Vildu að ríkisstjórnin legði fram frumvarp minnihlutans í sínu nafni

Kristrún Frosta­dóttir segir minni­hlutann hafa afhent ríkis­stjórninni lokað umslag með nýju frumvarpi um veiði­gjöld og krafðist þess að hún legði það fram í eigin nafni og samþykkti, ef samningar ættu að nást.

Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra.
Kristrún Frosta­dóttir er for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Minni­hlutinn krafðist þess að meirihluti Alþingis tæki nýtt frumvarp minni­hlutans um veiði­gjöld, legði fram eins og það væri þeirra eigin frumvarp og samþykkti, ættu að nást samningar um þinglok. Þetta upplýsti Kristrún Frosta­dóttir, forsætis­ráðherra, í viðtali við frétta­stofu Sýnar og var birt á Vísi í hádeginu. Þetta var liður í samninga­viðræðum á milli oddvita minni­hlutans og ríkis­stjórnarinnar.

Hún sagði formenn flokkanna hafa rennt umslagi sem innihélt nýtt frumvarp um veiðileyfa­gjöldin og ætlast til þess að ríkis­stjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins legði það fram á þingi í sínu nafni, og samþykkti. Við því var ekki orðið.

„Þau lögðu fram í lokuðu umslagi, yfir borðið, sitt eigið frumvarp um veiði­gjaldið og kröfðust þess að við myndum samþykkja það. Leggja það fram sem okkar eigið. Þegar við loksins komumst á þann stað að geta fengið þau til þess að ræða okkar kerfis­breytingar, þá gerðu þau þá kröfu, að kerfið …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það er nauðsynlegt að takast á við sjálft kvótakerfið til að gera þjóðina sátta. Þ.e.a.s að skerða kvóta hverrar útgerðar og að ríkið síðan út veiðikvóta til skamms tíma í senn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár