Rúmlega 1.000 tilvísanir í Þorvald en 5 í Hannes – 3 frá honum sjálfum

Þor­valdur Gylfason, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, hefur gefið út nærri tvö­falt fleri rit­rýndar fræði­greinar en Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við sama skóla. Þor­valdur þykir ekki „heppi­legur“ sam­starfs­maður fyrir ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar vegna skoð­ana sinna en Hannes hefur fengið mörg verk­efni frá flokknum og ráðu­neyti Bjarna.

Rúmlega 1.000 tilvísanir í Þorvald en 5 í Hannes – 3 frá honum sjálfum
Þor­valdur ekki „heppi­legur sam­starfs­maður“ Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði að Þor­valdur Gylfason væri ekki „heppi­legur sam­starfs­maður“ fyrir ráðu­neytið , öfugt við Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son sem hefur fengið verk­efni frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu í gegnum árin.

Þor­valdur Gylfason, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi for­maður Lýð­ræð­is­vakt­ar­innar, hefur birt nær tvö­falt fleiri fræði­greinar í rit­rýndum tíma­ritum en Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við sama skóla, sam­kvæmt einum gagna­grunni. Raunar getur þetta hlut­fall orðið enn hærra eftir því hvernig rit­rýndu tíma­ritin eru skil­greind. En þetta er sú skil­grein­ing á mun­inum á mæl­an­legum afköstum og gæðum þess sem þeir hafa fram að færa sem fræði­menn, sem kemur sér best fyrir Hannes Hólm­stein þegar þessi gagna­grunnur er skoð­aður. 

Fjár­mála­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar hefur lagt sig eftir því að ráða Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son í vinnu í gegnum tíð­ina, meðal ann­ars við að skrifa skýrslu um íslenska efna­hags­hrunið sem út kom árið 2018, þremur árum á eftir áætlun. Samn­ing­ur­inn um gerð skýrsl­unnar var við Félags­vís­inda­stofnun og var Hannes Hólm­steinn umsjón­ar­maður verks­ins. Ein …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár