvörðun Samherja að birta ekki skýrslu eða nið­ur­stöður Wikborg Rein. Norska blaðið reyndi að fá leyfi til að taka við­tal við starfs­menn Wikborg Rein um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar en fékk ekki heim­ild til þess frá Samherja, sam­kvæmt frétt í blað­inu, og vís­aði Margrét Ólafs­dóttur til þess að veit­ing upp­lýs­inga um nið­ur­stöð­urnar gæti spillt fyrir rann­sókn­ar­hags­munum. 

Norska blaðið spurði einnig að því hvort að Samherji myndi gefa ákæru­vald­inu í löndum þar sem málið er til rann­sóknar aðgang að skýrsl­unni en fékk heldur ekki svar við því. 

Þá spurði Fiskeribla­det loks að því hvort leyndin sem Samherji héldi um nið­ur­stöður Wikborg Rein benti ekki til að Samherji vildi ekki opin­bera upp­lýs­ingar sem kunna að „afhjúpa lög­brot“. Þessari spurn­ingu svar­aði Samherji ekki sam­kvæmt Fiskeribla­det.

„Við veljum að trúa því að lög­fræði­skrif­stofan Wikborg Rein hafi skrifað hlut­læga og grein­andi skýrslu“

Í leið­ara í blað­inu fyrir nokkrum dögum er sú nið­ur­staða Samherja að halda skýrslu Wikborg Rein leyndri gagn­rýnd. Þar segir meðal ann­ars: „Við veljum að trúa því að lög­fræði­skrif­stofan Wikborg Rein hafi skrifað hlut­læga og grein­andi skýrslu, þar sem hvorki lög­brot né lög­leg við­skipti eru falin. Svo lengi sem skýrslan er ekki opin­bert gagn er það bara Samherji sjálfur sem situr með svarið í fang­inu. Eða allt þar til opin­berar stofn­anir og rann­sókn­ar­að­ilar kom­ast að sínum nið­ur­stöðum.“

Wikborg Rein getur heldur ekki tekið ein­hliða ákvörðun um opin­bera rann­sókn­ar­nið­ur­stöður sínar þar sem Samherji á skýrsl­una. Þetta kemur meðal ann­ars fram í máli Geir Swiggum, tals­manns Wikborg Rein, í grein­inni í Dagens Nær­ingsliv. „Vinnu okkar er lokið sam­kvæmt beiðni stjórnar Samherja. Það er stjórnin sem tekur ákvörðun um hvernig farið skal með nið­ur­stöður okkar, þar með talið að hversu upp­lýs­ingar og nið­ur­stöður skuli gerðar opin­berar.“

Í grein­inni í Fiskeribla­det er enn fremur tekið að ekki standi til að Wikborg Rein muni koma að því að gæta hags­muna Samherja eða ein­stakra starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins í mál­inu gagn­vart ákæru­vald­inu eða fyrir dómi, ef til slíks kemur.  Í frétt­inni kemur fram að íslenskir lög­menn Samherja muni sjá um þetta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár