Samdrátturinn meiri en árið eftir hrun

Seðla­bank­inn spáir 8 pró­senta sam­drætti í lands­fram­leiðslu á árinu. Íbúða­verð gæti lækkað og við­búið er að atvinnu­leysi nái áður óþekktum hæðum.

Samdrátturinn meiri en árið eftir hrun
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Seðla­bank­inn telur að íbúða­verð gæti lækkað.

Bank­arnir eru vel í stakk búnir til að standa af sér höggið vegna Covid-19 far­ald­urs­ins sam­kvæmt sviðs­mynda­grein­ingu sem Seðla­banki Íslands birti í dag. Sam­dráttur í lands­fram­leiðslu verður hins vegar 8 pró­sent á árinu, meiri en hann var árið 2009 beint í kjöl­far banka­hruns.

Seðla­bank­inn kynnti ritið Fjár­mála­stöð­ug­leika í dag. Í því kemur fram að fjár­mála­kerfið standi traustum fótum þrátt fyrir far­ald­ur­inn, enda hafi efna­hags­reikn­ingar heim­ila og fyr­ir­tækja styrkst veru­lega á und­an­förnum árum með nið­ur­greiðslu skulda og hærri eig­in­fjár­hlut­föllum. „Dragist áhrif af far­sótt­inni hins vegar á lang­inn mun það hafa nei­kvæð áhrif bæði á fjár­mála­kerfið og heim­ili og fyr­ir­tæki,“ segir í skýrsl­unni. „Far­sóttin hefur ýtt veru­lega undir þá þróun sem hófst á síð­asta ári, þegar sam­dráttur varð í ferða­þjón­ustu og þrengdi að aðgengi fyr­ir­tækja að lánsfé vegna minni áhættu­vilja fjár­mála­fyr­ir­tækja. Stærstu útflutn­ings­at­vinnu­grein­arnar hafa orðið fyrir mik­illi ágjöf og óvissa er um gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­bús­ins. Mikill sam­dráttur blasir við í ferða­þjón­ustu og að óbreyttu er hætt við að gjald­þrotum í grein­inni muni fjölga umtals­vert á næstu mán­uðum.“

Spá Seðla­bank­ans gefur fyr­ir­heit um 8 pró­senta sam­drátt í lands­fram­leiðslu á árinu. Til sam­an­burðar varð sam­dráttur upp á 6,8 pró­sent árið 2009 eftir að íslenska fjár­mála­kerfið hrundi haustið 2008. Seðla­bank­inn bendir einnig á að álverð hafi lækkað og lok­anir leitt til erf­ið­leika í sölu sjáv­ar­út­vega. Þannig hafi allar stóru atvinnu­grein­arnar, ferð­manna­iðn­að­ur­inn, álf­ram­leiðsla og sjáv­ar­út­vegur, orðið fyrir höggi. „Atvinnustig hefur lækkað veru­lega og við­búið er að atvinnu­leysi nái áður óþekktum hæðum, enda eru þær þjón­ustu­greinar sem mest verða fyrir högg­inu vinnu­afls­frekar.“

Þá býst Seðla­bank­inn við hrær­ingum á hús­næð­is­mark­aði, en verð á atvinnu­hús­næði hefur lækkað nokkuð þó að verð á íbúða­mark­aði hafi lítið breyst. Framboð á íbúð­ar­hús­næði hafi auk­ist nokkuð í kjöl­far mik­illar aukn­ingar í hús­bygg­ingum og sú þróun muni halda áfram næstu mán­uði.

„Mikill sam­dráttur í komum ferða­manna til lands­ins leiðir lík­lega til þess að hluti þeirra íbúða sem áður voru í skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna fer í sölu­ferli eða fær­ist yfir í lang­tíma­leigu,“ segir í skýrsl­unni. „Gera má ráð fyrir að u.þ.b. 800 til 1.000 íbúðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið nýttar til skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna í upp­hafi far­ald­urs­ins eða sem nemur um helm­ingi af áætl­uðum fjölda nýbygg­inga sem kemur árlega inn á mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Líklegt er að meiri sölu­þrýst­ingur sé á þessum íbúðum en almennt ger­ist þar sem margar standa nú tómar. Innkoma þeirra gæti aukið veltu og stuðlað að verð­lækk­unum á íbúða­mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár