Helsti lærdómur Hannesar: Forysta Davíðs skipti sköpum

Meðlimir rann­sókn­ar­nefndar Alþingis eru sak­aðir um hlut­drægni og þröng­sýni í skýrslu sem fjár­mála­ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar greiddi 10 millj­ónir fyrir. For­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands segir erfitt að svara því hvort skýrsla Hannesar hefði stað­ist form­lega rit­rýni.

Helsti lærdómur Hannesar: Forysta Davíðs skipti sköpum

Einn mik­il­væg­asti lær­dóm­ur­inn sem hægt er að draga af banka­hrun­inu 2008 er sá að traust for­ysta Davíðs Odds­sonar í Seðla­bank­anum skipti sköpum og varð Íslend­ingum til happs. Seðla­bank­inn var­aði við ofvexti og útlána­þenslu bank­anna og lagði til lausnir en tal­aði fyrir daufum eyrum. Þegar Bretar og Banda­ríkja­menn brugð­ust Íslend­ingum á ögur­stundu lék Seðla­bank­inn lyk­il­hlut­verk í því að reisa varn­ar­vegg um Ísland. Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis leit fram­hjá mik­il­vægum atriðum, enda voru með­limir hennar að vissu leyti hlut­drægir í störfum sínum og með litla reynslu af banka­starf­semi.

Traust for­ystaÍ nið­ur­stöðukafla skýrsl­unnar dregur Hannes saman helstu lær­dómana af banka­hrun­inu.

Þetta er sú sögu­skýr­ing sem birt­ist í skýrslu Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins. Aðal­höf­undur skýrsl­unnar er Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor, æsku­vinur og sam­herji Davíðs Odds­sonar til margra ára­tuga, einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum fyrir hrun og full­trúi flokks­ins í banka­ráði Seðla­bank­ans frá 2001 til 2009. Á meðal helstu heim­ilda sem skýrslan byggir á eru við­töl Hannesar við Davíð sjálfan og fleiri, einkum sjálf­stæð­is­menn, sem voru í hring­iðu atburða­rás­ar­innar haustið 2008. 

„Hannes ber nátt­úr­lega ábyrgð á skýrsl­unni og umfjöll­un­inni sjálfur,“ segir Guðbjörg Andrea Jóns­dóttir, for­stöðu­maður Félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands, í sam­tali við Stundina en bendir á að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa lesið skýrsl­una yfir og gert athuga­semdir sem Hannes hafi brugð­ist við. 

Erfitt að svara því hvort skýrslan geti
skaðað orðspor Félagsvísindastofnunar

Í vís­inda­siða­reglum Háskóla Íslands er lögð áhersla á sjálf­stæði rann­sak­enda og rann­sókn­ar­stofn­ana og bent á að per­sónu­leg­tengsl geti vakið  spurn­ingar um hæfi, hvort sem þau megi rekja til ætt­ar­tengsla, vin­fengis eða langvar­andi tengsla rann­sak­anda og við­fangs­efn­is­ins sem rann­sakað er. „Slík tengsl geta leitt til þess að rannsóknin verði notuð til varnar ein­stökum málsað­ilum, að ekki verði gerður nægi­legur grein­ar­munur á rannsókn og rannsóknar­við­fangi eða að sjálfstæði sé ógnað vegna þess að rannsóknar­við­fangið er í stöðu til þess að hafa áhrif á rann­sak­and­ann,“ segir í regl­unum. 

Skýrsla Félags­vís­inda­stofn­unar sem birt var í gær er skrifuð af Hannesi Hólm­steini, einum ötulasta tals­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins innan fræða­sam­fé­lags­ins, fyrir fjár­mála­ráðu­neytið að beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í skýrsl­unni tekur Hannes upp hansk­ann fyrir fyrr­ver­andi ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ein af meg­in­nið­ur­stöðum skýrsl­unnar er sú að Íslend­ingar geti prísað sig sæla að jafn dug­mik­ill leið­togi og Davíð Oddsson, náinn vinur Hannesar, hafi setið við stýrið í Seðla­bank­anum á árunum fram að hruni. 

Aðspurð hvort það þyki ekki á gráu svæði að fræði­maður rann­saki emb­ætt­is­verk vinar síns á grund­velli við­tala við hann og kom­ist að afger­andi nið­ur­stöðu um að hann hafi farið rétt að í hví­vetna segir Guðbjörg: „Það er alltaf lögð áhersla á að vera eins hlut­lægur og hlut­laus og hægt er í umfjöllun. Það gengur ekki alltaf full­kom­lega. En þessi skýrsla hefur ekki farið í form­lega rit­rýni eins og tíðkast með fræði­rit, hún er ekki þess eðlis.“ Heldurðu að hún hefði stað­ist slíkar kröfur? „Það eru svo mis­mun­andi kröfur eftir birt­ing­ar­vett­vangi, svo það er erfitt að segja til um það. En fyrir það fyrsta hefði aldrei nema brot af henni getað birst í tíma­riti.“ 

Óttist þið ekk­ert að þessi skýrsla hafi skað­leg áhrif á ímynd og orð­spor Félags­vís­inda­stofn­unar?

„Þetta er nú mjög erfið spurn­ing. Ég held ég geti ekki svarað henni, en við gætum þess auð­vitað alltaf að það sem fer frá okkur sé vel unnið.“

En þessar skoð­anir sem koma fram í skýrsl­unni, þetta er sem­sagt ekki afstaða Félags­vís­inda­stofn­unar?

„Nei, eins og kemur skýrt fram er umfjöll­unin alfarið á ábyrgð Hannesar. Eins og gjarnan er þegar fræði­menn við skól­ann skrifa þá bera þeir ábyrgð á því sem þar kemur fram.“

Hannes telur meðlimi rannsóknarnefndarinnar hlutdræga

Hannes leggur áherslu á það í skýrslu sinni að Ísland sé lítið sam­fé­lag þar sem flestir teng­ist með einum eða öðrum hætti. „Hannes H. Giss­ur­ar­son var til dæmis í banka­ráði Seðla­bank­ans frá 2001 til 2009 og skipu­lagði ýmsar ráð­stefnur og atburði sem við­skipta­bank­arnir tóku þátt í fyrir hrun. Það sama gildir um sam­starfs­menn hans. Ásgeir Jónsson var aðal­hag­fræð­ingur Kaup­þings fyrir hrun bank­ans og faðir hans var ráð­herra í vinstri­st­jórn­inni milli 2009 og 2013. Birgir Þór Run­ólfs­son var vara­maður í banka­ráði Seðla­bank­ans og sat um tíma í stjórn spari­sjóðs í heimabæ sínum. Eiríkur Bergmann vann á tíma­bili fyrir fyrir fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og sat í stjórn­laga­ráði sem kom saman 2011 til 2012,“ segir í skýrsl­unni (þýð­ing er blaða­manns) þar sem bent er á að allt svona lagað geti haft áhrif á sjón­ar­horn og skoð­anir fólks en jafn­framt veitt sér­staka inn­sýn og þekk­ingu. Fræði­menn séu ekki dóm­arar og taki ekki veiga­miklar ákvarð­anir um líf og frelsi fólks, svo varla geti for­tíð þeirra eða sjón­ar­miðin sem þeir eru þekktir af dæmt þá úr leik. Á end­anum hljóti gögnin og rök­semd­irnar að ráða úrslitum.

Athygli vekur að í skýrslu Hannesar eru með­limir rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, þau Páll Hreins­son, Tryggvi Gunn­ars­son og Sigríður Bene­dikts­dóttir, sökuð um hlut­drægni í störfum sínum. Hannes telur þó að þau hafi starfað í góðri trú og ekki verið hlut­dræg vilj­andi. Hér beri að hafa í huga að Ísland sé lítið sam­fé­lag. Að mati Hannesar sáu með­limir rann­sókn­ar­nefndar ekki skóg­inn fyrir tjánum og ein­blíndu um of á ein­stak­linga og athafnir þeirra fremur en kerf­is­læga bresti evr­ópska banka­kerf­is­ins sem Ísland var hluti af. „Meðlimir rann­sókn­ar­nefndar Alþingis höfðu litla, ef nokkra beina reynslu af banka­starf­semi eða ann­ars konar við­skiptum,“ skrifar Hannes. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár